Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 65
25FIMMTUDAGUR 2. desember 2004
Heilbrigðisráðherra
hefur ekki hugmynd um það
hversu margir nýta sér ekki
réttinn til ódýrari læknis-
þjónustu eða hvaða hópar
sjúklinga gera það ekki og
líða fyrir flókið kerfi.
Fæti brugðið fyrir fatlaða og sjúka
Heilbrigðisráðherra hefur ekki hug-
mynd um það hversu margir nýta
sér ekki réttinn til ódýrari læknis-
þjónustu eða hvaða hópar sjúklinga
gera það ekki og líða fyrir flókið
kerfi. Þetta kom fram á Alþingi í síð-
ustu viku er ég spurði ráðherra út í
þessi mál að gefnu tilefni. Sam-
kvæmt sjúkratryggingum almanna-
trygginga er komið til móts við
sjúklinga sem hafa mikinn heilsu-
gæslu- eða lækniskostnað þannig að
þegar þeir hafa greitt ákveðið há-
mark fullu verði geta þeir sótt um
afsláttarkort sem gildir út alman-
aksárið. Fyrir einstaklinga eru það
18 þús. kr. sem þeir greiða fullu
verði, fyrir lífeyrisþega 4.500 og
fyrir öll börn í fjölskyldu 6 þús. kr.
Til að fá afsláttarkortið þarf sjúkl-
ingur að safna saman kvittunum,
svokölluðum bleikum afritum,
vegna lækniskostnaðarins. Sumir
sjúklingar, eins og t.d. ýmsir geð-
sjúkir, Alzheimersjúklingar og fatl-
aðir, geta ekki haldið saman kvittun-
um vegna sjúkdóms síns. Þeir hafa
ekki tök á því og hafa aðstandendur
þessara sjúklinga komið að máli við
mig vegna þessa ástands. Ég er með
dæmi þar sem aðstandandi einstak-
lings, sem er með geðrænan sjúk-
dóm og getur ekki safnað kvittunum
sínum sjálfur, fékk útprentun á öll-
um kostnaði hans á heilsugæslustöð
þar sem hann er viðskiptavinur. en
hann hafði þá greitt umfram há-
markið. Tryggingastofnun ríkisins
neitaði að taka útskriftina gilda og
vildi ekki afhenda afsláttarkort
nema gegn bleiku afritunum af
kvittununum frá lækni. Þó er þetta
frumrit frá stjórnsýslu heilsugæsl-
unnar sem aðstandandinn framvís-
aði. Þetta ástand kemur illa niður á
þeim sem búa við veikindi eða fötl-
un, sem gerir það að verkum að þeir
geta ekki haft reiðu á kvittununum
og því missir þetta fólk af þeim
kjarabótum sem það á í rauninni rétt
á í kerfinu.Þegar lyf eru annars
vegar og sjúkratryggingar koma til
móts við sjúklinga með því að greiða
niður mikinn lyfjakostnað er tekið
mark á og tekin gild útskrift úr apó-
tekum. Þar þarf ekki að koma með
allar kvittanirnar þegar sjúklingur
er með mikinn lyfjakostnað. Því er
það ótrúlegt ósamræmi og kemur
niður á þessum hópi sjúklinga að út-
skrift frá lækni eða heilsugæslustöð
sé ekki tekin gild þegar afsláttar-
kortin eru annars vegar. Auðvitað
verður að koma til móts við þann
hóp því hann getur ekki nýtt sér
kjörin með þessum hætti. Ég hvet
því ráðherra og forsvarsmenn
Tryggingastofnunar að breyta
vinnubrögðum og auðvelda þessum
hópi að nýta rétt sinn. Það er nógu
erfitt að búa við þessa sjúkdóma
þótt velferðarþjónustan sé ekki með
þessum hætti að bregða fæti fyrir
aðstandendur eða aðra sem reyna að
hjálpa sjúklingum í glímunni við
flókið kerfi. Síðan hlýtur að koma að
því að meiri sjálfvirkni, s.s .með raf-
rænum kortum, verði til þess að
auðvelda sjúkum að sækja rétt sinn
og einfalda þjónustuna. ■
ÁSTA R. JÓHANNESDÓTTIR
ALÞINGISMAÐUR
UMRÆÐAN
HEILBRIGÐIS-
ÞJÓNUSTAN
,,
AF NETINU
Undarlegur heimur Halldórs
Hann er undarlegur veruleikinn sem
blasir við okkur Íslendingum þessa dag-
ana þegar þingræðissinninn Halldór Ás-
grímsson heldur því fram að innrásinni í
Írak sé lokið. Ég veit ekki á hvaða reiki-
stjörnu Halldór karlinn ólst upp á en á
þeirri sem við hin búum á þá er það um-
talað að innrásin er enn í fullum gangi.
