Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 22
Eitt helzta aðalsmerki nútímans
er þetta: það verður æ auðveld-
ara að taka lífinu létt. Þessu
veldur vaxandi velsæld og aukin
hagkvæmni á öllum sviðum,
einnig þar sem menn héldu
lengi vel, að engum tæknifram-
förum sem orð er á gerandi yrði
nokkurn tímann við komið.
Þessi hugsun á við um ýmsa
þjónustu, t.d. listir (það er
a.m.k. tuttugu manna verk að
leika Skugga-Svein á sviði og
hefur alltaf verið, og Hamlet),
en hún á ekki við um vísindi, því
að þar hefur verkfærunum
fleygt fram og afraksturinn
aukizt eftir því.
Hvað um kennslu? Það hefur
löngum tíðkazt að líta svo á, að
úr því að kennsla er þjónusta
eins við annan, þá sé engrar um-
talsverðrar framleiðniaukning-
ar að vænta á þeim vettvangi,
ekki frekar en í annarri per-
sónulegri þjónustu eða listum:
það þarf einn kennara í bekk til
að stumra yfir svo og svo mörg-
um nemendum, og bekkjar-
stærðina er ekki hægt að auka
endalaust. Sem sagt: lítil sem
engin framleiðniaukning þar til
langs tíma litið.
Og þá gerðist það, að tölvur
héldu innreið sína í kennslustof-
urnar eins og þær höfðu áður
rutt sér til rúms í víngarði vís-
indanna. Af þessu leiddi, að nú
er hægt að koma meira náms-
efni til skila á minni tíma en
áður ñ og einmitt þetta er auð-
kenni aukinnar hagkvæmni: að
nota nýjar aðferðir til að kreista
meiri afurðir úr gefnum aðföng-
um. Útsendingarkrafturinn í
kennslustofunum hefur aukizt
til muna. Kennarar þurfa ekki
lengur að krota með krít á töflu:
þeir geta varpað texta og mynd-
um á tjald eða vegg eftir smekk
og þörfum, og það er bæði fljót-
legra og skýrara en að skrifa á
töflu. Nemendur þurfa ekki
lengur að sitja sveittir við að
skrifa upp eftir kennaranum,
a.m.k. ekki í sama mæli og áður:
þeir sækja námsefnið á netið.
Kennarar og nemendur þurfa
sjaldnar en áður að sækja bóka-
söfn, því að þau bjóða viðskipta-
vinum sínum síbatnandi heim-
sendingarþjónustu á netinu; það
gerir t.d. Þjóðarbókhlaðan með
miklum brag. Móttökuskilyrðin
í skólunum hafa batnað í hátt
við útsendingarskilyrðin eftir
þeirri einföldu reglu, að menn
taka betur á móti góðri kennslu
en vondri.
Þess er þó varla að vænta, að
móttökugetan í skólastofunum
aukist til jafns við útsendingar-
getuna, því að mannshugurinn
þarf að virða tiltekin hraða-
mörk, bæði að ofan og neðan.
Nýjar kennsluaðferðir storka
efri hraðamörkunum, því að nú
þurfa kennarar að gæta sín á því
að fara ekki fram úr nemendum
sínum í krafti nýrrar kennslu-
tækni. Gömlu aðferðirnar sam-
rýmdust neðri hraðamörkunum
hins vegar ekki nógu vel, eða
svo hefur mér sýnzt. Þess vegna
hefur mörgum leiðzt í skóla:
dræm útsending við erfið skil-
yrði hélt aftur af námshraðan-
um, svo að hugur nemendanna
komst ekki á flug. Og þess
vegna leiðist mörgum að lesa:
þeir hafa ekki lært að lesa nógu
hratt. Mönnum leiðist síður í
bíó, því að þar er hraðinn meiri.
Efnið, sem góður leikstjóri kem-
ur til skila í eins og hálfs tíma
kvikmynd, er jafnan meira en
rúmast í jafnlöngum fyrirlestri.
Hvaða kennari treystir sér til
að keppa við Kösublönku um
upplýsingamagn á mínútu? Því
mannshugurinn er eins og reið-
hjól: hann verður að ná tiltekn-
um hraða til þess að fá notið sín
til fulls.
