Tíminn - 04.10.1973, Qupperneq 15
Fimmtudagur 4. október 1973
TÍMINN
15
Fulltrúaráðsfundur Norræna
félagsins verður á morgun
ANNAÐ hvortárheldurNorræna
félagiðfulltrúaráösfund, þarsem
saman koma fulltrúar frá öllum
deildum félagsins. Fundur þessi
verður i Norræna húsinu á
morgun 5. október og hefst kl.
10:00.
Ef allar deildir félagsins senda
fulltrúa i samræmi við félaga-
fjölda má vænta rúmlega 60 full-
trúa á fundinn. Stærstu deildirnar
utan Reykjavikur, Akureyri,
Hafnarfjörður og Kópavogur
senda t.d 5 fulltrúa hver og
Reykjavikurdeildin á rétt á 24
fulltrúum. Fjórar nýjar deildir
eiga nú fulltrúa i þinginu þ.e.
Selfossdeild, Rangæingadeild,
Borgarfjarðardeild og Mýra-
sýsludeild, en allar þessar deildir
hafa verið stofnaðar á þessu ári.
Helztu málefni þingsins eru
skipulagsmál og fjármál
félaganna.
Þann 21. sept. lauk norræna
blaðamannanámskeiöinu, er
getið hefur veriö um i fjölmiðlum.
Margir góðir menn lögðu fram
krafta sina til að kynna Island,
islenzk málefni, atvinnutæki og
stofnanir. Erindi fluttu: Jón
Sigurðsson, hagrannsóknarstjóri,
Þorbjörn Sigurgeirsson, pró-
fessor, Jónas Kristjánsson, rit-
stjóri, og Vilhjálmur Þ. Gislason,
fhv. útvarpsstjóri.
Fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna, þau Adda Bára Sigfúsdóttir
Gylfi Þ. Gislason, Guðmundur G.
Þórarinsson, Konráð Þorsteins-
son og Þór Vilhjálmsson gáfu
yfirlit yfir stefnuskrár flokka
sinna og sátu fyrir svörum i lif-
legum umræðum. Þrir ráðherrar
þ.e. forsætisráðherra, mennta-
málaráðherra og iðnaðarráð-
herra tóku á móti þátttakendum
i. skrifstofum sinum og svöruðu
fyrirspurnum. Að lokum sátu
þátttakendur kvöldverðarboð
blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar.
Það var álit þátttakenda að
námskeið þetta hefði verið mjög
vel heppnað og lærdómsrikt og
það einasta, sem þeir voru
óánægðir með var, hve erfitt hefði
verið að komast i snertingu við
islenzka blaðamenn vegna þess
hve litið þeir hefðu mætt á
fundum.
Norræni menningarsjóðurinn og
islenzku flugfélögin eiga stærstan
þátt i þvi, að hægt var að efna til
þessa námskeiðs þar er þessir
aðilar gerðu það kleift að hægt
var að bjóða öllum þátttakendum
fritt far frá viðkomustöðum
islenzku flugfélaganna til Islands
og til baka.
Norræna félagið og Blaða-
mannafélag Islands þakka öllum
þeim aðilum, er hér eru nefndir
að framan og öðrum, er að nám-
skeiðinu stóðu fyrir veitta aðstoð.
Fundurinn um lífeyrissjóðina:
Deijt um aðild
atvinnurekenda
— fundurinn samþykkti ályktun um full yfirráð
verkalýðshreyfingarinnar yfir sjóðunum
A ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ var
haldinn almennur fundur um
framtið Hfeyrissjóða verkalýðs-
hreyfingarinnar. Fundurinn vará
Hótel Borg og I lok hans var
samþykkt tillaga, þar sem annars
vegarer mótmælt „fyrirhugaðri
Fordæma
byltinguna
stofnun Landssambands lifeyris-
sjóða með aðild atvinnurekenda”
og hins vegar, ',,að I kjara-
samningum i haust verði að bera
kröfuna um full yfirráð verka-
iýðshreyfingarinnar yfir lífeyris-
sjóðunum fram til sigurs”.
Til þessa fundar var boðað af
Starfsstúlknafélaginu Sókn,
Reykjavik, verkalýðsfélögunum
á Blönduósi, Skagaströnd og
Raufarhöfn, Vöku á Siglufirði,
Einingu á Akureyri og verka-
kvennafélaginu öldunni á Sauð-
árkróki.
1 frétt frá fundarboðendum
segir, að hátt á annað hundrað
manns hafi sótt fundinn, og
margir forystumenn verkalýös-
hreyfingarinnar I Reykjavik og á
Suður-, Vestur- og Norðurlandi
verið þar á meðal. Fundarstjóri
var Bjarnfriður Leósdóttir, Akra-
nesi.
A fundinum uröu talsverðar
deilur um það, hvort stofna ætti
Landssamband lifeyrissjóða
með aðild atvinnurekenda. Eð-
varð Sigurðsson og Guðjón Jóns-
son mæltu með stofnuninni, en
aðrir þeir, sem tóku til máls, voru
á móti, segir i fréttinni.
LÖGREGLUBÍLL
ENDASTAKKST A
AAIÐRI GÖTUNNI
— Ég gat ekki séð að neitt sér-
stakt væri að, það var einn bill
stöðvaður á götunni og lögreglu-
jeppinn ætlaði sýnilega fram með
honum og fór gætilega að þessu.
