Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 70
Rólegt í Kauphöll
Aðeins 189 viðskipti voru í Kauphöllinni í gær.
Undanfarnir dagar hafa verið rólegir. Greiningar-
deildirnar hafa hins vegar haft í nógu að snúast og
vinna nú flestar að því að uppfæra mat sitt á verð-
mæti fyrirtækja. Verð á flestum fyrirtækjum í Kaup-
höllinni er nokkuð hærra en greiningardeildirnar
telja réttlætanlegt. Þetta er ekki óvenjuleg staða
þar sem greiningardeildirnar eru jafnan nokk-
uð varkárar og gera ekki ráð fyrir neinum
ævintýralegum breytingum á rekstri fyrir-
tækja. Fjárfestar telja sig því oft vita betur
og setja yfirverð á félög sem þeir halda að
vaxi hratt eða geri róttækar breytingar til
batnaðar. Þótt langflest fyrirtæki séu að
mati greiningardeildanna ofmetin þá eru
nokkur talin vera í ódýrari kantinum.
Bréf í KB banka kostuðu 446,5 krónur í
gær en Íslandsbanki telur bréfin mega
kosta 514 krónur og Landsbankinn
metur bréfin á 461 króna.
Fowler slyngur í viðskiptum
Róman Abramóvitsj, eigandi Chelsea, er ríkastur
þeirra höfðingja sem eiga knattpyrnulið í ensku úr-
valsdeildinni og er sagður eiga næstum
þúsund milljarða króna. David Beck-
ham er ríkastur leikmanna og kemur
það væntanlega fáum á óvart enda
tekjurnar svakalegar. Það gæti hins
vegar komið meira á óvart að í fjórða
sæti er Robbie Fowler. Sá hefur
ekki alltaf verið talinn mest-
ur andans jöfra í knatt-
spyrnuheiminum en
hann mun hafa
ávaxtað sterlingspund
sín vel. Hann er fjórði
ríkastur knattspyrnu-
manna í Englandi, á
um 45 milljarða
króna, og hefur stór-
grætt á fasteignabraski.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.444
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 187
Velta: 880 milljónir
+0,10%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Kögun hefur eignast 78,34
prósent í Opnum kerfum. Í gildi
er yfirtökutilboð til allra hluthafa.
Íslandsbanki gaf í gær út nýtt
verðmat á Straumi. Greiningar-
deild Íslandsbanka telur Straum
standa undir genginu 10. Nú er
gengi bréfanna 9,7 og ráðleggur
Íslandsbanki fjárfestum hvorki
að kaupa né selja bréf í Straumi.
Greiningardeild Landsbankans
hefur gefið út verðmat á Marel.
Að mati deildarinnar eru bréf fé-
lagsins of hátt verðlögð. Nú
standa bréfin í 57 en Landsbank-
inn telur 49,3 vera nær lagi.
Landsbankinn ráðleggur hluta-
fjáreigendum í Marel því að selja
bréf sín.
30 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Hive býður íbúum á höfuð-
borgarsvæðinu nettengingu
með allt að tíföldum hraða á
við ADSL-tengingar. Fyrir-
tækið hyggst bjóða upp á af-
þreyingarefni og símaþjón-
ustu í gegnum netið.
Nýtt fyrirtæki, Hive, auglýsir nú
endurgjaldslaust niðurhal á efni á
netinu. Aðrar þjónustuveitur
rukka sérstaklega fyrir gögn sem
sótt eru til útlanda þótt ákveðið
magn gagna sé innifalið í þjón-
ustusamningi. Þá er flutnings-
hraðinn allt að tífalt meiri en
ADSL-notendur eiga að venjast.
Að sögn Arnþórs Halldórsson-
ar, framkvæmdastjóra Hive, býð-
ur gjaldfrjálst niðurhal frá út-
löndum notendum upp á ýmsa
möguleika. Hive býður upp á
þjónustu á öllu höfuðborgarsvæð-
inu og nýtir nýja ADSL-tækni og
getur því boðið upp á margfalt
hraðari tengingu en notendur
hafa kynnst.
„Þetta er fyrsta skrefið inn í
framtíðina. Nýja tæknin allt að tí-
faldar hraðann frá hefðbundnum
ADSL-tengingum. Það gerir það
mögulegt að loksins er hægt að
fara að veita sjónvarpsþjónustu
yfir netið í fullum gæðum,“ segir
Arnþór. Hann segir að enn fremur
sé nýja tæknin þannig úr garði
gerð að ekki komi að hægt sé að
nota tenginguna til margra ólíkra
hluta hverju sinni. Þannig er
hægt að horfa á sjónvarp í gegn-
um netið og samtímis hlaða niður
gögnum af netinu án þess að álag-
ið dragi úr gæðum sjónvarps-
sendinganna.
Arnþór segir að fleiri nýir
möguleikar séu handan við horn-
ið. Hive mun eftir áramót hefja
símaþjónustu með IP-tækni. Þessi
tækni getur dregið mjög úr kostn-
aði við símtöl og hefur þann kost
að notandi getur hringt í gegnum
tölvuna sína sama hvar hann er
staddur í heiminum. Þá segir
hann að farsímaframleiðendur
hafi nú þessa tækni í huga við
hönnun nýrra tækja. Þetta mun
hafa í för með sér verulega lækk-
un á símkostnaði.
