Fréttablaðið - 22.11.2004, Page 23

Fréttablaðið - 22.11.2004, Page 23
3MÁNUDAGUR 22. nóvember 2004 Lofthreinsitæki Nýtt! ECC ehf Skúlagötu 17 101 Reykjavík Sími 511 1001 ecc@ecc.is www.ecc.is Upplýsingar í síma 511 1001 Opið frá 09.00 til 18.00 hreinsar loftið, eyðir lykt og drepur sýkla Kröftugt jónastreymi Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða m.a. ryki, mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi útfjólublár lampi Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur og eyðir lykt (t.d. reykinga- og matarlykt) Kröftug ryksöfnun Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhrein- indum í stað hefðbundins fílters. Þrjú skref HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós Ljós sýna hvort þrífa þarf stál blöðin eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Mikill orkusparnaður Vegna orkusparandi hönnunar notar tækið aðeins 28W/klst. Undanfarin ár hefur verið vin- sælt, sérstaklega hjá ungu fólki, að flota hjá sér gólfin og halda þeim þannig án frekara gólfefnis. Ferlið við að flota er mismunandi eftir aðstæðum á hverjum stað og ráða þar þættir eins og hæðarmis- munur, undirlag og fleira. Nauð- synlegt getur verið að slípa niður undirlag þess flatar sem á að flota og áður en hafist er handa þarf að setja inn hæðarpunkta svo allt verði þetta nú slétt og fellt að end- ingu. Flotefni eru mismunandi að gerð, útliti og eðliseiginleikum, og því nauðsynlegt að leita til fag- manna varðandi val á hvað hentar hverju rými fyrir sig. Flotuð gólf geta tekið á sig mis- munandi myndir eftir því hvernig flotið er meðhöndlað eftir að það hefur verið lagt. Lakk er venjulega borið á flot- að gólfið og hægt er að fara marg- ar leiðir með því. Lakk er til í mörgum glansstigum, hægt er að blanda lit út í lakkið og svo er hægt að nota mismunandi aðferð- ir við að bera það á sem gerir áferðinar ólíkar. Ein af nýrri útfærslum á floti er að skorið er í gólfið eftir að það þornar, vinsælast hefur verið að skera þannig að útkoman sé eins og stórar flísar þeki gólfflötinn en að sjálfsögðu er hægt að fara ýmsar leiðir við þessa útfærslu, til dæmis minni flísar, tígla og mismunandi litaðar fúgur. Nagli, hamar, sög Komdu vinnuaðstöðunni í lag Þú ert loksins búin/n að fá gott pláss fyrir verkfærin þín. Vinnu- aðstaðan er ekki eins stór og þú hefðir helst kosið en hún verður að duga. Í litlu plássi er mikil- vægt að skipuleggja svæðið vel en ekki hafa það eins og rusla- hauginn sem þú finnur í geymsl- unni. Ef þér líður vel í vinnuaðstöðunni þá verða framkvæmdir þínar mun auðveldari og gleðilegri. • Lýsing. Hafðu næga lýsingu og góða. Komdu ljósunum þannig fyrir að þú rekir hvorki þig né verkfærin þín í þau. • Nældu þér verkfærasvuntu. Stundum þarftu væntanlega að ferðast með verkfærin þín fyrir utan vinnuaðstöðuna þegar ættingjar og vinir upp- götva hve handlaginn þú ert. Fáðu þér góða verkfærasvuntu svo vel fari um öll verkfærin. • Keyptu eða smíðaðu sögunar- trönur. Fáðu þér að minnsta kosti tvær trönur svo sögunin verði leikur einn. • Þrífðu og skrúbbaðu. Hafðu góða loft- ræstingu í vinnuaðstöðunni og hafðu alltaf sóp, ryksugu og fægiskúffu við höndina. Þrífðu alltaf eftir hvert verk svo óhreinindin safnist ekki upp. • Smíðaðu vinnuborð. Borðið getur nýst í alls kyns dundur og þú getur ráðið hve stórt það er. Það fer allt eftir stærð vinnuaðstöðunnar. • Fáðu þér verkfærakassa. Ef þú átt mikið af tækjum og tólum skaltu fá þér stóran kassa með fullt af hólfum. Ekki blanda öllum skrúfum og nöglum í einn haug heldur reyndu að flokka eftir bestu getu. Og gangi þér vel! Flotuð gólf í tísku Mismunandi aðferðir notaðar við að flota SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.