Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 78

Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 78
38 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR EKKI MISSA AF… Sýningu þýsku myndlistarkon- unnar Anke Sievers, “Songs of St. Anthony and Other Nice Tries“ í sýningarýminu Gallerí Dvergi, Grundarstíg 21. Sýningunni lýkur um helgina... Litlu stúlkunni með eldspýt- urnar, söngleik fyrir alla fjölskyld- una í Íslensku óperunni. Sýning- um fer fækkandi... Söngleiknum Hárinu í Austur- bæ. Aðeins þrjár sýningar eftir. BROT AF ÞVÍ BESTA – upplestrardagskrá í boði Kringlusafns, Kringlunnar og Borgar- leikhússins verður nú haldin sem fyrr á að- ventunni í forsal Borgarleikhússins. Fyrri upplesturinn verður í kvöld klukkan 20. Þá lesa höfundarnir Halldór Guðmundsson, Kristín Marja Baldursdóttir, Kristín Eiríks- dóttir, Jóhanna Kristjónsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þórarinn Eldjárn upp úr nýútkomnum bókum sínum. Fyrir upplestur og í hléi munu þeir Tómas R. Einarsson bassaleikari og Eyjólfur Þor- leifsson saxófónleikari leika léttan jóladjass. Bókaverslun Eymundssonar í Kringlunni selur bækur á sérstökum afsláttarkjörum. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis að þessari notalegu kvöldstund í forsal Borgar- leikhússins. Dagskráin hefst klukkan 20.00. Síðari upplestrardagskráin verður á sama stað og á sama tíma viku síðar eða 9. des- ember. Kl. 18.00 Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands gengst fyrir tónleikakynningu í Sunnusal Hótels Sögu. Tónlistarfræðingurinn Árni Heimir Ingólfsson kynnir efnisskrá tónleika kvöldsins, verk eftir barokkmeistarana Bach og Telemann. Tónleikarnir hefjast síð- an klukkan 19.30 og er hljómsveitarstjóri Robert King. menning@frettabladid.is Brot af því besta Réttardrama úr fjarlægri fortíð Sögulegar skáldsögur tröllríða bóka- markaðinum þessi jólin. Ein þeirra er Maríumessa eftir Ragnar Arnalds. Ragnar er lögfræðingur að mennt og því við hæfi að hann skrifi sína fyrstu skáldsögu um frægt íslenskt dómsmál frá byrjun 17. aldar. Frá- sögnina byggir hann á rituðum heimildum og fjallar sagan um Þór- dísi, fávísa og sannkristna sveitastúlku úr Skagafirð- inum, og danska höfuðs- manninn Herluf Daa sem gerir allt sem í valdi sínu stendur til að refsa stelp- unni fyrir hórdóm þegar hún eignast barn utan hjónabands. Frásagnaraðferð og uppbygging Maríumessu er tilraun sem fer í vaskinn. Sagan er sögð í fyrstu persónu frá tveimur sjónar- hornum til skiptis, þeirra Þórdísar og Herlufs. Þessi aðferð hefur upp á margt að bjóða, með hliðsjón af ólíkum uppruna persónanna, en röddin í sögunni er ávallt sú sama. Þannig nær höfundur ekki skýrum línum í persónusköpun, aðalper- sónurnar verða heldur grunnar og ósannfærandi. Þótt ólík viðhorf þeirra til aðstæðna, atvika og ann- arra persóna gefi lesendum mis- munandi sýn á áhugaverða sögu þá dugir það ekki til. Hroki höfuðs- mannsins andstætt þvermóðsku Þórdísar aðgreinir ekki meginraddir sögunnar. Raddirnar verða að ein- tóna rödd og tilraunin mistekst. En sagan af Þórdísi og Herluf er ekki alslæm. Ragnar fangar tíðar- andann mjög vel og oft er bókin bæði fróðleg og spennandi. Til að merkja er tvískinnungurinn grát- broslegur þegar lesið er um kven- semi danska konungsins, presta og lögmanna, og örlög Þórdísar eru höfð í huga. Herluf stendur hins vegar ekki í málaferlunum út af sið- gæðisvitundinni einni saman held- ur nýtir hann sér mál Þórdísar til að vefja höfðingjum landsins um fing- ur sér. Eins er áhugavert að lesa um afstöðu lögréttu og íslenskrar al- þýðu til pyntinga þeirra sem höfuðsmaðurinn innleiðir fyrstur manna í íslenskt dómskerfi. Maríumessa er lengi í gang en batnar verulega