„Við erum að ráðast á þessa
múra sem hafa verið reistir hér á
Íslandi þar sem það hefur verið
ríkjandi að rukka eftir skrefa-
gjaldi. Þetta hefur leitt að okkar
mati til skrítinnar þróunar á notk-
un hérlendis. Það er mjög mikil
notkun hér innanlands en lítil
aukning hefur orðið á notkun til
útlanda,“ segir hann.
Á næstunni mun Hive bjóða
upp á sjónvarpsefni í gegnum
netið og koma upp efnisveitu. Þá
segir hann að nú sé að koma á
markaðinn tæki sem gerir mönn-
um kleift að senda myndefni
þráðlaust úr tölvu í sjónvarpið.
Arnþór segir að mikill áhugi
hafi komið fram hjá neytendum á
fyrstu dögum kynningar. Margir
hafi skráð sig í þjónustuna á
heimasíðu félagsins.
thkjart@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 40,40 +0,75% ... Bakkavör
24,70 +0,82% ... Burðarás 12,05 -1,23% ... Atorka 5,55 - ... HB Grandi
8,00 ... Íslandsbanki 11,65 +0,43% ... KB banki 446,50 -0,33% ... Lands-
bankinn 12,35 +0,41% ... Marel 57,00 -0,35% ... Medcare 6,06 -0,49%
... Og fjarskipti 3,35 - ... Opin kerfi 27,60 - ... Samherji 12,40 - ... Straum-
ur 9,70 +1,04% ... Össur 88,00 +1,15%
Býður margfalt hraðari
tengingu á netinu
Össur 1,15%
Straumur 1,04%
Bakkavör 0,82%
Hraðfrystihús Þórsh. -10,71%
SÍF -1,41%
Burðarás -1,23%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Stjórnvöld ætla að aðstoða ís-
lensk fyrirtæki að sækja
styrki til nýrra aðildarlanda
Evrópusambandsins.
Styrkirnir renna frá ríkinu til
landanna og eru liður í þró-
unarsjóð EFTA.
Íslensk fyrirtæki sem stefna á út-
rás og vilja sækja styrki í þró-
unarsjóð EFTA eiga möguleika á
könnunarstyrk til að skoða mögu-
leika sína á samvinnu við fyrir-
tæki nýrra aðildarlanda Evrópu-
sambandsins.
Martin Eyjólfsson, fulltrúi Ís-
lands í þróunarsjóðnum, segir að
vonast sé til að hægt verði að nýta
skuldbindingar íslenskra stjórn-
valda að greiða í sjóðinn, til fram-
dráttar fyrir íslensk fyrirtæki.
Framlag íslenskra stjórnvalda
fimmfaldaðist við stækkun Evr-
ópusambandsins til austurs. Þeim
er gert að greiða um 500 milljónir
árlega fyrstu fimm árin til fram-
þróunar í Evrópusambandinu.
Martin segir að ráðinn hafi
verið viðskiptafulltrúi, Rafal
Bernatowski, til aðstoðar í
Póllandi þangað sem tæplega 47
prósent styrksins renni.
Stjórnvöldum ríkjanna hafi
verið bent á kosti þess að nýta
íslenska þekkingu. Erlendum
stjórnvöldum sé þó í sjálfsvald
sett hverjir hljóti styrkina. Ís-
lenskra stjórnvalda sé í grund-
vallaratriðum að ákveða hvort
allar formkröfur séu í lagi áður
en styrkur sé veittur. Úthlutun
hefjist upp úr áramótum. - gag
ARNÞÓR HALLDÓRSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI HIVE
Spáir miklum breytingum á notkun fólks á netinu. Aukin flutningsgeta gefur færi á sjón-
varpsáhorfi í gegnum netið.
Könnunarstyrkur til
íslenskra fyrirtækja
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
www.valhol l . is - opið mán.– f immtud. 9–17.30. Lokað um helgar
Þórðarsveigur 20-22 – 5 íbúðir eftir
Verð 3ja herb. 109 fm íb. 17,9 millj. - Verð 4ra herb. 123 fm 19,7 millj.
Glæsilegar 3ja – 4ra herbergja íbúðir á góðu verði sem
afhendastfullfrágengnar án gólfefna
Sérinngangur. *Frábært skipulag *Vandaðar innréttingar frá Axis *
Stæði í bílahúsi. * Stórar stofur. * Frábær staðsetning * Suðursvalir*
Hús steinað að utan * Flísalögð baðherb.* Traustur byggingaraðili
Leitið upplýsinga um
ofangreindar eignir hjá
sölumönnum okkar
í síma 588-4477.
Ingólfur G. Gissurarson
lögg. fasteignasali
Andarhvarf 9. sérhæðir
m. bílskúr – 4 íb. eftir.
Glæsilegar 4ra herbergja
sérhæðir ofan við Elliðavatn
á góðu verði sem afhendast
fullfrágengnar án gólfefna
Sérinngangur. *Frábært skip-
ulag *Vandaðar innréttingar *
Bílskúr. * tvö baðherbergi. *
Frábær staðsetning *
Sérgarður með íb. á neðri
hæð* Sérþvottahús. *
Flísalögð baðherb.* Einungis 2
íbúðir í húsi.
Traustur byggingaraðili Pétur
og Kristinn ehf.