Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 8
8 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Tungutækniverkefni menntamálaráðuneytisins lýkur um áramótin:
Tölvur munu skilja mælt íslenskt mál
TÖLVUR Lokið hefur verið við gerð
fyrsta íslenska talgreinisins. Í
fréttatilkynningu kemur fram að
Hjal sé hugbúnaður sem geri tölv-
um kleift að skilja talað íslenskt
mál, til dæmis í gegnum síma.
Verkefnið var unnið af íslensk-
um og erlendum fyrirtækjum
í samstarfi við sérfræðinga
Háskóla Íslands. Verkefnið teng-
ist Tungutækniverkefni mennta-
málaráðuneytisins sem lýkur um
áramótin. Yfir 2.000 einstaklingar
tóku þátt í verkefninu með því að
lesa upp texta í síma. Það var gert
til að þjálfa tölvurnar í að skilja
mismunandi raddir.
Nú er unnið að því að nýta tal-
greininn í símaþjónustur sem
svara fyrirspurnum sem koma
með töluðu máli í síma. Er Hjali
gert að koma í staðinn fyrir síma-
þjónustur þar sem fólki er sagt að
slá á 1 fyrir þetta og 2 fyrir hitt.
Í tengslum við Tungutækni-
verkefnið hefur einnig verið lokið
við fyrstu beygingarlýsingu ís-
lensks nútímamáls. Það verkefni
var unnið á Orðabók Háskólans
og inniheldur beygingar yfir 170
þúsund íslenskra orða á tölvu-
tæku formi. Fólk getur kynnt
sér þetta nánar á heimasíðunni
lexis.hi.is - th
Aðstaðan í flug-
stöð til skammar
Flugstöð Reykjavíkurflugvallar var byggð sem bráðabirgðalausn
fyrir um hálfri öld. Um skeið hefur verið hugað að byggingu
samgöngumiðstöðvar austan megin vallar.
SAMGÖNGUR Verið er að kanna hug-
myndir um gerð samgöngumið-
stöðvar sem komið gæti í stað flug-
stöðvarinnar við Reykjavíkurflug-
völl, en hún ber þess greinilega
merki að hafa verið bráðabirgða-
húsnæði um áratuga skeið.
„Við höfum haldið því fram
lengi að ekki þurfi bara nýja flug-
stöð heldur þurfi að athuga miklu
betur þörfina á samgöngumiðstöð í
Reykjavík, sem næði til flugs,
rútna eða bíla,“ segir Jón Karl
Ólafsson, framkvæmdastjóri Flug-
félags Íslands. „Eins og staðan er í
dag er þetta okkur allt til skammar,
sérstaklega gagnvart erlendum
ferðamönnum.“ Jón Karl segir
flugstöðina augljóslega barn síns
tíma, byggða til bráðabirgða fyrir
um 50 árum. „Hún átti að þola að
hámarki kannski hundrað þúsund
farþega, en er að taka í gegnum sig
tæplega 500 þúsund farþega á ári,
þannig að auðvitað er aðstaðan
þarna sprungin fyrir löngu síðan.“
Jón Karl segir að unnið hafi ver-
ið að því að koma af stað viðræðum
milli aðila sem reka samgöngufyr-
irtæki. „Svo held ég að borgin ætti
að sjá sér hag í því líka að setja upp
einhvers konar miðstöð þar sem
fólk getur keypt, eða að minnsta
kosti fengið upplýsingar um, þá
þjónustu sem er í boði, hvort sem
flugið verður þarna áfram eða
ekki. Það skiptir svo sem ekki máli
í þessu samhengi,“ segir hann og
telur að slíka samgöngumiðstöð
mætti helst staðsetja niðri undir
Nauthólsvík, eða á svæðinu austan
megin flugvallar. „Við erum þeirr-
ar skoðunar að þetta sé nokkuð
sem ætti að skoða og það sem
fyrst.“
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjórnar Ís-
lands, segir nefnd á vegum sam-
gönguráðuneytisins hafa um skeið
skoðað hugmyndir um byggingu
samgöngumiðstöðvar í Reykjavík.
Hann segir flugstöðvarhúsið upp-
haflega hafa verið byggt af breska
hernum, en Bretar afhentu þjóð-
inni völlinn og tengdar byggingar
laugardaginn 6. júlí 1946. „Síðan er
margsinnis búið að staga og bæta í
bygginguna,“ segir Heimir Már og
telur öllum ljóst sem sæki flugstöð-
ina heim að hún verði tæpast köll-
uð reisuleg og eigi orðið erfitt með
að sinna hlutverki sínu, bæði hvað
varði innanlandsflug og flug til
Færeyja og Grænlands. „Það hefur
þó með útsjónarsemi tekist að
koma þarna fyrir vopnaleitarbún-
aði og öðru sem þurfti.“ - óká
Tvö kíló af fíkniefnum:
Krefst fimm
ára fangelsis
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari taldi
fjögurra til fimm ára fangelsi
hæfilegan dóm þegar refsiákvæði
voru reifuð í gær í máli gegn
manni sem hefur játað innflutn-
ing á tæpu kílói af kókaíni og
tæpu kílói af amfetamíni. Ekki
var þörf á vitnaleiðslum fyrir
dómi þar sem játning í málinu lá
fyrir.
