Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.11.2004, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.11.2004, Qupperneq 2
2 4. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Ólafur Ragnar Grímsson forseti er staddur í New York: Bush á erfitt verk fyrir höndum KOSNINGAR „Það verður erfitt verk forseta að skapa breiða og öfluga samstöðu bandarísku þjóðarinnar eftir þann djúpstæða ágreining sem hér hefur birst,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti eftir úr- slit kosninga í Bandaríkjunum: „Ég vona að endurkjör Bush verði til þess að samband Íslands og Bandaríkjanna verði áfram öflugt og byggt á gagnkvæmum skilningi og þeirri vináttu sem einkennt hefur þjóðirnar um langt árabil.“ Ólafur segir að sem gömlum fræðimanni í stjórnmálum þyki honum fróðlegt hve málefnalegur klofningur í Bandaríkjunum sé í raun og veru orðinn meiri en í flestum Evrópulöndum. „Hér áður fyrr var talið að í Bandaríkjunum væri munurinn á flokkunum svo lítill að það skipti nánast ekki máli hver ynni kosn- ingarnar en í Evrópu væri hyl- djúp hugmyndafræðileg gjá milli flokka og fylkinga. Nú er eins og þetta sé að snúast við.“ Ólafur segir að það lýsi sér í gífurlegum ágreiningi í öllum umræðum í kosningabaráttunni í öllu milli himins og jarðar: „Mál- efni sem í Evrópu eru utan við vettvang hinna daglegu stjórn- mála en eru hér greinilega átaka- efni.“ - gag BANDARÍKIN Áhersla George W. Bush á siðferðismál og baráttuna gegn hryðjuverkum virðist hafa átt stóran hlut í því að tryggja honum endurkjör sem forseti Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að fólk lýsti mikilli óánægju með stöðu efnahagsmála og að Íraks- stríðið væri afar umdeilt gefa skoðanakannanir á kjördag til kynna að fólk hafi sett siðferðis- mál hvað mest á oddinn. 22 prósent kjósenda litu á sið- ferðismál sem mikilvægasta mál kosninganna samkvæmt út- gönguspám og kom það sérfræð- ingum mjög á óvart. Þessir kjós- endur litu vart við John Kerry, 79 prósent þeirra kusu Bush en að- eins 18 prósent Kerry. Þetta endurspeglaðist að hluta í úrslitunum í Ohio, en sigur Bush þar réði úrslitum um að hann en ekki John Kerry verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin. Samkvæmt könnun AP lítur fjórði hver kjósandi í ríkinu svo á að hann hafi frelsast, en þetta trúaða fólk kaus Bush með miklum yfirburðum. Þrefalt fleiri greiddu honum atkvæði en Kerry í ríki þar sem aðeins mun- aði tveimur prósentustigum þeg- ar upp var staðið. George W. Bush vann kosning- arnar með nokkrum mun. Hann fékk 51 prósent atkvæða en Kerry 48 prósent og fékk fleiri kjörmenn nú en fyrir fjórum árum. Þetta kom á óvart í ljósi skoðanakannana sem sýndu ekki marktækan mun á frambjóðend- unum og útgönguspár á kjördag sem gaf til kynna að John Kerry væri í sókn og líklegur til að vinna í þremur stærstu óvissu- ríkjunum; Flórída, Ohio og Penn- sylvaníu. Þegar upp var staðið vann hann aðeins í einu þeirra, Pennsylvaníu, sem Al Gore vann fyrir fjórum árum. Þrátt fyrir að Bush ynni þegar upp var staðið öruggari sigur en búist hafði verið við leið drjúgur tími áður en úrslitin voru endan- lega ljós. Mikill fjöldi utankjör- fundaratkvæða og vafaatkvæða í Ohio varð til þess að demókratar gerðu sér vonir fram yfir hádegi í gær að íslenskum tíma um að vinna í Ohio og þar með forseta- kosningarnar. Þegar betur skýrð- ist um hversu mörg atkvæði var að ræða sáu þeir hins vegar að baráttunni væri lokið. brynjolfur@frettabladid.is STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra segir sigur George W. Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum virðast mjög afger- andi. „Ég tel að þetta sé mikið afrek hjá honum og sýni að hann er meiri foringi en margur hyggur, sérstak- lega í Evrópu. Hann hefur verið um- deildur, en mér hafa líkað vel þau samtöl sem ég hef átt við hann,“ segir Halldór. Halldór telur að endurkjör Bush í embætti forseta komi Íslandi að mörgu leyti vel, enda hafi hann til dæmis verið mjög afgerandi varð- andi frjáls viðskipti í heiminum. „Svo hefur hann svarað því til að hann vilji finna lausn á varnarmál- unum sem við getum sætt okkur við.“ Halldór segist þó aldrei hafa talið að miklu myndi breyta varð- andi utanríkismál hvor ynni, Bush eða Kerry. „Þó þeir hafi verið ósam- mála í sambandi við margt í Írak er fram undan þar uppbygging og Bandaríkjamenn hafa tekist þar á hendur skuldbindingar sem þeir hvorki geta né munu hverfa frá.