Fréttablaðið - 02.12.2004, Page 64

Fréttablaðið - 02.12.2004, Page 64
Stekk bara á hlutina Guðbjörg Pálsdóttir trommuleikari er ekkert að veltast með ákvarðanir í fata- kaupum. Uppáhaldsbúðin þín? Fjarðarkaup, mér finnst alltaf gaman að fara þangað þó að ég geri það sjaldan. Hvað finnst þér skemmtilegast að kaupa? Mér finnst skemmtilegast að kaupa húsgögn og húsbúnað. Kaupi þau ekki oft en vildi geta gert það oftar til hafa huggulegt í kringum mig. Ég hef gaman að hönnun og spái talsvert í hana. Verslar þú í útlöndum? Já, þegar ég fer til útlanda, ég bara fer allt of sjaldan. Kaupi þá oftast föt. Einhverjar venjur við innkaup? Ég vil gera innkaupalista og þá vil ég ekki kaupa einhverja vitleysu. Tekurðu skyndiákvarðanir í fatakaupum? Já, allt of oft. Ég er ekkert að veltast með þetta, stekk bara á hlutina og stund- um er það rétt og stundum rangt. Sit stundum upp með eitthvað sem ég nota svo aldrei. Guðbjörgu Pálsdóttur, trommuleikara Dúkkulísanna, finnst skemmtilegast að kaupa húsgögn. KAUPVENJUR 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR16 LESTUR/ÁHORF: NOKKUR DÆMI ÚR NÝRRI GALLUP KÖNNUN * *Upplýsingarnar í þessari auglýsingu eru fengnar úr nýafstaðinni fjölmiðlakönnun Gallup í október s.l.. HEIMILI Í FBL FIMMTUDAGUR FJ Ö LM IÐ LA R 0 20 40 60 52.1% FORSÍÐA MBL SUNNUDAGUR 45.8% TÍMARIT MBL MIÐVIKUDAGUR 32.2% GÍSLI MARTEINN Á RUV MEÐALÁHORF VIKUNNAR 37% INNLIT ÚTLIT Á SKJÁ EINUM UPPSAFNAÐ 31% IDOL stjörnuleit UPPSAFNAÐ 44,8% Lesendur „Allts“ er fólk með áhuga á efni hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að þeir staldra við. Það er með öðrum orðum, vel skilgreindur og áhugasamur hópur, sem skoðar t.d. þessa auglýsingu. Á opnunni „heimili og fleira“ fimmtudaginn 28. október voru 12 auglýsingar. 56% kvenna á aldrinum 18-49 ára eða 34.555 konur skoðuðu opnuna og gátu veitt hverri auglýsingu athygli eftir áhuga og eins lengi og þær vildu. Til samanburðar voru 53 auglýsingar í Innlit Útlit á SkjáEinum þriðjudaginn 26. október. Þær fengu áhorf 37% sama hóps eða 23.025 konur og höfðu þær að meðaltali 14 sek. til að horfa á hverja auglýsingu. Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til. „Allt“ er löngu tímabær og áhugaverður valkostur á íslenskum auglýsingamarkaði. Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“ Síminn er 550-5000 SAMANBURÐUR VIÐ AÐRA MIÐLA [ 25-54 ára; Heimilistekjur yfir 400 þús. ] - markvissar auglýsingar - Álftir á flugi á Rangárvöllum/Ljósmynd: Vilhelm SJÓNARHORN SVIPMYND LÚXEMBORG: SJÁLFSTÆTT KONUNGSRÍKI MILLI BELGÍU, FRAKKLANDS OG ÞÝSKALANDS. STÆRÐ: Landið er 84 kílómetrar á lengd og 52 kílómetrar á breidd, 2.586 fer- kílómetrar. Landið er sjötta minnsta land í heimi. ÍBÚAFJÖLDI: 451.600. Þar af búa 90.000 í höfuðborginni Lúxemborg og nánasta umhverfi hennar. TUNGUMÁL: Innfæddir tala svokallaða „lúxemborgsku“ en þýska og franska eru talaðar jöfnum höndum. LOFTSLAG: Mildir vetur og frekar köld sumur. TRÚARBRÖGÐ: 87% eru rómversk-kaþólskir, 13% mótmælendur, gyðingar og múslimar. LÍFSSTÍLL: Lúxemborgarar lifa við mikla velmegun og leggja mikið upp úr gæð- um. Íbúar eru höfðingjar heim að sækja og vilja deila lífsgæðum sínum með gestum. Þeir eru afar stoltir af landinu, borginni og fögrum arkitektúr. SÉRSTAKT: Landið er sjötta minnsta land í heimi, en aðeins í sjö löndum í heim- inum eru fleiri bankar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.