Skýrsla var tekin af manninum
fyrir dómi og vildi hann ekki gefa
upp fyrir hvern hann flutti fíkni-
efnin inn. Maðurinn hefur setið í
gæsluvarðhaldi frá því hann var
tekinn með fíkniefnin í Leifsstöð í
maí. - hrs
■ EVRÓPA ■ EVRÓPA
SVONA ERUM VIÐ
FAGNAÐ Í NABLUS
Stuðningsmenn Fatahhreyfingarinnar fögn-
uðu í gær sigri sínum í stúdentaráðskosn-
ingum í Al-Najah háskóla í Nablus á Vest-
urbakkanum. Sigurinn var sá fyrsti í átta ár
og er talinn boða gott fyrir Mahmoud
Abbas, leiðtoga Fatah, í aðdraganda for-
setakosninganna 9. janúar.
– hefur þú séð DV í dag?
„Ég skila
pening-
unum
ekki”
Kristján segir Íslendinga
vera sveitalubba
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur,
ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
Mercedes Benz ML 270
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
26
66
9
1
1/
20
04
Fyrst skráður: 09.2002. Ekinn: 48.000 km. Eldsneyti: Dísil. Vél: 2,7
sjálfskiptur. Litur: Gylltur mettalic. Búnaður: Leður, sóllúga, 7 manna,
vindskeið, 18” álfelgur o.mfl.
Verð: 5.390.000 kr.
Tilboðsverð: 4.990.000 kr.
BÓTAKRÖFU HAFNAÐ Þýskur að-
alsmaður sem missti jarðir og
hús þegar Sovétmenn hernámu
Þýskaland fær engar bætur fyrir
missi sinn. Hann krafðist tæpra
níu milljarða króna í bætur en
þýskur dómstóll hafnaði kröfu
hans. Þýsk stjórnvöld höfðu áður
greitt lægri bætur og þótti dóm-
stólnum þær duga.
DÓMUR JUPPE MILDAÐUR Alain
Juppe, fyrrum forsætisráðherra
Frakklands, fékk fjórtán mánaða
skilorðsbundinn fangelsisdóm
þegar hæstiréttur Frakklands tók
fyrir brot hans gegn lögum um
fjármögnun stjórnmálaflokka.
Hæstiréttur stytti áðurgenginn
dóm undirréttar um fjóra mán-
uði.
NEYTENDAMÁL Ekki er hægt að
sanna að fiskalýsi dragi úr líkun-
um á hjartasjúkdómum ef marka
má niðurstöðu nýlegrar rann-
sóknar á kostum lýsis. Samkvæmt
frétt á fréttavef Politiken telur
Cochrane-stofnunin, sem gerði
rannsóknina, að of mikið hafi
verið gert úr heilsusamlegum
áhrifum lýsis og omega-3 fitusýra.
Talið hefur verið að hæfileg lýs-
isneysla hafi góð áhrif á hjartað og
komi í veg fyrir æðakölkun.
Jón Ögmundsson, gæðastjóri
Lýsis, segir að hundruð rannsókna
hafi verið gerðar á áhrifum fitu-
sýra á ýmsa sjúkdóma. Bandaríska
lyfjastofnunin hafi til dæmis skoð-
að allar rannsóknir á þessu sem
hún hafi komist yfir og niðurstöð-
ur hennar bendi til að omega-3
fitusýrur hafi heilsusamleg áhrif.
Hún hafi þess vegna veitt fram-
leiðendum heimild til að merkja
vörur sem innihalda fitusýruna
með fullyrðingu um að þær dragi
úr líkum á hjartasjúkdómum. Jón
segir að niðurstöður rannsókna
Cochrane-stofnunarinnar verði
kannaðar á næstu dögum. - ghg
ORÐABÓK HÁSKÓLANS
Á heimasíðu Orðabókarinnar eru í fyrsta
sinn aðgengilegar allar beygingarmyndir
170 þúsund íslenskra orða.
Rannsóknir:
Heilsusamleg áhrif lýsis dregin í efa
LÝSI
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að
of mikið hafi verið gert úr heilsusamlegum
áhrifum lýsis.
Í FLUGSTÖÐINNI Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI
Ýmislegt innandyra á Reykjavíkurflugvelli er farið að láta á sjá, svo sem áklæði sumra sæta. Kann það að vera til marks um að umferð
um bygginguna sé margfalt meiri en hún á að þola.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
JÓN KARL ÓLAFSSON
„Þetta er flottasta flugstöð sem við eigum
í Reykjavík,“ sagði framkvæmdastjóri Flug-
félags Íslands um flugstöðina á Reykjavík-
urflugvelli og hló við.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N