Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 77
FIMMTUDAGUR 2. desember 2004 37
■ TÓNLIST
Spennandi
gjöf
KRINGLUNNI
Það hljóta að teljast gleðitíðindi að
hljómsveitin frábæra !!! (víst lesið
tjikk, tjikk, tjikk) er nýbúin að gefa
út tónleikaplötuna Live, Live, Live.
Þeir sem sáu sveitina á Hró-
arskelduhátíðinni í ár vita að þar er
ein af betri tónleikasveitum okkar
tíma á ferð. En á hátíðinni náði
sveitin að halda öllum tónleikagest-
um sínum á staðnum, þrátt fyrir að
hafa verið sett á sama tíma og sveit-
in vinsæla Franz Ferdinand.
Söngvari sveitarinnar gantaðist
meira að segja með þá staðreynd að
fólkið í tjaldinu væri að missa af
skosku piltunum í Franz.
Á plötunni verður að finna þrjú
lög sem voru hljóðrituð í klúbbnum
Liquid Room í Tókýó. Einnig er þar
eitt lag sem var hljóðritað þegar
sveitin spilaði í beinni á BBC. Að
lokum er endurhljóðblöndun af
laginu Me and Guiliani by the
Schoolyard, sem teknósveitin gamla
LFO gerði. Einhverjir af níu liðs-
mönnum !!! eru svo í hljómsveitinni
Out Hud sem undirbýr nú útgáfu.
Þetta ætti að koma dansfiðringnum
í tærnar. ■
!!! gefur út tónleikaplötu
!!! Eða bara tjikk tjikk tikk eins og það er
víst borið fram, var að gefa út nýja tón-
leikaplötu.
Kalli Bjarni: Kalli Bjarni
„Var að vonast eftir betri plötu frá Kalla Bjarna.
Góð lög inni á milli en oftast virkar hann á villigöt-
um.“
FB
The Stills: Logic Will Break
Your Heart
„Frumraun Íslandsvinanna í The Stills er svo sem
ágæt, en lítið meira en það. Letilegt indírokk fyrir
þá sem hafa gaman af Coldplay og þannig sveit-
um.“
BÖS
The Blood Brothers: Crimes
„Seattlerokksveitin The Blood Brothers er beittari í
rokkinu en hnífsoddur brúðarinnar í Kill Bill. Frá-
bær rokkplata sem grúskarar verða að tékka á.“
BÖS
The Zutons: Who Killed The
Zutons?
„Sigursveit Mercury-verðlaunanna í ár kemur frá
Liverpool. Stuðboltar sem leika sjóræningjarokk að
hætti The Coral.“
BÖS
Mugison: Mugimama, is this
monkey music?
„Frábær plata, vafalítið ein sú allra besta á árinu.
Innlifun Mugison heillar mann upp úr skónum.“
FB
Eminem: Encore
„Miðið hjá Eminem er orðið aðeins skakkt. Encore
er fín, en ekkert meira en það. Lögin eru enn gríp-
andi og flæðið óaðfinnanlegt en spaugið heldur
þunnt. Best tekst honum upp á alvarlegri nótun-
um. Meistari Eminem á að geta gert betur en
þetta!“
BÖS
Swan Lee: Swan Lee
„Danski poppdúettinn Swan Lee á líklegast eftir að
missa af lestinni, þrátt fyrir að hafa gefið út alveg
ágætis frumraun. Of mikið popp fyrir grúskarana,
og kemur úr of undarlegri átt fyrir Bylgjupoppar-
ana.“
BÖS
Stina Nordenstam: The World
Is Saved
„Sænska skammdegisdrottningin Stina Nor-
denstam skilar af sér sinni bestu plötu í mörg ár.
Ekki láta þessa renna framhjá ykkur.“
BÖS
Ske: Feelings Are Great
„Fín plata frá Ske og mun heilsteyptari en sú síð-
asta. Létt og sykurhúðað poppið hittir vel í mark.“
FB
Green Day: American Idiot
„Green Day skilar frá sér metnaðarfullri plötu, í
dulargervi söngleiks, eftir fjögurra ára bið. Þeir
hljóma nákvæmlega eins og áður. Aðdáendur eiga
eftir að pissa í brækurnar af fögnuði. Okkur hinum
gæti ekki verið meira sama um American Idiot.“
BÖS
Lamb of God: Ashes of the
Wake
„Hörðu vélbyssugítarriffin, dósatrommuhljómurinn
og skæður söngur Blythe myndar ekki sömu
hryðjuverk og á eldri verkum Lamb of God og er
platan því viss vonbrigði enda batt ég miklar vonir
við Lamb of God á sínum tíma.“
SJ
Papa Roach: Getting Away
with Murder
„Ég viðurkenni fúslega að ég bjóst við argasta við-
bjóði, enda hafa lögin í útvarpinu með Papa
Roach verið með eindæmum leiðinleg. Platan
kemur mér því á óvart, margir fyrirtaks sprettir og
framvinda laganna á köflum þrælvel útfærð. „
SJ
Goldie Lookin Chain:
Greatest Hits
„Grín hiphopsveitin Goldie Lookin Chain er ágæt-
lega fyndin. Getur samt örugglega ekki endurtekið
þennan brandara og því er nafn plötunnar,
Greatest Hits, líklegast réttnefni. Brandararnir eru
margir barnalegir, en þó... of grófir fyrir börn.“
BÖS
Brain Police: Electric Fungus
„Frábær plata frá Brain Police og varla veikan blett
að finna. Jenni söngvari fer á kostum og hífir lögin
upp í hæstu hæðir.“
FB
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
U2: HOW TO DISMANTLE AN ATOMIC
BOMB
„Besta plata U2 í háa herrans tíð. Mörg
prýðileg lög þar sem The Edge fer á kost-
um.“ FB
PLATA VIKUNNAR
Umsjón: Birgir Örn Steinarsson,
Freyr Bjarnason og Smári Jósepsson