Hvernig eigum við að skipta
með okkur afrakstri aukinna af-
kasta í kennslu? Eigum við að
taka afraksturinn út í meiri og
betri menntun að gefinni skóla-
göngu? Eða eigum við heldur að
fara milliveginn og nýta fram-
leiðniaukninguna m.a. til að
stytta skólavistina? Ég hallast
frekar að síðari kostinum, og
það gera stjórnvöld, enda hefur
nú verið ákveðið að stytta nám
til stúdentsprófs um eitt ár. Ég
hef áður lýst því á þessum stað,
að það hefði verið heppilegra að
stytta grunnskólann frekar en
framhaldsskólann, af því að
slakinn er meiri í grunnskólan-
um og meira svigrúm þar til
samþjöppunar og styttingar
náms.
Eigi að síður virðist það ljóst,
að það námsefni, sem menn eiga
að hafa tileinkað sér við stúd-
entspróf um tvítugt með gamla
laginu, væri flestum hægðar-
leikur að ná valdi á a.m.k. tveim
árum fyrr í krafti nýrra
kennsluhátta ñ og þá er ég ekki
aðeins að tala um tölvur,
heldur einnig kennaramenntun,
kennslubækur og önnur náms-
gögn, sem hafa batnað til muna í
flestum greinum. Menn læra
meira ñ og hraðar! ñ af góðum
bókum en vondum, og skemmta
sér um leið. Það er því hægt að
gera hvort tveggja í einu: að
auka við og bæta menntun sína
og eyða færri árum ævinnar á
skólabekk. Stefnum þangað. ■
V arla var fjármálaráðherrann búinn að sleppa orðinu umhelgina um að skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar hefðu eig-inlega verið þöguð í hel, þegar hann lagði fram frumvarp á
mánudagskvöld um hækkun á gjald af áfengi og tóbaki. Samkvæmt
því á að hækka áfengisgjald og tóbaksgjald um 7 af hundraði og
það mun hafa í för með sér að smásöluverð á sterku víni hækkar
um 5,6 prósent og tóbak mun hækka um 3,7 prósent í smásölu að
jafnaði. Þetta frumvarp var lagt fram um leið og Vínbúðum var
lokað á mánudag og það var orðið að lögum á þriðjudagsmorgun
þegar þær voru opnaðar að nýju. Geir Haarde fjármálaráðherra
sagði þegar hann fylgdi frumvarpinu úr hlaði að þessar hækkanir
væru í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta
ár. Gjaldið á sterkt áfengi og tóbak hefur ekki hækkað frá því í
nóvember 2002. Það á að skila ríkissjóði 340 milljónum króna í tekj-
ur á næsta ári. Það er athyglisvert að áfengisgjald á létt vín og bjór
hækkar ekki að þessu sinni, og er það í samræmi við þá stefnu
stjórnvalda að stýra neyslunni yfir í þessar tegundir áfengis.
Stjórnarandstaðan á Alþingi klofnaði í afstöðu sinni til frum-
varpsins við afgreiðslu þess á mánudagskvöld. Fulltrúi Vinstri
grænna í efnahags- og viðskiptanefnd greiddi atkvæði með stjórn-
arflokkunum þótt um væri að ræða skattahækkun. Gera má ráð
fyrir að þar hafi Álfheiður Ingadóttir varaþingmaður verið að
greiða atkvæði með þessari hækkun til þess að sporna við reyking-
um og neyslu sterks áfengis. Fulltrúar Samfylkingarinnar lýstu sig
hins vegar mótfallna frumvarpinu, enda væri hér á ferðinni skatta-
hækkun sem hefði í för með sér hækkun neysluvísitölunnar og þar
með myndu skuldir landsmanna hækka um fast að einum milljarði
króna. Þá benti Samfylkingin líka á tvö önnur skattahækkunar-
frumvörp sem voru til umræðu á mánudaginn; um aukatekjur rík-
issjóðs og hækkun bifreiðagjalds og aðrar hækanir sem ríkis-
stjórnin samþykkti á síðasta ári. Samtals má meta allar þessar
hækkanir í ár og í fyrra á allt að fimm miljarða króna að mati Sam-
fylkingarinnar. Það er hærri upphæð en sem nemur boðuðum
skattalækkunum ríkisstjórnarinnar á næsta ári, segir formaður
Samfylkingarinnar.
