Fréttablaðið - 02.12.2004, Side 38
Einar Kárason er mjög
tengdur Hlíðunum í
Reykjavík. Þar ólst hann
upp og eftir smáflakk,
með viðkomu í Dan-
mörku og Þýskalandi,
kom hann sér aftur þægi-
lega fyrir á heimaslóðun-
um. Hverfið er rólegt og
þægilegt, en engu að síð-
ur er stutt í miðbæinn.
Úthlíð, Reykjavík
Hlíðarnar eru mjög sterkar í mér. Þar
ólst ég upp og bjó í ein tíu ár. Sá tími
var fyrst og fremst mjög skemmtilegur.
Í Hlíðunum bjuggu margir krakkar og
þar var einnig knattspyrnufélagið
Fram, sem þá var staðsett í Skipholtinu.
Það var mjög þægilegt að alast þarna
upp.
Háaleitisbraut, Reykjavík
Eftir að hafa búið í Úthlíð fluttist ég á
Háaleitisbraut og bjó þar í ein fimm ár.
Það vildi mér til happs að knattspyrnu-
félagið Fram hafði þá flutt starfsemi
sína frá Skipholtinu yfir í Safamýrina.
Svo það má eiginlega segja að ég hafi
hreinlega elt Fram eða félagið mig.
Dalslandsgade, Öresunds-
kolleget, Danmörk
Ég fluttist svo til Kaupmannahafnar
með konunni minni 1979, þar sem
hún var þar við nám. Við bjuggum við
Dalslandsgade sem er á Amager, á
kollegíi sem heitir Öresundskollegiet.
Það eru margir íslenskir stúdentar sem
eiga þaðan ljúfar minningar enda vin-
sæll staður meðal námsmanna í Dan-
mörku. Ég kunni ákaflega vel við mig
í Danmörku, fannst það mjög ljúft og
gott. Minn uppáhaldsstaður í Kaup-
mannahöfn var Konunglega bókasafn-
ið. Þar kom ég flesta daga, sat og vann
við skriftir. Ég skrifaði mínar fyrstu
tvær skáldsögur þarna, „Þetta eru asnar
Guðjón“ og „Djöflaeyjan“. Það voru
nú ekki mikil dönsk áhrif sem þar
svifu yfir vötnum, en þau komu síðar, í
bók sem ég gaf út í fyrra og heitir
„Stormur“.
Hlíðarnar, Reykjavík
Mér finnst mjög gott að búa í Hlíð-
unum og þangað flutti ég aftur 1986 og
hef búið þar síðan, ef undanskilið er eitt
ár í Berlín. Ég fluttist fyrst í Stigahlíð
1986. Ég var þá kominn með stóra fjöl-
skyldu og var að leita mér að stórri
íbúð. Þá sá ég íbúð í Stigahlíðinni og
við fluttumst þangað. Svo flutti ég á
Flókagötu og bjó þar í nokkur ár, en
færði mig svo yfir í Barmahlíð 1997.
Mér finnst Hlíðarnar mjög þægilegt
og rólegt íbúðarhverfi, sem er þó ekki
of langt frá miðbænum. Ég hef það
mjög gott hérna í bili og hef engin plön
um að flytja mig héðan. Það er samt
sem áður ekkert þannig að ég sé gróinn
fastur við þessa torfu.
Ég á heima á Íslandi og
þó það sé mjög gott að fara
í burtu í smátíma er sú til-
hugsun að eiga heimaland
mjög góð. Þess vegna verð
ég bara að vona að ég verði
ekki gerður útlægur héðan.
Storkwinkel, Berlín,
Þýskaland
Eftir að hafa búið í Hlíð-
unum í nokkurn tíma
ákvað ég að flytjast til
Berlínar í eitt ár. Þar bjó
ég á götu sem hét Storkwinkel. Ég
hafði ferðast þó nokkuð um Þýska-
land og var mishrifinn af þýskum
borgum en mér fannst Berlín alveg
sérstaklega spennandi og hafði lengi
verið heillaður af þessum stað. Það er
eitthvað við þessa miklu og dramat-
ísku sögu sem liggur þarna í loftinu,
við hvert fótmál og blasir í raun við
manni út um allt. Ég bjó í Vestur-
Berlín í frekar virðulegu hverfi en í
borginni er að finna mjög fjölbreyti-
leg hverfi og til dæmis hafði Austur-
Berlín ennþá töluvert annan svip og
það var verið að byggja miðbæinn upp
að nýju.
Ég fór oftast annan hvern laugar-
dag á Ólympíuvöllinn í Berlín í boði
Eyjólfs Sverrisonar, sem þá lék með
Herthu Berlín. Það var geysilega
gaman, þó ekki væri nema
að sitja í lestinni þangað
með aðdáendum liðsins
syngjandi og stappandi.
