Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 40
Hljómsveitarstjórinn JamesBrown, sagði að við værum eittaf þremur bestu upphitunar-
böndum sem hann hefði heyrt í. Það
var reyndar eftir að við höfðum farið
með honum niður í bæ og reddað hon-
um nokkrum hlutum,“ segir Samúel
Jón Samúelsson básúnuleikari og
söngvari hljómsveitarinnar Jagúar.
Þrátt fyrir mikil ferðalög á þessu ári
gafst Jagúar engu að síður tími til þess
að taka upp plötu, Hello Somebody
sem nú er komin út, en hún hefur
verið í pípunum í tæp tvö ár. „Forsagan
er sú að fyrir tveimur árum misstum
við æfingahúsnæðið okkar og vorum
á götunni í nokkra mánuði,“ segir
Börkur Hrafn Birgisson, gítarleikari og
Samúel bætir við að þá hafi það verið
spurning um að hrökkva eða stökkva.
„Við fengum svo loks annað æfinga-
húsnæði og fórum að taka upp grunna
og nýtt efni. En mitt í þessu öllu reynd-
um við að koma okkur í samband við
erlenda aðila, þannig að við byrjuðum á
þessari plötu svona þrisvar sinnum því
það var alltaf verið að rífa ferlið í sund-
ur,“ segir Börkur. Það var þó ekki fyrr
en þeir komust í samband við Keith
Harris, umboðsmann Stevie Wonder,
að pressa komst á að gerð yrði plata
„Hann og útgáfufyrirtækið sögðu við
okkur, að ef við ætluðum okkur ein-
hverja hluti úti eftir áramót, þá yrðu
þeir að vera komnir með plötu í hend-
urnar fyrir þessi áramót,“ segir Börkur.
Hann segir tempóið vera allt annað úti
en hérna á Íslandi „Hérna gerist allt á
þremur mánuðum, platan tekin upp,
keyrð út og auglýst fyrir jólin. Úti þurfa
menn þrjá til sex mánuði í undirbún-
ingsvinnu.“ Þetta var búinn að vera
annasamur dagur hjá þeim félögum,
áritun í fríhöfninni klukkan fimm um
morguninn og upptökur í sjónvarps-
þættinum 70 mínútum klukkan eitt.
„Það er hörkupúl að gefa út geisladisk
og maður þarf einfaldlega að vera dug-
legur að nýta sér öll tækifæri og mæta í
öll viðtöl,“ segir Börkur.
Gelgjuskeiðinu að ljúka
Jagúar er búin að vera að í sjö ár og er að
gefa út sína þriðju breiðskífu, auk þess
að vera búin að gefa út tónleikaplötu,
þar sem fluttar eru útsetningar Samúels
á tónlist Tómasar R. Einarssonar á
Listahátíð Reykjavíkur. „Fyrsta platan
okkar var svona barns síns tíma, önnur
platan er uppgjör við þann tíma. Með
þessari plötu held ég að við séum búnir
að finna okkar eigin hljóm, ekki það að
við séum að verða eitthvað gamlir. Ætli
við séum ekki bara að klára gelgjuskeið-
ið okkar,“ segir Samúel. „Við erum alla-
vega að gera þessa plötu á okkar eigin
forsendum,“ bætir hann við.
Jagúar komst í kynni við Al Stone,
fyrrverandi upptökustjóra Jamiroquai,
sem er mjög virtur í Bretlandi og hefur
meðal annars tekið upp Daniel Beding-
field.“ Tónlistarmenn í Bretlandi kepp-
ast um að fá hann til þess að taka upp
lög fyrir sig svo að útgáfufyrirtækin líti
við þeim. Við ákváðum að fá hann til
þess að taka upp fyrir okkur vegna þess
Viðburðaríku ári Jagúars er hvergi nærri lokið
Á EIGIN FORSENDUM
F2 8 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum til landa utan Evrópu
er föstudagurinn
á jólapökkum til Evrópu
er mánudagurinn
á jólapökkum innanlands
er þriðjudagurinn
3.12.
13.12.
21.12.
www.postur.isFinndu pósthúsið næst þér á
Komdu tímanlega
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
IS
P
25
98
4
1
1/
20
04
með jólapakkana
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Þetta er búið að vera
annasamt ár hjá Jagúar.
Þrír tónleikar í virtasta
djassklúbbi London, spilað
í New York og austurhluta
Þýskalands, upphitun fyrir
James Brown, tónleikar á
Listahátíð Reykjavíkur og
síðast en varla síst, troðið
upp með Harry Bellafonte.
Freyr Gígja Gunnarsson
ræddi við Börk Hrafn
Birgisson og Samúel Jón
Samúelsson forsprakka
hljómsveitarinnar.
Börkur Hrafn Birgisson (til vinstri) og Samúel Jón Samúelsson. „Gott popp er mjög skemmtilegt í samanburði við þetta fjöldaframleidda popp sem er að tröllríða öllu.“