Fréttablaðið - 13.09.2004, Page 57
MÁNUDAGUR 13. september 2004
Hafnarstræti 5 sími 551 6760
Síðumúli 8 sími 568 8410
www.veidihornid.is
Stoeger eru hálfsjálfvirkar haglabyssur framleiddar í Tyrklandi af fyrirtæki í eigu
Beretta. Dreifingaraðili í Bandaríkjunum er Benelli USA. Byssurnar eru
bakslagsskiftar, með snúningsbolta líkt og í Benelli og fleiri ítölskum byssum.
Hnotuskefti eða svört plastskefti.
26” hlaup. Ólarfestingar og 5 þrengingar fylgja. Frábært verð.
Aðeins 59.900.- staðgreitt.
Veiðihornið býður Stoeger á
frábæru kynningarverði
Fullt verð kr. 36,600
Tilboðsverð kr. 29,900
Vöðlur, skór, sandhlíf og belti.
Simms Freestone
öndunarvöðlu sett
Mörkinni 6, s. 568 7090
Næsti formaður
Stangaveiðifélagsins?
Nokkrum dögum eftir að Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur landaði
Norðurá í Borgarfirði, með nýjum
samningi um ána sem tekur gildi
eftir tvö ár, auk hækkunar á leig-
unni úr 45 milljónum í um 55
milljónir lýsir formaður félags-
ins, Bjarni Ómar Ragnarsson, því
yfir að hann ætli ekki að gefa kost
á sér áfram sem formaður félags-
ins. Bjarni hefur setið í stjórn
félagsins í níu ár og þar af verið
formaður í fjögur. Það er því deg-
inum ljósara að nýr maður mun
setjast í formannsstólinn á aðal-
fundi félagsins sem verður hald-
inn í nóvember. Ekki er talið lík-
legt að einhver stjórnarmanna
gefi kost á sér í þetta embætti, þó
aldrei geti maður sagt aldrei.
Frekar er líklegt að einhver sem
ekki situr í stjórninni komi til
greina og hafa nöfn Ara Þórðar-
sonar og Ólafs Hauks Ólafssonar
verið nefnd.
Staða félagsins er sterk, nýr
samningur um Norðurá og ýmis-
legt í gangi í stjórn félagsins. En
nýr formaður mun koma að félag-
inu í haust og miklar þreifingar
eiga eftir að eiga sér stað þar til
sá maður finnst.
Góður gangur víða í veiðinni
Það er víða góður gangur í veið-
inni þessa dagana, eftir miklar
rigningar. Eystri-Rangá er að
komast í 2.600 laxa og veiðimaður
sem var þar fyrir fáum dögum
veiddi 23 laxa. Einn þeirra var 14
punda fiskur, lúsugur frá hausi
niður á sporð. Ytri-Rangá hefur
gefið um 2.530 laxa, síðan kemur
Langá á Mýrum með 1.960 laxa,
Hofsá og Selá koma þar rétt á eft-
ir, Hofsá með 1.600 laxa en Selá
1.540 laxa. Blanda hefur gefið
1.500 laxa.
Lokatölur berast víða að eins
og úr Norðurá sem endaði í 1.386
löxum og Þverá sem endaði í 1.364
löxum.
Búðardalsá á Skarðsströnd er
komin vel yfir 200 laxa, Krossá er
líka komin yfir 200 laxa og
Flekkudalsá hefur gefið 222 laxa.
Veiðimenn sem voru að koma úr
Krossá fengu 3 laxa og það er víða
fiskur í henni ofarlega og gott
vatn eins og í fleiri veiðiám á
svæðinu.
Frábær gangur hefur verið í
Laxá í Dölum og hollin verið að
mokveiða, eftir að rigna tók og
fiskurinn lét sig vaða upp í ána.
Bestu hollin hafa verið að gefa á
annað hundrað laxa. ■
VEIÐI
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði
GUÐJÓN TORFI SIGURÐSSON Guðjón
veiddi maríulaxinn sinn í nú í sumar í
Fagradalsá á Skarðsströnd.
ARNAR FREYR GÍSLASON Arnar veiddi
með fallegan , 6 punda urriða af silunga-
svæðinu í Vatnsdalsá.
56-57 (28-29) Skrípó 12.9.2004 19:04 Page 3