Fréttablaðið - 13.09.2004, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Eru n‡ju
íbúðalánin
fyrir mig?
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Landsbankinn býður „fjármálastjórum heimilanna“
á opinn kynningarfund um nýju íbúðalánin.
Það er miki› í húfi og mikilvægt a› taka skynsamlegar ákvar›anir.
Á kynningarfundunum munu sérfræ›ingar bankans svara
spurningum sem brenna á vörum flestra flessa dagana.
Edda Rós Karlsdóttir, Greiningadeild Landsbankans, fjallar m.a. um n‡ju lánin
og áhrif fleirra á fjármál heimilanna, hvernig breyttir tímar kalla á n‡ja hugsun
var›andi grei›slubyr›i, ber saman lán á marka›num og tekur dæmi um hvenær
borgar sig a› endurfjármagna og hvenær ekki.
Pétur Bjarni Gu›mundsson, Fasteignafljónustu Landsbankans, l‡sir fleirri rá›gjöf
sem bankinn b‡›ur vi›skiptavinum sínum var›andi lánamálin auk fless sem hann
gerir grein fyrir fleim lánamöguleikum sem í bo›i eru hjá Landsbankanum.
A› loknum framsöguerindum sitja frummælendur og a›rir sérfræ›ingar
Landsbankans fyrir svörum. A› flví búnu gefst fólki kostur á a› leita frekari
uppl‡singa hjá rá›gjöfum bankans.
Skráning
fiú getur skrá› flig á kynningarfund
Landsbankans me› flví a› hringja
í síma 410 4000 e›a senda tölvupóst
á kynning@landsbanki.is
Fundirnir verða á eftirtöldum stö›um:
Selfoss 14. september í útibúi bankans
Akureyri 15. september í útibúi bankans
Reykjavík 16. september í a›albanka
Egilssta›ir 21. september á Hótel Héra›i
Ísafjör›ur 22. september í útibúi bankans
Fundirnir hefjast kl. 20.00.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
57
21
09
/2
00
4
Sjö dagar til
stefnu
Nú eru sjö dagar til stefnu. Mánudag-inn 20. september lamast grunnskól-
arnir á Íslandi. Það er búist við löngu og
ströngu verkfalli kennara. Verkfallið
mun hafa áhrif á allt þjóðlífið. Fjörutíu
og fimm þúsund stundatöflur verða
skyndilega marklaus plögg. Foreldrar
þurfa að endurskipuleggja líf sitt, starfs-
menn fyrirtækja að gera allskyns ráð-
stafanir. Daglegt líf þúsunda fer úr
skorðum.
Neyðarúrræði Flestir eru sammála
um að verkfall sé neyðarúrræði. Og hver
er þá staða grunnskólakennara? Hafa
kjör þeirra rýrnað? Reyndar ekki. Kjör
kennara hafa batnað á liðnum árum, sem
betur fer. Auðvitað hafa þau ekki batnað
jafnhratt og jafnmikið og kennarar vilja,
en þannig er nú einu sinni lífið.
Aðsókn að Kennaraháskóla Íslands
hefur aukist. Það er ánægjulegt og segir
okkur að kennaramenntun er eftirsókn-
arverð. Margir grunnskólar geta nú valið
úr umsækjendum um lausar stöður, sem
sýnir að kennarastarfið er líka eftirsókn-
arvert. Og við skulum ekki gleyma því að
kennarar búa við meira atvinnuöryggi en
flestir hópar og úrvals eftirlaunakerfi.
Og auðvitað eiga kennarar að fá góð
laun. Við viljum að íslenskt skólakerfi
verði það besta í heiminum, því ekkert
tryggir betur stöðu Íslands í framtíðinni.
Samanburður við önnur lönd er okkur,
því miður, ekki sérlega hagstæður.
Krakkarnir okkar eru aðeins miðlungs
nemendur í samanburði við börn í öðrum
löndum.
Bæta skólana Við miðlungs einkunn-
um er aðeins eitt að gera: Að bæta skól-
ana. Það væri verðugt og ánægjulegt
þjóðarátak, þar sem kennarar og foreldr-
ar ættu að leiða sóknina í sameiningu.
En fyrst er að afstýra verkfalli.
Sveitarfélögin, sem eru vinnuveitendur
kennara, munu aldrei geta fallist á nema
brot af kröfum kennara. Annars verður
fjandinn laus, því aðrir starfsmenn sveit-
arfélaga munu koma í halarófu á eftir
kennurum, og þá styttist nú í að ASÍ
dragi fram gömlu herlúðrana …
Kennarar eiga leikinn. Þeir blésu til
mikillar sóknar með kröfugerð sinni, en
munu vonandi fallast á að lengri tíma
tekur að ná öllum markmiðum. Kennarar
hafa vakið athygli á málstað sínum, og
minnt okkur á þá staðreynd að grunn-
skólarnir á Íslandi eru mikilvægustu
stofnanir samfélagsins. Lömum þær
ekki. ■
HRAFNS JÖKULSSONAR
BAKÞANKAR
64 bak 12.9.2004 21:56 Page 2