Fréttablaðið - 13.09.2004, Blaðsíða 18
Laufunum rakað saman.Trén eru dugleg við að skila af sér haustlauf-
unum og vindurinn feykir þeim um göturnar. Tími er því kominn á að
raka þau saman og tína ofan niðurfallinu, auk þess sem tæma þarf
þakrennuna til að koma í veg fyrir að allt stíflist þegar frysta tekur.
ÍBÚÐARHÚS - FRÍSTUNDAHÚS
BYGGÐ ÚR NORSKUM KJÖRVIÐI - NÁTTÚRUVÆN FÚAVÖRN
RC-Hús ehf. Grensásveg 22, Reykjavík - Sími 5115550 netfang r
Láttu gæði og góða reynslu
ráða vali þínu á ofnhitastillum
Danfoss ofnhitastillar fyrir þig
Danfoss hf
Skútuvogi 6 104 Reykjavík
Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss er leiðandi í framleiðslu ofnhitastilla
R
A
2
0
0
0
D
B
L
Í þessari viku verður opnuð ný
verslun með byggingarvörur á
Melabraut 19 í Hafnarfirði. Eigend-
ur verslunarinnar eru Jón Þórðar-
son og Þjóðverjinn Frank
Witachick. Í versluninni verður boð-
ið upp á þýskar gæðaflísar á afar
hagstæðu verði, en þar að auki eru
ýmsar nýjungar í versluninni sem
ætla má að Íslendingar taki fagn-
andi.
Jón, sem áður rak fyrirtækið Jón
pípari, segir að hann hafi náð sér-
lega hagstæðum samningum við
þýskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
flísum, lagnavörum hverskonar og
ofnum. Þá er hægt að panta innrétt-
ingar á baðherbergi og eldhús og
hurðar svo eitthvað sé nefnt.
„Þjóðverjarnir koma sjálfir til að
setja verslunina upp, það var inni í
samningnum,“ segir Jón, en fram-
kvæmdir hafa staðið í nokkrar vik-
ur og Þjóðverjarnir eru að leggja
lokahönd á verslunina.
„Við verðum hér með mikið úr-
val af þýskum gæðaflísum á ótrú-
legu verði, en algengt verð á fer-
metrann er innan við þúsund krón-
ur. Við erum líka með mikið úrval af
listum og fylgihlutum og hand-
klæðaofna og „design“-ofna sem
hafa ekki fengist hér. Svo bjóðum
við upp á algjöra nýjung sem heitir
Jadecor, en það er efni sem hægt er
að nota bæði á gólf og veggi. Efninu
er smurt á flötinn sem fær við það
grófa áferð, en hægt er að velja um
250 staðlaða liti eða nota hugmynda-
flugið og blanda sjálfur. Efnið er
einfalt í notkun, því er hrært saman
við vatn og eftir 20 mínútur er það
tilbúið til notkunar. Það eina sem
þarf er einfaldur plastspaði til að
bera efnið á.“
Jón efast ekki um að þörf sé á
nýrri verslun af þessu tagi, því hon-
um finnst úrvalið ekki hafa verið
nógu gott. „Við ætlum að bjóða upp
á heildarlausnir og ef fólk vill tilboð
í framkvæmdirnar sínar getur það
fengið tilboð í verk á hvaða stigum
sem er, hvort sem er bara í efnis-
hlutann eða vinnuna.
„Við getum sett upp meðalstórt
baðherbergi fyrir fólk fyrir 150
þúsund krónur,“ skýtur Frank inn í.
Jón segist verða með vörur á lag-
er, en margt þurfi að sjálfsögðu að
panta og sé þá biðtíminn um það bil
tvær vikur. „Áherslan hjá okkur
verður á gott vöruúrval, lipra þjón-
ustu og síðast en ekki síst, á gæða-
verði.“ ■
Ný byggingavöruverslun í Hafnarfirði:
Þýskar gæðavörur
á ótrúlegu verði
Jón og Frank bjóða viðskiptavinum að setja upp baðherbergi.
Speglar á baðherbergjum safna gjarnan
á sig gufu, en ekki þessir sem eru inní
ofninum.
Jón og Frank leggja nótt við dag svo hægt sé að opna verslunina í vikunni. Enn hefur verslunin ekki hlotið nafn.
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
02-03 10.9.2004 20:24 Page 2