Fréttablaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 10
10 13. september 2004 MÁNUDAGUR
UMHVERFISMÁL Fyrir liggur áætlun
um stækkun þjóðgarðsins í Skafta-
felli. Hana kynnti Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra á
fundi í Skaftafellsstofu í þjóðgarð-
inum í Skaftafelli í gær.
Stækkunin tekur til syðri hluta
Vatnajökuls og friðlýsta svæðisins í
Lakagígum, en þetta er fyrsta
skrefið í stofnun þjóðgarðs sem
næði til alls Vatnajökuls í samræmi
við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá
26. september árið 2000. Með þess-
ari stækkun verður þjóðgarðurinn í
Skaftafelli 4.807 ferkílómetrar og
nær til svæðis sem nemur um 57
prósentum af Vatnajökli auk Laka-
gígasvæðisins.
Á fundi í gær skrifuðu fulltrúar
Skaftárhrepps og sveitarfélagsins
Hornafjarðar undir
yfirlýsingu um að þau séu samþykk
stækkuninni fyrir sitt leiti og að á
næstunni fari fram kynning á
henni. Ráðnir verða tveir fastir
starfsmenn í stöður landvarða og
verður annar þeirra með starfsstöð
á Kirkjubæjarklaustri og hinn á
Höfn í Hornafirði. ■
UMHVERFISMÁL „Við stöðvuðum
efnistöku af toppi Ingólfsfjalls
eftir að okkur barst úrskurður
Skipulagsstofnunar til eyrna,“
sagði Magnús Ólason, annars
forsvarsmanna Fossvéla á
Selfossi. Fyrirtækið hefur unnið
að efnistöku úr fjallinu, fyrst í
eldri námu, en síðar með því að
ýta möl ofan af toppi fjallsins nið-
ur í námuna. Mölin hefur verið
notuð til ýmissa framkvæmda á
Selfossi.
Í úrskurði Skipulagsstofnunar,
sem birtur var í lok vikunnar
segir að óheimilt sé að vinna efni
efst úr Ingólfsfjalli. Beinir stofn-
unin því til skipulags- og bygging-
arfulltrúa Ölfuss að stöðva fram-
kvæmdir verktaka sem rutt hafa
möl þaðan niður í eldri námu um
margra mánaða skeið.
Þessi úrskurður þýðir, að efnis-
taka uppi á fjallinu sé tilkynning-
arskyld til ákvörðunar á mats-
skyldu og þar með er ekki heimilt
að vinna efni þar fyrr en hefð-
bundinni málsmeðferð er lokið.
Landeigendur eða verktakar sem
leigja námasvæðið geta áfrýjað
þessum úrskurði til umhverfis-
ráðherra
„Ingólfsfjall er andlit Fló-
ans,“ sagði Siggeir Jónsson yfir-
verkstjóri umhverfisdeildar Ár-
borgar um efnistökuna í fjall-
inu. „Mér finnst þetta vera eins
og svöðusár í andliti hans. En
það heyrir undir annað sveitar-
félag, það er Ölfus, svo við get-
um lítið sagt og illa beitt okkur í
málinu. Þegar þeir voru svo
komnir upp á fjallið líka og farn-
ir að ýta fram af því, þá keyrði
alveg um þverbak.“
Siggeir sagði ljóst, að verktak-
anir yrðu að finna aðra námu, yrði
þessari lokað. menn væru að tala
um að þetta væri svo ódýrt efni og
héldi byggingarkostnaði á Sel-
fossi niðri vegna þess að flutn-
ingskostnaður væri lítill. Önnur
sveitarfélög, til dæmis Reykjavík,
yrðu að flytja sitt efni um langan
veg og Selfyssingar hlytu að geta
það líka.
„Mér finnst að menn verði að
leita annarra leiða,“ sagði Siggeir.
„Við þurfum að horfa til fram-
tíðar, en ekki einungis viku eða tíu
daga fram í tímann.“
jss@frettabladid.isflutt
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
25
63
9
0
9/
20
04
Verðbréfa- og lífeyrisþjónusta Landsbankans hefur flutt
í aðalútibú Landsbankans í Austurstræti.
Velkomin til okkar í Austurstræti.
Nýtt símanúmer: 410 4000
Við erum
Tilkynning
frá Heilsugæslunni í Reykjavík,
Seltjarnarnesi og Kópavogi
Heilsugæslan
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
sími 585-1300 www.hr.is
13. september 2004
Síðdegismóttökur hafa verið starfræktar á flestum
heilsugæslustöðvum þessara sveitarfélaga um
nokkurt skeið og notið mikilla vinsælda.
Af óhjákvæmilegum ástæðum verður breyting á
þjónustunni fram til áramóta þannig að takmarka
þarf fjölda þeirra sem geta komið á þessar móttökur.
Fólki sem hyggst koma á síðdegismóttökur heilsu-
gæslustöðvanna er því bent á að hafa samband
símleiðis við viðkomandi stöð til þess að fá
upplýsingar um fyrrkomulag móttökunnar og eða
tímapantanir.
Heilsugæslan mun áfram geta sinnt langflestum sem
þurfa á þjónustu síðdegis að halda.
Okkur þykir miður að til þessarar skerðingar þurfi að
koma en væntum þess að viðskiptavinir okkar sýni
þessu skilning.
Jafnframt er bent á að Læknavaktin Smártorgi er
opin frá kl. 17 alla virka daga.
LÝÐRÆÐISSINNI Í KOSNINGASLAG
Audrey Eu, frambjóðandi í þingkosningum
í Hong Kong, tók sér stöðu fyrir framan
verslunarmiðstöð ásamt tveimur myndar-
legum hundum. Kosið var á þingið í Hong
Kong í gær en þrjátíu sæti af sextíu eru
valin í almennum kosningum.
STÆRRI ÞJÓÐGARÐUR
Á vegum umhverfisráðuneytisins verður
áfram unnið að því að jökullinn í heild verði
innan þjóðgarðs auk þess sem unnið verður
að verndun svæða norðan jökuls. Kortið sýnir
mörk þjóðgarðsins eins og þau eru nú orðin.
Stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli:
Svæðið tæpir 5000 ferkílómetrar
VIÐSKIPTI Sparisjóður
Reykjavíkur og ná-
grennis kynnti í gær
samstarfssamning við
alþjóðlegan afsláttar-
klúbb að nafni Hotel
Express International.
Í ávarpi Guð-
mundar Haukssonar,
sparisjóðsstjóra kom
fram að yfir þrjár og
hálf milljón manna
um allan heim nýti
sér þjónustu afslátt-
arklúbbsins. „Samn-
ingurinn sem nú
liggur fyrir veitir
v i ð s k i p t a v i n u m
SPRON aðgang að al-
þjóðlegu afsláttarkorti hjá Hot-
el Express International sem
tryggir þeim 50 prósenta afslátt
frá listaverði gistingar á liðlega
fjögur þúsund hótelum í 135
löndum og ennfremur afslátt af
flugfarseðlum og bílaleigubíl-
um,“ sagði hann. ■
Nýjung hjá SPRON:
Hótelgisting á hálfvirði
SAMSTARFIÐ KYNNT
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri tekur við afláttarkorti
hjá Hotel Express úr hendi Egils Eikaas, forstjóra Hotels Ex-
press International.
Sem svöðusár í
andliti Flóans
Verktakar sem rutt hafa möl ofan af toppi Ingólfsfjalls í Ölfusi hafa
stöðvað þá vinnu, eftir að Skipulagsstofnun úrskurðaði efnistöku með
þeim hætti óheimila. Efnistakan sögð „eins og svöðusár í andliti.“
EFNISTAKA STÖÐVUÐ
Verktakarnir á Selfossi hafa hætt efnistöku af toppi Ingólfsfjalls, eftir að úrskurður Skipu-
lagsstofnunar um að slíkt væri óheimilt lá fyrir.
10-11 12.9.2004 20:49 Page 2