Fréttablaðið - 13.09.2004, Page 63
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Ívan
Sölva Helgasyni
Til ÍBV
35MÁNUDAGUR 13. september 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Bandaríkjamaðurinn Victor Kuga-jevsky, sem auglýsti eftir 4 íslensk-
um prinsessum handa sonum sínum í
Morgunblaðinu síðastliðna helgi
hefur sagt að viðbrögð Íslendinga hafi
mestmegnis verið jákvæð vegna aug-
lýsingarinnar. Ætla má að aðallega
stúlkur, sem hafi litist vel á syni hans,
hafi haft samband. Þó er vitað um einn
mann sem leist ekkert á þessa auglýs-
ingu Bandaríkjamannsins. Hann hafði
ekkert á móti því að faðir væri að leita
eftir konuefni handa sonum sínum
heldur sendi viðkomandi Victor línu
þar sem hann mótmælti því að flytja
ætti fjórar íslenskar prinsessur úr landi
og gifta þær útlendingum. Hann vildi
meina að Ísland væri hreinlega of fá-
mennt til að hann gæti liðið slíkt og að
mögulega væri verið að hlunnfara fjóra
íslenska karlmenn um sálufélaga sína.
Victor viðurkennir fúslega að hann
skilji áhyggjur mannsins því hann segir
Íslendinga, bæði konur og karla, vera
æðislegt fólk og því hljóti útflutningur-
inn að vekja ugg í brjóstum lands-
manna.
Að sjálfsögðu fylktust Framsóknar-menn til Borgarfjarðar á fund þing-
flokks og landsstjórnar fyrir helgi.
Athygli vakti að einn mann vantaði en
það var Kristinn H. Gunnarsson.
Kristinn hefur það oft verið upp á kant
við áherslur flokksins í ríkisstjórn að
margir töldu að hann væri í fýlu og
hefði því frekar haldið sig heima en að
mæta flokkssystkinum sínum sem eru
ekki öll sátt við framgöngu Kristins í
ýmsum málum. Það reyndust þó vera
fyllilega eðlilegar ástæður fyrir því að
hann hélt sig fjarri góðu gamni. Hann
var staddur í brúðkaupsferð sinni í Par-
ís á meðan fundinum stóð og átti því
ekki heimangengt. Hann var að kvæn-
ast heitmey sinni, Elsu B. Friðfinns-
dóttur, formanns félags hjúkrunar-
fræðinga og fyrrum aðstoðarkonu Jóns
Kristjánssonar, heilbrigðisráðherra.
Lárétt: 2 kvenfugl, 6 vafi, 8 virðing, 9
erlend samtök, 11 sólguð, 12 drepa, 14
konunafn, 16 fæddi, 17 stefna, 18 duft,
20 á fæti, 21 lítil alda.
Lóðrétt: 1 mannsnafn, 3 átt, 4 and-
skoti, 5 óhreinka, 7 skerfur, 10 karlfugl,
13 á litinn, 15 Ö. Húnakonungur, 16
reykja, 19 tveir eins.
LAUSN.
„Ég byrjaði í þessu hefðbundna í
slenska skrauti, var að skera út
skápa og stóla og þess háttar,“ segir
Jón Adolf Steinólfsson tréskurðar-
listamaður.
„Allt viðhorf mitt breyttist síðan
eftir að ég fór í nám til Austurríkis
árið 1995. Þar sá ég það sem ég vildi
gera. Þeir eru mikið í þrívíddinni,
styttum og slíku. Það átti við mig.“
Um þessar mundir stendur yfir
sýning á verkum Jóns Adolfs í Salt-
fisksetrinu í Grindavík. Sýninguna
nefnir hann Úr viðjum hafsins, og
sýnir hann þar verk unnin úr reka-
viði.
Segja má að Jón Adolf hafi
slegið í gegn fyrir nokkrum miss-
erum, í það minnsta hjá ferðafólki
sem kemur hingað til lands, með út-
skornum tölvum og öðru í þeim dúr.
„Þar sést vírus teygja sig út úr
skjánum og fleira. Útlendingarnir
eru mjög hrifnir af þessu, sérstak-
lega Ameríkanarnir.“
Jón Adolf segir Íslendinga hins
vegar meira fyrir grófa áferð, líkt
því sem sjá má á sýningu hans í
Grindavík.
„Þar læt ég grófleikann í reka-
viðnum halda sér að hluta, og það
virðist heilla landann miklu meira.
Þessi verk eru blanda af mjög
ákveðnum línum sem ég slípa upp
alveg í hárfínt, en svo leyfi ég
þessum gráa lit og grófleika að
halda sér líka. Leyfi þessu fína að
deyja út í gróft. Þetta eru mest
rætur sem ég nota, aðallega
hnyðjur, og þær eru klofnar og
kominn skítur í þær. Þegar ég svo
pússa það og vinn koma voða
skemmtilegar línur í viðinn.“ ■
JÓN ADOLF Sýnir útskorin verk úr reka-
viði í Saltfisksetrinu í Grindavík.
Gróft og fínt í Grindavík
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
SÝNING
TRÉÚTSKURÐARMAÐUR
■ breytir rekaviði í listaverk
AFTUR Á FJALIRNAR Leikhópurinn „Á
senunni“ hefur sýningar á Paris at Night
aftur í Borgarleikhúsinu á föstudag.
Sýningin er byggð á ljóðum Jacques Pré-
vert og tónlist Josephs Kosma. Leikarar í
sýningunni eru Jóhanna Vigdís Arnardóttir
og Felix Bergsson en auk þeirra tekur þátt
í sýningunni þriggja manna hljómsveit,
skipuð Karli Olgeirssyni, Róberti Þórhalls-
syni og Stefáni Má Magnússyni.
Lárétt: 2assa, 6ef, 8akt, 9ira, 11ra,
12farga, 14marta, 16ól, 17átt, 18
sag, 20il, 21agga.
Lóðrétt: 1leif, 3sa, 4skratti, 5ata, 7
framlag, 10ara, 13grá, 15atli, 16ósa,
19gg.
62-63 (34-35) Fólk 12.9.2004 20:26 Page 3