“ Þá gerir Halldór ráð fyrir að ný ríkis- stjórn undir forystu Bush leggi mikla áherslu á að lausn verði fund- in á vanda Mið-Austurlanda. „Það er lykillinn að mörgu öðru og takist það skiptir það sköpum í samskipt- um Bandaríkjanna, bæði við Mið- Austurlönd og Evrópu.“ - óká Forsætisráðherra um Bandaríkjaforseta: Meiri foringi en margur hyggur Guðjón A. Kristjánsson: Stríðsvilji staðfestur STJÓRNMÁL Guðjón A. Kristinsson segist mundu hafa orðið hrifnari af því ef Kerry hefði unnið þess- ar kosningar. „Ég hefði talið það betra fyrir heiminn og framtíð- ina. Ég tel að bandaríska þjóðin hafi dálítið staðfest stríðsvilja sinn með því að endurkjósa Bush.“ Hann telur þessar kosn- ingar ekki munu hafa mikil áhrif á samskipti Bandaríkjanna og Íslands og vill frekar líta á heimsmálin. „Ég held að Bush telji sig núna ábyggilega hafa sterkari stöðu til að fylgja eftir sinni stefnu og hans stefna hefur verið nokkuð hörð. Þó svo að íslenska ríkis- stjórnin hafi farið inn á lista viljugra þjóða held ég að meiri- hluti Íslendinga hafi ekki viljað fara þangað inn.“ - ss „Ekki alveg á næstunni, en enginn veit sína ævi fyrr en öll er.“ SPURNING DAGSINS Björgvin, byðir þú þig fram? SIGRI FAGNAÐ Repúblikaninn John Thune varð fyrsti mað- urinn í 52 ár til að fella leiðtoga stjórn- málaflokks í öldungadeildinni af þingi. Leiðtogi demókrata í öldungadeild féll af þingi: Halda báð- um deildum BANDARÍKIN, AP Repúblikanar tryggðu sér í fyrrinótt áframhald- andi meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og bættu við sig þingsætum bæði í öldungadeild- inni og fulltrúadeildinni. Einn þeirra demókrata sem urðu fyrir barðinu á sigrum repúblikana var Tom Daschle, leiðtogi demókrata í öldunga- deildinni. Hann tapaði fyrir repúblikananum John Thune og varð fyrsti leiðtogi stjórnmála- flokks í öldungadeildinni til að falla í kosningum í rúma hálfa öld eða frá árinu 1952. Demókratar töpuðu einnig þingsæti í Norður- Karólínu sem John Edwards vann fyrir sex árum en hann gaf ekki kost á sér í vegna varaforseta- framboðs síns. Eina gleðiefni demókrata var að vonarstjarna þeirra Barack Obama vann sæti af repúblikönum í Kansas. Repúblikanar eru með 53 af hundrað sætum í öldungadeild- inni og allt að 233 af 435 sætum í fulltrúadeildinni þar sem þeir höfðu áður 228 þingmenn. ■ STUÐNINGSMENN FORSETANS BRATTIR Langt fram eftir kosninganótt treystu fæstir sér til að spá fyrir um sigurvegara en stuðningsmenn George W. Bush í Texas sáu ástæðu til að fagna. Björgvin G. Sigurðsson mælir ásamt Jóhönnu Sig- urðardóttur fyrir beinni kosningu framkvæmda- valdsins á Alþingi. Hann telur að með beinni kosningu forsætisráðherra náist æskilegur aðskiln- aður löggjafar- og framkvæmdavalds. Siðferðismálin réðu miklu um sigurvegara George W. Bush vann nokkuð öruggari sigur en fyrir fram var búist við. Kjósendur lögðu mikla áherslu á siðferðismál og vó það þungt fyrir forsetann. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON OG FRÚ Eru stödd í Bandaríkjunum. Ólafur fylgdist með kosningunum og segir Bush bíða erfitt verkefni að skapa samstöðu þjóðar sinnar. Davíð Oddsson: Bush heppi- legri kostur STJÓRNMÁL Davíð Oddsson sagði í gær að Bush hefði styrkt stöðu sína. „Hann var með um fjórar milljónir atkvæða umfram sinn aðalkeppinaut og kjörmannafylgi eftir því.“ Davíð segir jafnframt að þetta sé heppilegri kostur í samskiptum okkar við Banda- ríkjamenn. „Það hefði haft lakari áhrif fyrir okkur ef það hefði komið nýr forseti. Þá hefðum við þurft að fara yfir og kynna málin á nýjan leik, en núverandi forseti þekkir mjög vel til okkar mála. Fyrir mig tel ég það þægilegra að ég þekki hann persónulega því það auðveldar mér mín störf.“ - ss John Kerry viðurkenndi ósigur: Verðum að græða sárin BANDARÍKIN, AP „Við getum ekki unnið þessar kosningar,“ sagði John Kerry öldungadeildarþing- maður þegar hann viðurkenndi ósigur sinn í bandarísku forseta- kosningunum í gær. Hann lagði áherslu á að hefjast þyrfti handa við að sætta landsmenn eftir þær deilur sem hafa klofið þá undan- farin misseri. „Við töluðum um hættuna á klofningi þjóðar okkar og þörf- ina, brýna þörf, fyrir einingu, að finna sameiginlegan grundvöll til að taka höndum saman,“ sagði Kerry. „Ég vona að við getum byrjað að græða sárin.“ Kerry neitaði að viðurkenna ósigur í fyrrinótt meðan hann og aðrir demókratar töldu enn möguleika á sigri í Ohio. Síðdegis í gær hringdi hann hins vegar í George W. Bush, viðurkenndi ósigur sinn og óskaði honum til hamingju. ■ EDWARDS OG KERRY John Kerry varð í gær að viðurkenna ósigur sinn fyrir George W. Bush.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.