Það voru nú fleiri Íslend-
ingar í Berlín og meðal
annars Gunnar Guð-
björnsson óperusöngvari
sem við fórum nokkrum
sinnum að hlusta á í óper-
unni. Þarna voru líka góð-
ir menn eins og Tolli list-
málari og Pétur Blöndal
blaðamaður. Við Pétur
stofnuðum saman hálfgert fótbolta-
félag, sem seinna meir rann saman við
fótboltafélag pönkara í Austur-
Berlín. Við tókum lestina þangað á
sunnudagsmorgnum og spiluðum
með þeim.
Mér fannst mikill munur á Dön-
um og Þjóðverjum þó að hver þjóð
hafi náttúrlega sína kosti. Danirnir
eru svona rólegir, afslappaðir og vina-
legir, þó það risti kannski ekki djúpt,
en Þjóðverjar eru ef til vil meira upp-
teknir af því að öllum reglum sé fylgt.
F2 6 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
GÖTURNAR Í LÍFI Einars Kárasonar rithöfundar
Úthlíð
Háaleitisbraut
Dalslandsgade
Stigahlíð
Flókagata
Barmahlíð
Storkwinkel
Kann best
við mig á
uppeldis-
slóðunum.
„
HEIMAKÆR EINAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
! " # $
Ofurþunni harðdiskur-
inn iPod er einn heit-
asti fylgihluturinn
um þessar mund-
ir. Það er kannski
skiljanlegt í ljósi
þess að víðast
hvar í heiminum
er varla hlust-
andi á útvarp
vegna óþolandi
gaspurs útvarps-
manna og enda-
lausra auglýsinga. Þá er betra að geta
hlaðið sinni uppáhaldstónlist inn á
þessa litlu græju sem er ekkert nema
smekklegheitin. Til að toppa smarth-
eitin verður iPodinn að vera í fallegri
tösku. Hægt er að fá allt frá sílikon-
húðuðum, litaglöðum hulstrum upp í
rándýrar litlar leðurtöskur. Hönnuðir
merkjanna Paul Smith, Louis
Vuitton, Dior,
Gucci og Burberry
eru t.d. búnir að
hanna sérstök
veski utan um
iPod-inn. Þeir allra
flottustu fjárfesta
að sjálfsögðu í slík-
um veskjum.
Brúna „mono-
gram“-mynstrið frá Louis Vuitton
passar t.d. óhugn-
anlega vel við
þröngar galla-
buxur sem girtar
eru ofan í grófu
stígvélin, þröngan
leðurjakka og
loðfeld um háls-
inn. Bleika
Burberry-task-
an er fyrir þær
allra dömuleg-
ustu sem ganga
í pilsum, bleik-
um lágbotna
skóm og káp-
um. Þær rokk-
uðu myndu
kaupa Gucci
iPod-tösku sem
fer vel við
stuttan tví-
djakka, minip-
ils og stígvél úr gylltu slönguskinni og
svona mætti lengi láta hugann reika.
Hátísku iPod-töskurnar eru þó alls
ekki bara fyrir konur. Kvennaljóminn
David Beckham á t.d. flotta Louis
Vuitton-tösku utan um iPod sem
hann hefur ávallt mjög sýnilegan þeg-
ar hann er á
ferðinni. Hvítu
heyrnartólin
gabba heldur
engan. Fyrir
þær stelpulegu
er mini-iPod-
inn alveg kjör-
inn. Hann fæst
í ótal litum
eins og fjólub-
leikum, skær-
grænum og
gylltum. Utan
um mini-iPod-inn þarf reyndar síður
fríkaða tösku því liturinn verður að fá
að njóta sín. Í Apple-búðinni fást t.d.
flottar einfaldar leðurtöskur utan um
mini-iPodinn sem kosta ekki svo ýkja
mikið. Það má vel notast við þær þó
það sé óneitanlega svalara að blasta
Gucci eða Vuitton.
Gucci stendur alltaf fyrir sínu en því
miður er þetta geðþekka merki ekki selt
hérlendis. Taskan kostar um 14.000 kr.
Hvít einföld leðurtaska
gengur alveg upp þó
merkjavaran sé óneit-
anlega svalari. Hulstrið
kostar 3.900 kr.
Louis Vuitton. Hulstrið
kostar um 15.000 kr.
Hægt er að nálgast
veskið á http://think-
differentstore.com/
Það kostar 3.500 kr.
Rautt undraveski utan
um iPodinn. Það fæst
á heimasíðunni sfpla-
net.com og kostar um
3.000 kr.
iPodinn hefur aldrei verið heitari
Blastaðu Gucci eða Vuitton