Fréttablaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 12
12 RÍKIÐ OG SVEITARFÉLÖG EIGA SAM- TALS 2.310 FYRIRTÆKI OG STOFNANIR Heimild Landshagir 2004 SVONA ERUM VIÐ „Það er bara allt ljómandi gott að frétta af mér,“ segir Kristín Rós Hákon- ardóttir, sundkona og háskólanemi. Hún er að læra að verða myndlistar- kennari og gerir það í Listaháskólan- um. „Námið gengur vel og ég útskrif- ast í vor.“ Kristín Rós tekur námið á tveimur árum í stað eins vegna Ólympíuleikanna sem voru í haust en þar stóð hún sig afburðavel og vann til fjölda verðlauna. Hún hlakkar til út- skriftarinnar og ekki síður vinnunnar í kjölfarið og hefur auðvitað í hyggju að kenna börnum myndlist. Kristín Rós málar mikið sjálf þeg- ar tími gefst til og eru verk hennar af öllum toga. „Ég mála bara það sem mér dett- ur í hug í það og það skiptið,“ segir hún en viðurkennir að lítið hafi gerst í þeim efnum að undanförnu. „Annars þarf ég að fara mála jóla- kortið sem ég sendi vinum og ætt- ingum.“ Hún æfir ekki sundið af kappi um þessar mundir, finnst gott að taka því rólega og slaka á. Hún þarf þó að slá í klárinn á nýju ári þegar mót- in hellast yfir á ný. Aðventan og jólin eru Kristínu Rós tilhlökkunarefni, enda er hún mikil jóla- og barnakona. „Ég geri talsvert af því að passa börn systkina minna í kringum jólin og finnst það mjög skemmtilegt. Er því mikil barnapía um það leyti árs.“ Rólegt í lauginni en námið tekur tíma HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR SUNDKONA 22. nóvember 2004 MÁNUDAGUR Mývatnssveitin aldrei fallegri en í frosti Frostið mældist 30 gráður í Mývatnssveit klukkan sex í gærmorgun. Upp úr hádegi hafði hlýnað og frostið var 22 gráður og klukkan fimm síðdegis var það 17 gráður. Fáir voru á ferli í sveitinni í gær en menn skruppu vitanlega í messu og gufubað eins og gengur. FROST Aldrei hefur hitastig mælst jafn lágt í Mývatnssveit í nóvem- bermánuði og í gær þegar mælir Veðurstofunnar sýndi mínus 30 gráður. Fyrri part dags var dimmt yfir sveitinni, frostþoka lá yfir og byrgði sunnusýn en upp úr hádegi höfðu geislar sólar betur í barátt- unni um athyglina og vörpuðu sér yfir ísilagt vatnið og nágrenni. Kuldinn hafði vitaskuld áhrif á mannlíf, flestir voru inni við en einstaka hætti sér út fyrir dyr ef erindið var brýnt eða hreyfiþörfin rík. Nokkrir sóttu messu á Skútu- stöðum í gær og jarðböðin á Jarð- baðshólum, rétt ofan við byggðina í Reykjahlíð, voru sæmilega sótt. Aðdáendur gufubaða segja enda að fátt sé meira hressandi en að vera til skiptist inni í heitri guf- unni og úti í bítandi kuldanum. Snæbjörn Pétursson í Reyni- hlíð gerir ekki mikið úr frostinu, hefur enda oft kynnst kuldanum í Mývatnssveit. Og hann kannast ekki við allar 30 gráðurnar sem Veðurstofan mældi, segir að ekki hafi verið nema 25,6 á mælinum hjá sér. „Hann hefur nú stundum þótt dálitíð skrítinn þessi mælir hjá Veðurstofunni. Þetta er bara stafrænn mælir og þeir eru víst svona. Páll Bergþórsson talaði ein- hvern tíma við mig og sagði að það ætti bara að leggja þessa mæla niður.“ Engu að síður telur Snæ- björn það rétt að frostið hafi ekki fyrr verið svona mikið í nóvem- bermánuði. Hann sjálfur bjóst ekki við að hreyfa sig af bæ í gær, nema þá að einhver nennti að skutla honum í jarðböðin. Hann langaði ekki á gönguskíði en brá sér á þau á laug- ardag og sagði það hafa verið hálf ómögulegt. „Skíði ganga heldur illa í svona miklu frosti. Ísinn á vatninu springur, upp kemur vatn og það myndast krap sem svo frýs neðan á skíðunum og maður situr bara fastur.“ Snæbjörn kallar það ekki mik- inn snjó þó um tuttugu sentri- metra jafnfallin mjöll sé yfir Mý- vatnssveit enda hafa menn séð það verra og jafnvel mikið verra. En fegurðin er mikil. „Mývatnssveit- in er aldrei fallegri en þegar svona er,“ segir Snæbjörn, „fegurðin er aldrei meiri en þegar allt er hvítt og ég man þegar maður var að sitja ofan á heyekjum á veturna hér í gamla daga, þá var gaman að horfa í kringum sig þegar allt var svona hvítt.“ Áfram verður kalt í Mývatns- sveit næstu daga, þó ekki jafn kalt og í gær. bjorn@frettabladid.is Á sérstöku kynningar verði Gólfmottur fyrir alla innganga Forvarnir í ræstingu Mán udag a til föstu daga frá k l. 8:0 0 til 18:00 Laug arda ga fr á kl. 10 :00 t il 14: 00 Nýr o pnun artím i í ver slun RV: R V 20 22 Ekki er gert ráð fyrir smíði nýs varðskips í fjárlögum næsta árs, eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær. Dómsmálaráð- herra segir ekkert vera ákveðið um hvenær vænta megi fregna af nýju skipi Landhelgisgæslunnar. Dagbjarti Sigurbrandssyni, starfsmanni Gatnamálastofu Reykjavíkur, finnst það slæmt. „Það er nauðsynlegt að verja landhelgina okkar og gæta að því að þar fari allt fram eins og það á að gera,“ segir Dagbjartur, sem var til sjós í eina tíð og veit því hve mikilvægt er að Gæslan sé búin bestu fáanlegu tækjum. „Ég vil að það verði smíðað nýtt og öfl- ugt varðskip,“ segir hann og tekur þar væntanlega undir orð margra, í það minnsta forystumanna sjómanna sem tjáðu sig um efnið í blaðinu í gær. ■ DAGBJARTUR SIGURBRANDSSON Vill varðskip NÝTT VARÐSKIP EKKI Í KORTUNUM SJÓNARHÓLL FR ÉT TA B LA Ð IÐ /F IN N U R B AL D U R SS O N FROSTSTILLUR VIÐ MÝVANT Aldrei hefur mælst jafnmikið frost í Mývatnssveit í nóvembermánuði en mælir Veðurstofunnar sýndi 30 stiga frost
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.