Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 11
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 60 stk.
Keypt & selt 31 stk.
Þjónusta 33 stk.
Heilsa 9 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 13 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 16 stk.
Atvinna 15 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagurinn 2. des.,
337. dagur ársins 2004.
Reykjavík 10.49 13.17 15.45
Akureyri 10.57 13.02 15.06
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Tja ... fyrst kemur upp í hugann silfur-
hálsmenið sem ég splæsti á mig í Banda-
ríkjunum í sumar. Það er stórt, Bárulegt,
með laufblaði enda er ég líka fædd að vori.
Mér finnst það algjört æði og nota það
mikið spari. Ég keypti það af listakonunni
Lindu Van Harte. Hún býr til ótrúlega
fallega silfurskartgripi,“ segir Bára en
skemmtileg saga er á bak við hálsmenið.
„Ég hitti Lindu á Common Ground-hátíð-
inni í Westminster nálægt Baltimore í júlí
síðastliðnum. Ég heimsótti hana en hún býr
í yndislegri sveit í litlu húsi, gamalli póst-
stöð sem var byggð fyrir borgarastyrjöld-
ina, þar er hún með vinnustofu sína í úti-
húsi. Ég varð líka að heilsa upp á geitina
hennar Benjamín og fóðra hana með blöð-
um af grátvíði. Einnig sá ég óvæntan gest í
garðinum hennar, lítinn dádýrskálf.“
Bára hefur ekki alveg skilið við lista-
konuna. „Nei, ég býst við að hitta Lindu
aftur næsta sumar og þá ætla ég að kaupa
fleiri skartgripi hjá henni,“ segir Bára,
sem er ekki mikil tískufrík. „Ég er ekkert
voða dugleg að fylgja tískustraumum. Ég
hef í gegnum tíðina verslað mikið á mörk-
uðum erlendis. Ég hef verið mikið í
Englandi síðastliðin tvö ár og þar hef ég
stundum keypt föt á góðu verði í verslun-
um sem góðgerðarstofnanir reka. Þar
kennir ýmissa grasa og það er gaman að
gramsa,“ segir Bára, sem hefur gert góð
kaup í þannig verslunum. „Í sumar fann ég
einmitt í slíkri búð þunna, dökkgula gollu
sem ég hef notað mikið. Það var gott að
vera í henni til að verjast sólbruna á hand-
leggjunum og inni á stöðum með mikilli
loftkælingu. Hér heima á Fróni smeygi ég
mér gjarnan í hana þegar ég þarf að vera
snyrtilega klædd.“ ■
Fóðraði geitina Benjamín
ferdir@frettabladid.is
Sala á flugmiðum á netinu hjá
Flugfélagi Íslands hefur vaxið jafnt
og þétt. Nú eru um 67 prósent far-
miða félagsins keypt á netinu.
Samkvæmt fréttum á vef félagsins
stefnir í að heildarsala á netinu
verði ekki undir 1,3 milljörðum
króna á þessu ári og hefur vaxið
um rúmlega þrjátíu prósent síðan
á síðasta ári. Á næstu vikum mun
Flugfélag Íslands taka í notkun nýja
uppfærslu á bókunarkerfi sínu og
mun það væntanlega auka enn
möguleika á netinu.
Icelandair hefur opnað nýja
setustofu í Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar fyrir farþega sem ferðast á við-
skiptafarrými. Rýmið er um 570
fermetrar á stærð, sem er tvöfalt
stærra en setustofan sem fyrir var.
Boðið er upp á ýmis þægindi og af-
þreyingu í stofunni, til dæmis bar
og veitingastaði, fullkominn tækni-
búnað og fjölbreytta aðstöðu til
vinnu, slökunar og afþreyingar.
Iceland Express býður upp á
tvær gerðir af jólagjafabréfum sem
henta vel í jólapakkann. Annars
vegar er jólagjafabréf að verðmæti
16.990 krónur sem gildir í flugferð
fram og til baka til
London eða Kaup-
mannahafnar. Hins
vegar eru gjafabréf á
verðbilinu tvö þúsund
til fimmtíu þúsund krón-
ur sem gilda sem inneign að
eigin vali í allar flugferðir Iceland
Express til og með 31. desember
2005. Allir sem kaupa jólagjafabréf
á netinu eiga möguleika á að fá
sérstakan jólaglaðning í kaupbæti.
Þann 20. desember verður dregið
úr nöfnum þeirra sem keypt hafa
gjafabréf á netinu og vinnings-
hafinn fær HP IPAQ-lófatölvu í
verðlaun. Hægt er að panta gjafa-
bréf á vefsíðunni icelandexpress.is.
Silfurhálsmenið er í algjöru uppáhaldi hjá Báru Grímsdóttur.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í ferðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Mér finnst
nú ekkert
kraftaverk að
Jesús hafi ekki
viljað eiga allan
þennan fisk.
Sófar með sál
BLS. 4
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Bára Grímsdóttir, tónlistarkennari, söngkona, tónskáld og kórstjóri svo eitt-
hvað sé nefnt, tekur sér dágóðan tíma í að velja uppáhaldstískuhlutinn sinn en
finnur á endanum sérstakan skartgrip.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI