Fréttablaðið - 04.11.2004, Síða 35

Fréttablaðið - 04.11.2004, Síða 35
FIMMTUDAGUR 4. nóvember 2004 Verslunin Hestar og menn rýmir þessa dagana fyrir nýjum vörum og er þar af leiðandi með mikið af vör- um á tilboði. Til dæmis er hægt að fá reiðbuxur sem voru áður á 16.900 krónur á 9.900 krónur og úlpu á 4.900 krónur sem var áður á 14.900 krónur. Einnig er hægt að fá hanska frá 290 krónum, flíspeysur frá 1.490 krónum, hófhlífar frá 500 krónum parið, myndbönd frá 490 krónum og keppnisjakka frá 5.900 krónum. Myndbandið með kynbóta- sýningum á Landsmóti 2004 er nú á 4.900 krónur og fylgir spólan frá Landsmóti 1998 með í kaupbæti.. Þetta tilboð stendur fram yfir helgi en Hestar og menn eru til húsa að Lynghálsi 4 í Reykjavík. Þar er opið virka daga frá 9 til 18 og heimasíða þeirra er hestarog- menn.is. [ TIBOÐ Á HESTAVÖRUM ] Bæði fyrir hesta og menn Jólin koma brátt eins og flestir gera sér eflaust grein fyrir. Jólin eru dýr sama hvað við reynum að spara og oft fer mestur peningur í gjafir fyrir ástvini og kunningja. Til að losna bæði við jólastressið og spara nokkrar krónur þá er um að gera að kíkja á tilboðin sem eru í gangi um þessar mundir og grípa gæsina meðan hún gefst. Láttu drauminn rætast í rúmi frá Stearns & Foster L a n g h o l t s v e g i 1 1 1 • 1 0 4 R e y k j a v í k • S í m i 5 6 8 7 9 0 0 A f g r e i ð s l u t í m i v i r k a d a g a k l . 1 1 – 1 8 . o g l a u g a r d a g a k l . 1 1 – 1 4 . Bandarísku hágæðarúmin frá Stearns & Foster eru heimsþekkt á meðal vandlátra kaupenda fyrir gæði og glæsileika. Rúmin eru hönnuð fyrir fólk sem vill aðeins hið besta. Þau veita réttan stuðning og tryggja vellíðan á hverri nóttu með sérhönnuðu gormakerfi, bólsturslögum og einstökum frágangi. Bandarísku neytendasamtökin hafa í mörg ár útnefnt rúmin frá Stearns & Foster sem „bestu kaupin“. Hágæðarúm frá Stearns & Foster Frá einu virtasta tískuhúsi Frakklands: Rúmteppi, sængurverasett, lök, handklæði, frottésloppar, ilmsápur, ilmkerti, ilmvatn o.fl. Hlutir á tilboði sem passa í jólapakkann Glös eru alltaf góð í gjafir og til 26. nóvember er hægt að fá átján krist- alsglös í pakka með 38 prósenta af- slætti hjá Tékk kristal. Glösin eru á 4.990 krónur en voru áður á 8.100 krónur. Armband er góð gjöf fyrir ástina í líf- inu en til 15. nóvember er hægt að fá armband á 750 krónur en það var áður á 1.500 krónur hjá Oriflame. Hver þarf ekki tappatogara um ára- mótin? Kokka er með tappatogara á 3.150 krónur sem var áður á 5.250 krónur. Tilboðið gildir til 7. desember. Heilsurækt er alltaf inni og sérstak- lega eftir jólin. Á femin.is er hægt að kaupa Yoga DVD-disk með Guðjóni Bergmann á 1.990 krónur en hann var á 2.499 krónur. Tilboðið gildir til 24. nóvember. Húsbóndinn á heimilinu þarf auðvitað eitthvert tæki til að leika sér með og nú er Sony Hi8 tökuvél á tilboði hjá Expert til 9. nóvember. Vélin er á 34.900 krónur en var áður á 59.900 krónur. Jólin koma Kauptu gjafirnar á tilboði Mikið stress getur verið í kringum jól- in og erfitt að finna hluti á hagstæð- um kjörum í öllum asanum. „Við höfum fengið leyfi til að auka farþegafjölda okkar úr tutt- ugu milljónum í 25 milljónir fyrir árið 2011. Framtíðarsýn okkar er skýr og árið 2011 hyggjumst við bæta við flugstöðina. Við viljum fjölga bílastæðum, verkstæðum og flugbrautum innan flugvallar- svæðisins,“ segir Geoff Colon, framkvæmdastjóri viðskiptaþró- unar á Stansted flugvelli í London á Englandi um framtíð flugvallar- ins. Stansted flugvöllur hefur stækkað mest af öllum flugvöll- um í Evrópu á síðustu árum. Hann er í raun og veru eins og risastór og mjög dýr Lego-kubbur sem er alltaf hægt að bæta við. Hann er orðin miðstöð lággjalda- flugfélaga eins og Iceland Ex- press og Ryan Air sem hafa gert samgöngur á milli landa talsvert ódýrari en áður. Um tuttugu milljónir manna fara um flugvöll- inn á ári hverju en á þessu ári bú- ast aðstandendur flugvallarins við 21 milljón farþega. Á aðeins fimmtíu flugvöllum í heiminum er meiri farþegaumferð en á Stansted. Hægt er að fljúga til rúmlega 115 staða frá Stansted, þar af var fjórtán stöðum bætt við í ár. Á flugvellinum starfa 200 fyrirtæki og eru ellefu þúsund starfsmenn þar í vinnu. „Nýr Stansted flugvöllur var opnaður árið 1991. Árið 1998 var sprenging hjá lággjaldaflugfélög- um og hafa þau á síðustu árum breytt flugviðskiptum um alla Evrópu. Nú vilja íbúar á Bret- landseyjum frekar keyra langa vegalengd til að ná ódýru flugfari og því þjónar Stansted-flugvöllur stóru svæði. Við reynum að hjálpa lággjaldaflugfélögum að selja vöru sína og styðjum við bakið á þeim. Við höfum einnig opnað vefsíðuna baa.com/chang- ingplanesatstansted.com sem sýnir fólki hvers konar tengiflug það getur fengið frá flugvellin- um,“ segir Geoff Colon en sem dæmi er hægt er að ferðast til fjörutíu áfangastaða eftir klukk- an 16 á föstudegi og koma heim á sunnudegi á Stansted. Ryan Air er eitt þekktasta lággjaldaflugfélag í Evrópu og var stofnað árið 1985. Í fyrstu flaug Ryan Air aðeins til fjögurra áfangastaða en í dag eru þeir 78. „Ryan Air gerði flugbransann mjög einfaldan. Hjá Ryan Air eru flogin fleiri flug á dag en hjá öðrum flugfélögum og eru flugin okkar á réttum tíma í 93 prósenta tilvika,“ segir Kell Ryan, fyrrum stjórnarformaður Ryan Air, en hann settist í helgan stein fyrir stuttu. „Í framtíðinni stefnum við á að spara enn meira til að bjóða fólki upp á lág fargjöld. Bráðum verður ekki hægt að halla sætum aftur í flugvélum okkar og gluggahlerar verða teknir út. Í staðinn fyrir sætisvasa verða auglýsingar,“ segir Kell Ryan og bætir við að baráttan um lægstu fargjöldin sé blóðug. „Sá sem býður lægstu fargjöldin vinnur.“ lilja@frettabladid.is Stansted-flugvöllur: Miðstöð lággjaldaflugfélaga í Evrópu Frá Stansted-flugvelli. Geoff Colon og Kell Ryan fyrir framan Stansted-flugvöll.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.