Jóhann Hjalti Þorsteinsson á sellan.is
Þjónar ekki hagsmunum
Hvers vegna velja bæði stjórnarandstæð-
an og megin þorri fjölmiðla að finna allt
til foráttu þegar kemur að skattatillögum
ríkisstjórnarinnar og reyna að láta þær
líta tortryggilega út fyrir almenningi?
Þegar reynt er að svara þessum spurn-
ingum kemur alltaf sama svarið „bara ef
það hentar mér“. Það þjónar ekki hags-
munum eiganda íslenskra fjölmiðla að
lækka tekjuskatt, afnema eignarskatt,
lækka endurgreiðsluhlutfall námslána og
hækka barnabætur. Lækkun matarskatts
er það sem þjónar eigandahópnum og
Samfylkingunni best. Nú rær stjórnarand-
stæðan öllum árum ásamt forkólfum fjöl-
miðlanna í því að reyna að telja almenn-
ingi trú um það að lækkun matarskatts
komi almenningi best.
Eysteinn Jónsson á timinn.is
“Símastrákur“ markar stefnu
Formaður Samfylkingarinnar, Össur
Skarphéðinsson, hefur svo oft átt sér-
kennilega leiki á stjórnmálaferli sínum að
fátt kemur á óvart þegar hann er annars
vegar. Þó náði hann í þættinum Ísland í
dag á Stöð 2 í gærkvöldi að vekja undrun
áhorfenda þegar hann hélt því fram að
Samfylkingin hefði alls ekki verið þeirrar
skoðunar nokkru fyrir kosningar í fyrra að
ekki ætti að lækka matarskattinn svokall-
aða. Og skýringin á þessu? Jú, það var
víst bara einhver „símastrákur“ á skrif-
stofu Samfylkingarinnar sem svaraði
spurningu um stefnu flokksins varðandi
virðisaukaskattinn. Að sögn formannsins
kannast bara alls enginn flokksmaður við
að hafa veitt upplýsingar um stefnu
flokksins og telst það sæta nokkrum tíð-
indum að nú sé allt í einu upplýst að
þetta hafi sko ekkert verið stefna flokks-
ins, heldur stefna „símastráks“ flokksins.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
Fleiri einkaskóla
Það er undarlegt að á Íslandi skuli ekki
finnast fleiri einkaskólar en raun ber vitni.
Fleiri einkaskólar á grunnskólastigi
myndu án efa stuðla að miklum breyting-
um í íslensku grunnskólaumhverfi. For-
svarsmenn skólanna myndu leggja meiri
áherlsu á að sýna fram á gæði skólanna
og samkeppni um nemendur yrði til þess
að skólarnir færu að bjóða upp á fjöl-
breyttari áherslur og fleiri nálgunarleiðir.
Ekki yrði einungis leitast við að uppfylla
ákvæði Aðalnámskrár og grunnskólalag-
anna heldur yrði áhersla lögð á að gera
enn betur. Skólastofnanir gærdagsins
yrðu framtíðarskólar morgundagsins og
fengju verðskuldaðan sess sem slíkir.
Gerum betur!
Kristrún Lind Birgisdóttir á tikin.is
Ranglega var sagt í Fréttablaðinu
á laugardag að upplýsingar um
PCB-mengun Hringrásar væru
frá Umhverfisstofnun komnar.
Þangað voru aðeins sóttar al-
mennar upplýsingar um PCB-
mengun.
■ LEIÐRÉTTING