Fréttablaðið - 02.12.2004, Side 10
2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Leyniskýrsla Bandaríkjahers sýnir að vitað var um
misþyrmingar fyrr en herinn heldur fram:
Vissu af fangamis-
þyrmingum fyrir ári
BANDARÍKIN Háttsettir herforingj-
ar í Bandaríkjaher voru varaðir
við því fyrir ári síðan að sérsveit-
armenn og leyniþjónustumenn
misþyrmdu föngum í Írak. Við-
varanirnar birtust í leynilegri
skýrslu sem var tekin saman á
vegum hersins, en þrátt fyrir
hana hefur yfirstjórn Bandaríkja-
hers haldið því fram að henni hafi
fyrst orðið kunnugt um misþyrm-
ingarnar í byrjun þessa árs.
Stuart Herrington, fyrrum
yfirmaður í Bandaríkjaher, tók
skýrsluna saman á sínum tíma en
bandaríska dagblaðið Washington
Post sagði frá henni í gær. Þar
kemur fram að Herrington varaði
við því fyrir ári síðan að upp úr
kynni að sjóða og að bandarískir
hermenn gætu búið við meiri
hættu en áður ef upp um mis-
þyrmingarnar kæmist.
Í skýrslunni kemur enn fremur
fram að föngum hafi verið mis-
þyrmt víða í Írak. Það stangast á
við afstöðu yfirstjórnar hersins,
sem hefur haldið því fram að
fangamisþyrmingar takmörkuð-
ust við fangelsið Abu Ghraib. ■
KJARAMÁL Launamunur kvenkyns
og karlkyns starfsmanna í stjórn-
arráðinu er mestur ef miðað er við
þá hópa sem kjararannsóknir
opinberra starfsmanna ná til, sam-
kvæmt Fréttariti kjararannsókn-
arnefndar opinberra starfsmanna,
KOS. Þetta gildir um mánaðar-
tekjur síðustu sex mánaða ársins
2003 og fyrstu sex mánuði ársins
2004. Samkvæmt þeim munar um
þriðjungi á konum og körlum.
Karlar voru með 300.408 krónur í
tekjur í júní á þessu ári en konur
208.605. Þarna munar 30,6 pró-
sentum. Ef litið er á dagvinnulaun-
in er munurinn hinsvegar hverf-
andi og þar hafa konurnar yfir-
höndina. Karlar eru þá með
174.432 og konurnar 178.382 krón-
ur á mánuði. Karlarnir vinna því
greinilega mun meiri yfirvinnu en
konurnar eða sem nemur rúmum
þriðjungi af mánaðartekjum sín-
um og bæta sér upp launamuninn
með því og rúmlega það.
„Við erum að skoða þetta þessa
dagana,“ segir Þórveig Þormóðs-
dóttir, formaður Félags starfs-
manna stjórnarráðsins. „Við erum
fyrst og fremst skrifstofufólk en í
félaginu er líka karlastétt sem
er dálítið á skjön við skrifstofu-
fólk, nefnilega ráðherrabílstjórar.
Launakjör ráðherrabílstjóranna
eru á allt öðrum grunni en skrif-
stofufólksins og það er hluti af
skýringunni. Störfin eru mjög ólík
og launuð á mismunandi forsend-
um. Það er krafa okkar að fá
launakönnun svo að við getum
skoðað þetta almennilega. Það er
mjög erfitt fyrir félagið að skoða
svona mál því að við þekkjum ekki
þá samninga sem eru í ráðuneyt-
inu. Í Fréttaritinu sjáum við heild-
arlaunin og dagvinnulaunin en
ekki neitt nánar. Hjá launadeild-
inni fást bara upplýsingar um
launaflokka félagsmanna, ekki
yfirvinnu, en það er alveg á hreinu
að við viljum ekki hafa launamun í
þessu félagi,“ segir hún.
Fyrsti samningafundur starfs-
manna í stjórnarráðinu og launa-
nefndar ríkisins var í gær. Um 300
menn, sem ekki eru með háskóla-
próf, eru í félaginu.
-ghs@frettabladid.is
HUNDARÆKT Hundaræktin í Dals-
mynni hefur sent kvörtun til um-
boðsmanns Alþingis vegna með-
ferðar Umhverfisstofnunar á
málefnum búsins.
Kærumál hafa gengið á víxl
vegna búsins í Dalsmynni. Í sept-
ember bað lögmaður þess um lög-
reglurannsókn á því hvort skrif
Magneu Hilmarsdóttur, á heima-
síðu sem hún hefur haldið úti
gegn búinu, brytu í bága við
ákvæði hegningarlaga. Umrædd
Magnea hafði áður kært búið til
lögreglunnar, en þeirri kæru var
vísað frá.
Í kvörtun lögmanns Dalsmynn-
is til umboðsmanns er þess sér-
staklega óskað að kannað verði
hvort jafnræðisregla stjórnsýslu-
laga hafi verið brotin þar sem
skjólstæðingur sinn virðist vera
eini hundaræktandinn í landinu
sem gert hafi verið að sæta
ákveðnum reglum. Vísað er til
krafna um stærð búra og fjölda
hunda í búrum. Er því haldið fram
að um íþyngjandi og óvandaða
stjórnsýsluhætti sé að ræða að
setja slíkar kröfur fram rúmu ári
eftir að starfsleyfi hafi verið
gefið út búinu til handa.
Loks er kvartað yfir að bréf
Umhverfisstofnunar um málefni
búsins séu afhent utanaðkomandi
aðilum sem notfæri sér þau til að
koma höggi á búið á veraldarvefn-
um. - jss
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
25
47
1
09
/0
4
Fyrir
okkur hin
Honey Nut Cheerios er fyrir
okkur sem viljum
morgunkorn sem gefur
náttúrulegan sætleika
og er jafnframt fullt af
hollum trefjum og vítamínum.
FANGAMISÞYRMINGAR
Í ABU GHRAIB
Föngum var misþyrmt víða í Írak sam-
kvæmt leyniskýrslu hersins, ekki bara í Abu
Ghraib eins og yfirstjórn hersins heldur
fram.
SÓLVEIG ÞORMÓÐSDÓTTIR
„Það er alveg á hreinu að við viljum ekki hafa launamun í þessu félagi,“ segir Sólveig Þor-
móðsdóttir, formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins.
Karlar með þriðjungi
hærri tekjur en konur
Karlkyns starfsmenn í stjórnarráðinu hafa 30 prósentum hærri tekjur en
konurnar. Konurnar eru þó með hærri dagvinnulaun en karlar. Þarna
munar mestu um ráðherrabílstjórana.
Enn ganga kærumálin í hundaræktinni:
Dalsmynni kvartar
til umboðsmanns
HUNDARNIR
Hundarnir og ræktunin í Dalsmynni hafa
lengi verið þrætuepli meðal hundaræktenda.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is