þegar líða tekur á seinni hlutann. Í köflunum sem gerast á Alþingi og á dómsþinginu við Vallalaug finnur höfund- ur taktinn enda gjör- þekkir hann íslenskt rétt- arfar og stjórnsýslu. Samræður lifna við og spennan eykst til muna. En það hjálpar bókinni lítið. Þótt sagan af málaferlum Þórdísar sé óneitan- lega merkileg, trega blandin og á köflum jafnvel kímin, ber bókin vott um að vera byrjendaverk. Það er eitt að skrifa leikrit en allt annað að skrifa skáldsögu. Að lokum má nefna að frágangi bókarinnar er ábótavant og pínleg innsláttarvilla aftan á titilsíðu er til lítillar prýði. Kápumyndin hans Leonardo Da Vinci af Ledu og svaninum er aftur á móti fín. Fyrir heigla, plebba og andlega staðnaða BÓKMENNTIR HLYNUR PÁLL PÁLSSON Höfundur: Ragnar Arnalds Útgefandi: krabbinn.is Leikir ehf. ! Steinar Bragi, höfundur Sól- skinsfólksins, segist vera veiðimaður í frumskógi sál- arinnar. „Samtíminn er uppspuni, núið er raunverulegt en sértíminn sann- ur. Um leið og þér skilst þetta liggur það bráðlega og algerlega ljóst fyrir að þú finnur ekki sjálf- an þig, þú skapar þig. Allt sem er meira en hversdagslegt eða við- tekið er sérlegt og allt sem við- kemur lífi, dauða, sannleika og fegurð er sértími og öll kraftbirt- ing er sértími. Samtíminn er hins vegar drasl, risavaxinn skíthaug- ur af lygum, hálfkáki, afþreyingu, máttleysi, bærileika, svindli, ein- földunum og fylgispekt. Við göng- um að þessu sem gefnu,“ segir Steinar Bragi, höfundur skáldsög- unnar Sólskinsfólkið, sögu tveggja einstaklinga, Ara og Heiðu, sem bæði eru úr tengslum við annað fólk. Það sem einkennir þau er vanlíðan, einsemd, þörf fyrir ást og tilfinning fyrir til- gangsleysi. Þau eru að festast í svikaþráðum samtímans, þess samtíma sem höfundurinn segir að sé uppspuni. Allir eru að tala, samræður eru marklausar og eng- inn er að hlusta á hvað aðrir hafa að segja. „Persónur sem reyna að skapa sig eru alltaf einangraðar,“ segir Steinar Bragi. „Í versta falli daga þær uppi í ófrjórri störukeppni við sjálfar sig, í besta falli verða þær eilíf mikilmenni, kyndilberar sannleika, táknmyndir um sigur mannsandans yfir hrottalegum kringumstæðum – og öðrum til eftirbreytni. Þetta tekst persón- um Sólskinsfólksins og það er þetta sem gerir bókina svo mikil- væga aflestrar fyrir heigla, plebba og andlega staðnað fólk! Hvers vegna eiga persónurnar svona erfitt með að koma orðum að því sem þær vilja og þrá? „Ég er veiðimaður í frumskógi sálarinnar, þetta er öruggt. Í krafti þessa veit ég og get ábyrgst að tilfinningar, kenndir og þrár spretta í myrkrinu, í lággróðrin- um, og koma á undan, ekki á eftir – allir mega treysta mér fyrir þessu. Rök, skynsemi, réttlæting- ar, útskýringar, samtími og orð koma seinna. Bækur sem eru raunverulegar og lifna, hvort sem er fyrir höfundi eða lesanda, eru ekki skrifaðar á samtungumáli og ekki framsettar á tugguformi. Til að skapa bók og sjálfan þig verð- urðu að forma óskapnaðinn og mikilfengleikann sem býr innra með þér og beina honum, að minnsta kosti, með sértungumáli, annars hrörnarðu og deyrð eins og hundur. Að þessu sögðu vil ég taka fram að ég get verið hunds- legur, en ég er ekki hundur, ég er afkvæmi vespu og hákarls, STEALTH-þotu og hagamúsar, heimsálfur hreyfast á sama hraða og neglurnar á mér vaxa, þáttur- inn um hillbillyvæðingu Íslands er við hljóðrás af drunum, snörli og hökti forsætisráðherra Rost- ungs, Íslendingar eru morðhund- ar í fylgispekt sinni við Ameríku, sem gæti verið fyrirsögn, eða „veiðimaður í frumskógi sálarinn- ar“. ■ STEINAR BRAGI Bækur sem eru raunverulegar og lifna eru ekki skrifaðar á samtungu- máli og ekki framsettar á tugguformi. RAGNAR ARNALDS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.