Ekki verður framhjá því litið að á sama tíma og stjórnarand-
staðan gagnrýnir skattalækkunartillögur ríkisstjórnarinnar standa
bæði fullltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna að hækkun útsvars
og fastaeignagjalda á Reykvíkinga. Þá var einnig ætlun Reykjavík-
urlistans að hækka leikskólagjöld, en það mál er enn í biðstöðu.
Annars vegar er því verið að lækka tekjuskatt og eignarskatt á veg-
um ríkisins á sumum þjóðfélagshópum en hins vegar hækka álög-
ur á íbúa stærsta sveitarfélags landsins. Spurningin er þá hvort
sumir skattgreiðendur eru ekki í nákvæmlega sömu sporum fyrir
og eftir lækkun ríksins og hækkun Reykjavíkurborgar. ■
2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Það er athyglisvert að áfengisgjald á létt vín og bjór
hækkar ekki að þessu sinni.
Skattar hækka
og lækka
FRÁ DEGI TIL DAGS
Ekki verður fram hjá því litið að á sama tíma og
stjórnarandstaðan gagnrýnir skattalækkunartillögur rík-
isstjórnarinnar standa bæði fulltrúar Samfylkingar og
Vinstri grænna að hækkun útsvars og fastaeignagjalda á
Reykvíkinga.
,,
Í DAG
FRAMFARIR Í KENNSLU
ÞORVALDUR
GYLFASON
Hvaða kennari
treystir sér til að
keppa við Kösublönku um
upplýsingamagn á mínútu?
,,
4,15%
Kynntu þér kostina við íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá
sérfræðingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eða á
fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Íbúðalán
Móttökuskilyrði í skólum
Samráðs krafist
Eftir meint brot olíufélaganna á sam-
keppnislögum hafa stjórnvöld bannað
stjórnendum þeirra allt samráð og
reyna eftir megni að koma í veg fyrir
að þeir hittist án þess að opin-
berir siðgæðisverðir séu í ná-
grenninu til að fylgjast með
tali þeirra og látbragði. Þess
vegna kemur það á óvart að
fyrir stuttu síðan barst félög-
unum bréf frá iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu þar
sem beinlínis er krafist
samráðs félaganna um til-
nefningu fulltrúa í orku-
spárnefnd ráðuneytisins.
„Hér með er þess óskað að
olíufélögin fjögur, Atlants
olía ehf., Olíufélagið ehf., Olíuverslun
Íslands hf. og Skeljungur hf. komi sér
saman um einn fulltrúa í nefndinni“,
segir í bréfinu. Spurningin er hvort
þetta skapi ekki ákveðna hættu...
Báknið er burt
Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar,
félags ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, hefur sent fjármálaráðherra og fjár-
laganefnd Alþingis sparnaðartillögur fé-
lagsins í tengslum við afgreiðslu fjár-
laga næsta árs. Gera tillögurnar ráð
fyrir því að hægt sé að draga saman
seglin í ríkisrekstrinum um rúma 34
milljarða króna, hvorki meira né
minna! Það eru næstum 119 þúsund
krónur á hvern Íslending og hálf millj-
ón á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
Víða er komið við í tillögunum en í
fréttatilkynningu til fjölmiðla er sérstök
athygli vakin á niðurfellingu framlaga til
Listskreytingasjóðs, Útflutningsráðs,
grænmetisframleiðenda, biblíuþýðinga,
Félagsmálaskóla alþýðu, Ferðamála-
ráðs, landkynningarskrifstofa erlendis,
ferðaþjónustu, sendi-
ráðs Íslands í Mapútó
og Byggðastofnunar.
Fari skjálfti um ein-
hverja sem þetta
lesa geta hinir sömu
tekið ró sína. Venju
samkvæmt munu eng-
ar tillögur
Heimdallar fá
náð fyrir augum
alþingismanna.
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI
RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is
SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS