Fréttablaðið - 13.09.2004, Page 15

Fréttablaðið - 13.09.2004, Page 15
15MÁNUDAGUR 13. september 2004 TTT auglýsingastofa/Ljósm .S S J Mark skrifstofustólar Ótrúlegt verð! Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla frá Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili. Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni. Hægt er að velja um fjölda lita á áklæði. Nú bjóðum við þessa stóla á frábæru kynningarverði. Hæðarstilling á baki Pumpa til að stilla stuðning við mjóhrygg Hæðarstillanlegir armar Hallastilling á baki Sleði til að færa setu fram og aftur Mjúk hjól Hæðarstilling á setu og baki Hægt er að stilla stífleika setu og baks eftir þyngd notanda Veltustilling á setu og baki KYNNINGAR AFSLÁTTUR! 30% Mark 20 Kr.25.340 Mark 10 Kr.13.930 Mark 30 Kr.38.570 Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum Aðalvík SH-443: Fékk trollið í skrúfuna BJÖRGUN Aðalvík SH-443 fékk trollið í skrúfuna um sextán sjó- mílur vestan við Sandgerði í fyrri- nótt. Skipstjóri bátsins, sem er 230 tonna togbátur, óskaði eftir aðstoð við að skera úr skrúfunni. Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein, frá Sandgerði, fór með tvo kafara á vettvang. Þegar kom- ið var að bátnum var ákveðið að draga hann nær landi þar sem sjórinn væri sléttari og kafar- arnir ættu auðveldara með að at- hafna sig. Um klukkan tíu í gær- morgun hófust kafararnir handa við að skera úr skrúfunni og kláruðu verkið um hádegi í gær. ■ BAGDAD, AP Að minnsta kosti 25 Írakar létu lífið og 100 særðust í átökum Bandaríkjahers við upp- reisnarmenn í Bagdad á sunnudag. Íraskir uppreisnarmenn vörpuðu sprengjum í námunda við stjórnar- ráð Íraks í Bagdad og íraskur öryggismálafulltrúi var myrtur. Hryðjuverkamenn sem starfa í tengslum við al-Kaída hafa lýst sig ábyrga fyrir árásum á íraskar stjórnarbyggingar og bækistöðvar Bandaríkjamanna. Þá létu hryðju- verkamenn til skarar skríða á svo- nefndu grænu svæði í Bagdad, þar sem írösk yfirvöld hafa aðsetur, og við Abu Ghraib-fangelsið. Þetta er harðasta árás uppreisnarmanna í landinu á þeim tveim mánuðum sem liðnir eru síðan Bandaríkja- menn afhentu Írökum stjórnvölinn í landinu. Tvö börn og fréttamaður á sjónvarpsstöðinni Arabic TV news voru meðal þeirra sem létu lífið á sunnudag. ■ BARIST UM JAPANSKA BANKA Mikil spenna ríkir í japönskum fjármála- heimi vegna væntrar yfirtöku á UFJ bank- anum. Tveir aðrir bankar berjast um að ná tökum á UFJ og sameinast honum og mynda þar með öflugasta banka í heimi. ins, ekki þurfi t.d. að búa til nýjar götur og leggja klóak-, vatns- og rafmagnslagnir svo eitthvað sé nefnt. Á umræddu svæði er þegar talsverð byggð en mörg hús- anna eru komin til ára sinna og standast illa kröfur nútímans, auk þess sem sum eru að nánast að hruni komin. Víða þarf að rýma fyrir nýbyggingum en annars staðar má gera gömul hús upp. Þá sér Ragnar fyrir sér að athafnasvæði Eimskips flytjist frá Strandgötunni og út í Krossanes, „og í staðinn komi bryggjuhverfi meðfram strand- lengjunni.“ Það er því greini- legt að íbúðirnar geta orðið allra handa í nýjum miðbæ Akureyrar. Nýr miðbær eftir 15 ár Slæleg staða miðbæjarins á Akureyri er staðreynd og vita- skuld er einhver ábyrgur fyrir ástandinu. Ragnar Sverrisson er illfáanlegur til að hallmæla bæjaryfirvöldum síðustu ára- tuga og skella skuldinni á þau en segir þau þó eiga sinn þátt. „Bæjaryfirvöld alls staðar hafa gleymt miðbæjum, það er alveg á hreinu.“ Uppbyggingará- formin nú eru unnin í góðri samvinnu við yfirvöld og snem- ma var bæjarstjóri upplýstur um ráðabruggið. „Þegar við kynntum hugmyndir okkar fyrir Kristjáni Þór bæjarstjóra tók það hann eina mínútu að átta sig á að við værum ekki að fremja valdarán heldur væri þarna komið fólk sem vildi vinna fyrir bæinn sinn.“ Á orð- unum má merkja að þungu hlassi, eins og uppbyggingu miðbæjar, verður ekki velt nema fyrir dugnað borgaranna. Bæjaryfirvöld geta veitt ýmiss konar aðstoð og ráð en driftin verður að koma frá fólkinu. Það er svo undir kjörnum fulltrúum komið hvort hugmyndirnar verða að veruleika. Laugardaginn 18. september verður haldið opið þing um mið- bæinn þar sem öllum, Akureyr- ingum og utanbæjarmönnum, gefst færi á að láta sínar hug- myndir og skoðanir í ljós. Not- ast verður við nýstárlegar að- ferðir til að fá fram sjónarmið þátttakenda og vonast Ragnar eftir góðri þátttöku. „Ég gæli við að um fimm prósent bæjar- búa, um átta hundruð manns, komi og tjái sig,“ segir hann og bendir á að fagmenn á ýmsum sviðum muni aðstoða fólk á þinginu, leiða það í gegnum hlutina. „Svo ætla matvæla- fyrirtækin á Eyjafjarðarsvæð- inu að gefa fólki að borða, þannig að enginn ætti að fara svangur heim,“ segir Ragnar og hlær enda matmaður mikill. Niðurstöður þingsins verða tí- undaðar miðvikudaginn 22. september og svo leiðir eitt af öðru, útboð alþjóðlegrar hug- myndasamkeppni, skiladagur hugmynda og úrslit kynnt. Í kjölfarið geta gröfurnar farið af stað og hver veit nema villtustu draumar Ragnars Sverrissonar og miklu fleira fólks um nýjan, fjölmennan og iðandi miðbæ verði ekki draumur eftir fimmt- án ár heldur gallhörð staðreynd. bjorn@frettabladid.is 25 létust í Bagdad: Uppreisn vígamanna um alla borg ÓÖLD Í ÍRAK Víða var barist í Bagdad á sunnu- dag og 25 manns létu lífið. 14-15 12.9.2004 19:55 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.