Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
ÓKEYPIS
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012.
ORATOR,
félag laganema við
Háskóla Íslands.
ÞESSI MAGNAÐA OG MARGSLUNGNA SAKAMÁLASAGA HEFUR
FARIÐ SIGURFÖR UM HEIMINN Á SÍÐUSTU MÁNUÐUM.
Sagan gerist í Boston árið 1865. Nokkrir af helstu bókmenntamönnum Banda-
ríkjanna taka höndum saman um að koma Hinum guðdómlega gleðileik ítalska
skáldsins Dantes út á ensku. Valdamiklir einstaklingar innan Harvard-háskólans
reyna að koma í veg fyrir þessa fyrirætlun. En málin flækjast þegar framin eru
hryllileg morð sem virðast sækja innblástur í lýsingar Dantes á víti.
Á liðnu ári skipaði Dan Brown sér í hóp vinsælustu spennu-
sagnahöfunda veraldar með hinni frábæru bók Da Vinci
lyklinum. Englar og djöflar gefur henni ekkert eftir enda hefur
bókin setið mánuðum saman á metsölulistum víða um heim.
ROBERT LANGDON ER BOÐAÐUR TIL SVISS TIL AÐ
RANNSAKA VETTVANG ÓHUGNANLEGS MORÐS Á
ÞEKKTUM VÍSINDAMANNI. FYRR EN VARIR ER HANN
FLÆKTUR INN Í ALDALANGAR ERJUR KAÞÓLSKU
KIRKJUNNAR OG LEYNIFÉLAGSINS ILLUMINATI SEM
HEFUR Í HYGGJU AÐ VALDA UPPNÁMI Í PÁFAGARÐI.
„HÖRKUSPENNANDI OG BRÁÐSKEMMTILEG BÓK“
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Fréttablaðið
„FANTASPENNANDI REYFARI, HUGMYNDARÍKUR
MEÐ MENNTUÐU ÍVAFI ... ÞETTA ER AFÞREYING,
HREIN OG KLÁR, VEL BYGGÐ OG VEL SÖGÐ
– Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„BETRI EN BESTA SPENNUMYND“
– Kristján Hjálmarsson, Fréttablaðið
„EITURSNJÖLL BÓK SEM ÓMÖGULEGT ER AÐ LEGGJA FRÁ SÉR.“ – The Observer
„ÓVENJULEGA VÖNDUÐ OG SNJÖLL SPENNUSAGA.“ – The Boston Globe
„SNILLDARVERK ... STÚTFULLT AF LÆRDÓMI.“ – The New York Times
„GUÐDÓMLEG GÁTA.“ – People Magazine
Athyglis-
brestur
Nokkuð hefur verið fjallað um at-hyglisbrest í fjölmiðlum að und-
anförnu. Athyglisbrestur er saman-
safn af ýmsum einkennum eins og
gleymsku, ringli og rugli, ranghug-
myndum og einbeitingarskorti. Oft
fylgir þessu ofvirkni. Ég var haldinn
hvoru tveggja þegar ég var barn. Ég
var algjörlega stjórnlaus. Ég braut
rúður og hoppaði uppi á bílum í ein-
tómri framkvæmdagleði og spuna og
gat síðan misst algjörlega stjórn á
skapi mínu í ofsa eða jafnvel þung-
lyndi. Flest sem ég gerði, gerði ég án
umhugsunar og án þess að velta fyrir
mér afleiðingunum. Ég var svo stjórn-
laus að fólk hélt jafnvel að ég væri
eitthvað geðveikur. Það er ekki gaman
að vera svona þegar maður er barn.
OFVIRKNIN rjátlaði af mér með
aldrinum en er þó ekki alveg horfin.
Athyglisbrestinn er ég ennþá með. Ég
er frekar ruglaður. Ég þjáist af
nokkru sem margir líta á sem barna-
sjúkdóm. En ég er 37 ára. Ég tilheyri
stórum hópi fólks á Íslandi; fullorðið
fólk með athyglisbrest.
Í GAMLA daga var flogaveikt fólk
talið haldið illum öndum. Fullorðið
fólk með athyglisbrest þarf að fást
við ótrúlega fordóma. Alveg eins og
geðveikir þurftu að gera hér áður
fyrr. Í gamla daga var fólk oft talið
gera sér upp geðveiki til að komast
hjá vinnu. Alkóhólismi er víða talinn
aumingjaskapur. Og örvhentir voru
áður taldir gera sér þetta upp til að
fá athygli. Og allt sem aumingja
hommarnir hafa þurft að ganga í
gegnum. Það er ótrúlegt hvað fólk
þarf að ganga í gegnum til að sanna
að það sé í alvörunni eitthvað að því
og það sé ekki að þykjast. Þegar ég
hef sagst vera með athyglisbrest hef-
ur fólk átt það til að segja: „Er það nú
ekki bara einhver afsökun? Er það
ekki barnasjúkdómur? Er það nú ekki
bara fansý orð yfir egóisma? Tísku-
sjúkdómur?“ Ég var greindur með
þetta 1973. Þá var ég sex ára.
ATHYGLISBRESTUR er raunveru-
legur. Það er eitthvað að í heilanum.
Með reglusömu líferni má halda ein-
kennunum niðri. Þeir sem eru með
athyglisbrest og ofvirkni hafa þörf
fyrir ramma í kringum sig.
EN athyglisbrestur hefur líka sínar
jákvæðu hliðar. Fólk með athyglis-
brest er yfirleitt mjög skapandi.
Frægt fólk með athyglisbrest er með-
al annarra: Mozart, Ozzy Osbourne,
Tom Cruise, Jim Carrey og Albert
Einstein. ■
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR