Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 36
Myndbandið er ekki dautt, þaðer einfaldlega komið á annaðstig.“ Þetta segir Hreiðar
Sæmundsson í Safnarbúðinni, þrátt
fyrir að breska raftækjaverslunin Dixon
hafi ákveðið á dögunum að panta ekki
fleiri myndbandstæki og þannig bæst í
sívaxandi hóp þeirra sem telja daga
myndbandsins talda.
Myndbandið og myndbandstækin
höfðu töluverð áhrif hér á landi, þegar
þau komu fram og má þar nefna að
almenningur minnkaði bíóferðir sínar
töluvert. Árið 1980 fór meðal
Íslandingur í bíó ellefu sinnum, en fór
fimm sinnum árið 2001. Þetta leiddi til
þess að kvikmyndahúsin fóru að taka
kvikmyndir fyrr til sýninga en áður til
þess að lokka fólk að.
Hreiðar segist finna fyrir því að
menn safni gömlum sjaldgæfum mynd-
böndum, líkt og gömlum bókum. „Þeir
sem safna myndböndum eru orðnir eins
og hverjir aðrir safnarar, eins og þeir
sem safna plötum eða bókum.“
Myndbandssafnarar ættu því að komast
í gullnámu hér á landi. Íslendingar eru
nefnilega í fyrsta sæti yfir fjölda mynd-
bandstækja á Norðurlöndunum, en 9 af
hverjum 10 eiga myndbandstæki hér á
landi og má reikna með að myndbanda-
söfnin séu í samræmi við þá eign.
Hreiðar segir að það sé mun meira
líf í þessu en menn halda. „Sjaldgæf
myndbönd hafa mjög mikið verðgildi
og þetta er því komið á antík stig.“
Íslendingar ættu því að forðast að
gera sömu mistök og þeir gerðu með
því henda plötuspilaranum og
plötunum því í myndbandssafninu
gætu leynst mikil auðæfi.
Hreiðar segist ekki eiga gamlar spólur
lengi enda sitji safnarar um þær. En
auðvitað eru ákveðnar spólur vinsælli en
aðrar, því eins og safnara er siður koma
menn sér upp ákveðnum tegundum sem
þeir síðan leita að.
„Það er mikil eftirspurn eftir
ákveðnum flokkum. Sumir safna
hryllingsmyndum, aðrir vissum
sjónvarpsþáttum og aðrir einhverju allt
öðru“.
Undanfarin ár hafa DVD spilarar
verið að sækja mjög í sig veðrið og sel-
jast nú betur en myndbandstæki.
Hreiðar segist ekki sjá mikinn mun á
gæðum góðs myndbands og dvd -
disks, gæðamunurinn hljóti að vera ein-
hverjar ýkjur. Og hann spáir DVD -
disknum ekki jafn miklum vinsældum
og menn vonuðust eftir. „Það var ekki
vandað nógu vel til hans í upphafi,“
segir hann. Myndbandið er því ekki
dautt úr öllum æðum, þrátt fyrir yfir-
lýsingar þess efnis.●
Sunna BjörkÞórarins-dóttir er
trommari í
kvennarokksveit-
inni Brúðarbandinu. Hún vinnur auk
þess hálfan daginn á leikskólanum
Njálsborg á milli þess sem hún er
heima við og sinnir aðaláhugamálum
sínum; bóklestri og tónlistarhlustun.
Strengjakvartettinn
hans Beethovens er
sannkallað eyrnakonfekt.
Hann gefur manni svo
mikla ró og værð og það er
mjög mikið öryggi í þessari músík.
Bókin Karamazov bræðurnir eftir
Dostoyevsky er nauðsynleg bók. Þetta
er svona bók sem ég get lesið aftur og
aftur og hún er rosalega vel þýdd hjá
henni Ingibjörgu Har-
aldsdóttur. Það að lesa
Dostoyovski er eins og að
finna karamellu eða
sýróp leka niður hálsinn
á sér.
Í lokin verð ég að velja kind. Ég er að
safna kindum í ýmiss konar formi. Við
í Brúðarbandinu vorum svo heppnar
eða óheppnar að vera tilnefndar til
Gullkindarinnar fyrir verstu plötuna.
Ég sagði við stelpurnar að við yrðum
að vinna því ég skyldi fá þessa kind.