Allt i einu sá ég bara undir botn-
inn á honum og ég hélt að hann
ætlaði að velta út i fjöru. En
hann kom i gangstéttarbrúnina
og endastakkst siðan einhvern-
veginn áfram og stöðvaðist siðan
á hjólunum.
Þetta var lýsing ökumanns,
sem um hádegið i gær var að aka
niður Skúlagötu og varð þá
sjónarvottur, eins og margir
aörir, að þvi er lögreglujeppi
endastakkst eftir götunni og fór
þar eina veltu áður en hann stöð-
vaðist.
Einn lögreglumaður var i
bilnum og slapp hann ómeiddur,
en billinn skemmdist nokkuð.
Ekki er vitað um orðsök óhapps-
ins, en farið var með bilinn i skoð-
un — að ósk lögreglumannsins,
sem taldi að bremsurnar hefðu
tekið svo skakkt i, að billinn hefði
endastungizt. _idp_
Slökkviliðið
losaði
steypuna
Klp-Reykjavik. Um miðjan dag i
gær fór steypubill út af Þingvalla-
veginum og lagðist þar á hliðina.
ökumaðurinn slapp ómeiddur en
bifreiðin skemmdist nokkuð.
Ekki var möguleiki á að koma
henni aftur á hjólin, þvi hún var
fullhlaðin steypu. Var þvi tekið
það ráð, að fá slökkviliðsbifreið
úr Reykjavik til að fara austur og
sprauta vatni á steypuna og losa
hana þannig út áður en hún
harðnaði.
Tókst það vel og sömuleiðis að
koma bilnum aftur upp á veginn,
en eftir stendur þarna ágætlega
steyptur blettur.
í Chile
Menningar- o-g friðarsamtök Is-
lenzkra kvenna hafa sent frá sér
fréttatilkynningu, þar sem at-
burðirnir i Chile eru fordæmdir.
Einnig vill M.F.l.K. vekja athygli
á nágrannaþjóð okkar Græniend-
ingum, hvernig Danir hafa smátt
og smátt unnið að eyðileggingu
fornrar menningar og mergsogið
þjóðina efnahagslega.
Stjórn M.F.l.K. harmar þá at-
burði, sem átt hafa sér stað i
Chile. Réttkjörinni stjórn steypt
af stóli og forsetinn Allende myrt-
ur svo og þúsundir borgara. Telur
M.F.I.K. afturhald Chile bera
ábyrgðina ásamt Bandarikja-
stjórn, sem lét i té vopn fyrir 10
milljónir dollara.
Stjórn M.F.I.K. skorar á Is-
lendinga að stuðla að endurreisn
lýðræðis i Chile og rfkisstjórn Is-
lands að beita sér fyrir þvi innan
Sameinuðu þjóðanna.
Einnig vill fulltrúaráðsfundur
M.F.t.K. vekja athygli á mál-
efnum nágrannaþjóðar okkar
á Grænlandi. Vill hún benda
dönsku þjóðinni á, aö nýlendu-
stjórn á Grænlandi samrýmist
ekki nútimahugmyndum um
jafnrétti þjóðanna.
Ihlutun erlends valds hafi þeg-
ar raskað lifsháttum,siðum, trú,
listum og sjálfsvitund Grænlend-
inga. Væri heimurinn fátækari og
fáskrúðugri, ef þessi menningar-
arfur glataðist.
Vill M.F.l.K. benda á arðrán
danskra fyrirtækja á Grænlandi
og að með inngöngu Dana i Efna-
hagsbandalag Evrópu verði fjöl-
mörgum Evrópuþjóðum leyfðar
skefjalausar veiðar við Græn-
land.
Færeyingafélagið í Reykjavík:
„Hvergi að víkja"
í landhelgismálinu
1 fréttabréfi frá Færeying-
afélaginu I Reykjavik segir, að á
aðalfundi félagsins, sem haidinn
var 30. september siðastliðinn I
Norræna húsinu, hafi verið
samþykkt stuðningsyfirlýsing við
tslendinga i landhelgismálinu.
Vegna þeirra alvarlegu at-
burða, sem islenzka þjóðin hefur
nú við að etja i lifsbaráttu sinni,
lýsir aðalfundurinn fyllsta stuðn-
ingisfnum viö islenzku þjóðina og
rikisstjórn, segir i samþykktinni,
og einnig: „Fundurinn ályktar,
að þessi barátta smáþjóðar fyrir
tilverurétti sinum eigi öruggan
sigur visan — hvergi að vikja”
A aðalfundinum var Leifur
Grækarisson endurkjörinn for-
maður félagsins, en aðriristjórn
eru Ragnvald Larsen, Rúna
Didriksen, Páll Jóhannsson og
Daniel Joensen. — EJ.
Akurnesingar
Þeir sem urðu fyrir tjóni i óveðrinu 23. og
24. september s.l. tilkynni bæjarskrifstof-
unni, ef þeir óska eftir mati vegna
umsóknar til Bjargráðasjóðs.
Fólki er bent á að lesa tilkynningu Bjarg-
ráðasjóðs i blöðunum nú nýlega, þar sem
gerð er grein fyrir matsreglum.
Umsókn um mat sé skilað eigi siðar en 20.
október n.k.
Bæjarskrifstofan.
StaKVNNING
í dag og á morgun frá kl. 14-18.
Guðrún Ingvarsdóttir, húsmæðrakennari
kynnir smárétti með osti m.a. ostadýfu
o.fl.
Ókeypis nýr uppskr. bæklingur Nr. 13.
Osta- og smjörbúðin - Snorrabraut 54
—> >■ >.....— c----------
d
(Kris).