Við unnum því miður ekki en eftir
mikið suð og betl fengum við samt
eina gullkind sem einhver
vinningshafi sótti ekki.
Óskar Arngrímssoner trommari í rokk-hljómsveitinni Lokbrá. Á milli
þess sem hann trommar af mikilli
snilld útbýr hann sæl-
gæti og keyrir það í
búðir fyrir sælgætisgerð-
ina Völu.
Aladdin Zane með
David Bowie. Þetta er
fyrsta platan sem fékk
mig til að hugsa um tónlist. Þegar ég
heyrði hana fyrst þá var ég svona átta
til níu ára en
eignaðist hana
ekki á geisladisk
fyrr en ég var orð-
inn sextán. Pabbi
gamli kynnti mig
fyrir þessum
kauða sem er mín helsta fyrirmynd í
lífinu.
Bangsi bestaskinn. Þetta er bangsi
sem nafni minn, hann Óskar afi, gaf
mér þegar ég var um sjö ára og var
veikur. Ég hélt mikið upp á afa og við
brölluðum ýmislegt saman. Frænka
mín átti svona bangsa sem ég var alltaf
með í láni. En svo einn
daginn birtist afi með al-
veg eins bangsa handa
mér.
Munirnir á veggjunum mínum.
Veggirnir mínir eru þaktir myndum af
tónlistarmönnum og bíómynda-
plakötum og ýmsum hlutum; Pink
Floyd, Bítlunum, Hljómum, Trúbrot,
myndir af
fyrrverandi
kærustunni
minni og
málverk
eftir hana,
Falkoninn – geimskipið hans Han
Solo frá Trausta vini mínum og fullt af
bíómyndaplakötum.
F2 4 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
allt að eins meters langa o.fl.
Nýbýlavegi 14, Kópavogi.
Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is
www.rafport.is
Umboðsaðili:
Fljótvirkasti
miðaprentarinn
Umboðsmenn um land allt.
Brother QL-550
A
ugl. Þórhildar 1390.38
Kynningarverð t i l áramóta
12.999 kr.
Frá borginni minni New York
Bergþóra Laxdal sálfræðingur býr
í heimborginni New York ásamt eig-
inmanni sínum og syni. Það sem
henni finnst mest heillandi við New
York er að það er ekki hægt að láta
sér leiðast þar.
„Í East Village er fjölbreytt mannlíf,
endalausir veitingastaðir, kaffihús
og barir svo ekki sé minnst á St.
Marks sem er uppáhaldsgatan mín í
New York. Þetta er svona frekar
pönkaraleg gata með aragrúa af
„second hand“ geisladiskabúðum og
götusölum,“ segir Bergþóra. Eftir
vinnu á föstudögum kíkir hún stund-
um á Pangea sem er bæði bar og
veitingastaður til að slaka á. Hann er
einmitt á East Village á 2.breiðgötu
á milli 11 og 12 strætis. En það eru
fleiri staðir í miklu uppáhaldi.
„Ætli ég verði ekki að segja
Mumbles sem er á horni 17.stræti og
3.breiðgötu. Hann er alls ekki einn
af flottari veitingastöðum borgar-
innar en staðurinn er ótrúlega vina-
legur og ég verð aldrei fyrir von-
brigðum með matinn þar. Og þá er
sama hvort ég fæ mér pasta eða
steik. Þessi staður kemur mér t.d.
alltaf í jólaskapið. Svo klikkar 3.00 $
hádegismaturinn aldrei. Píta með
lambakjöti, lauk og káli og dásam-
legri jógúrt-hvítlaugssósu sem fæst á
horninu á 50.stræti og 3.breiðgötu.
Þessi vagn er staðsettur rétt hjá
vinnunni minni og því kíki ég oft
þangað en þar er bara opið í hádeg-
inu.“
Pönkaragatan St. Marks Place
er skemmtilegust
Beethoven og Bangsi bestaskinn
Trommararnir Sunna Björk Þórarinsdóttir í Brúðarbandinu og
Óskar Arngrímsson í Lokbrá völdu þrjá ómissandi hluti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Hreiðar Sæmundsson „Myndbandið er ekki dautt, það er bara komið á annað stig.“
Gömlu
myndböndin
geta haft
mikið
verðgildi
Ný antík vara?