Tíminn - 04.10.1973, Side 16

Tíminn - 04.10.1973, Side 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 4. október 1973 Stefán Jónsson: Um beina skatta, kjara mál og verðbólguleiki begar rætt er um sambandiö milli beinna skatta og launa, er eölilegast aö miöa viö beina skatta á tekjur einstaklinga og barnlausra hjóna, eöa þá aöila er þurfa að greiða skatta af öllum hreinum tekjum sinum. Siöur má i þessu sambandi miða viö barna- fjölskyldur, enda skattfrádráttur vegna framfærslu barna og kostnaðar við skólanám þeirra liöuri fjölskyldubótum, sem einn- ig má mæta i öðru formi en skatt- frádrætti. Hér á eftir verður sú viðmiðun notuö, sem gildir um barnlaus hjón og einstaklinga, enda sýnir hún bezt hinn raunverulega álagningargrunn beinna skatta. Launatekjur i tveimur aðal flokkum. Segja má aö launatekjur manna skiptist i tvo aðal flokka, sem eru, annars vegar beinir skattar og hins vegar ráö- stöfunartekjur þess er aflar laun- anna. Launaumslög manna eru þvl raunverulega meö tveimur hólfum. t annaö hólfið fara beinu skattarnir, en i hitt fer sá hluti teknanna, sem launþeginn ráö- stafar sjálfur. Sú skipting sem hér um ræöir sýnir, aö skattalög hafa þá sér- stööu, miöaö við flest önnur lög, aö framkvæmd þeirra er i beinni snertingu við skattþegnana alla kaupgreiösludaga ársins, á svipaðan hátt og gildandi kjara- samningar. Hún sýnir og, að ráö- stöfunartekjur manna eru ekki siöur háðar skattalögum en kjarasamningum. Af framangreindum ástæöum er ljóst, að óraunhæft getur veriö aö gera kjarasamninga, ef óvissa rikir um hlutdeild beinu skatt- anna I launatekjunum. Þetta styöst og viö þá staðreynd, að nota má hækkun og lækkun beinna skatta sem hagstjórnar- tæki. Séu t.d. beinir skattar hækkaðir eftir að kjarasamning- ar hafa verið gerðir til langs tima, getur sú hækkun gert um- samdar iaunahækkanir að engu fyrir launþegann. Jafnvel getur skattahækkunin snúið dæminu þannig viö, að óraunhæfir verð- bólgusamningar um launahækk- un í krónutölu verði samningar um kjaraskeröingu. Hið gagn- stæða gildir um skattalækkanir. Slík áhrif eru þó að sjálfsögöu háö þvl, hvort beinir skattar eru mjög háir eða ekki. Eins og kunnugt er, hafa launa- kröfur hér oft veriö I formi verö- bólguleikja i stað raunhæfra kjarabóta. Þeir, sem slikar kröf- ur gera.afsaka sig þvi oftast með þvl aö segja: Beinu skattarnir eru okkur óviökomandi. Við ráöum þeim ekki, heldur löggjafinn. Þetta er bæöi rétt og rangt, og þó aöallega rangt, og eru ástæöurn- ar þessar: 1. Um langt árabil, hefir bæði opinber lína og opinberar upp- lýsingar um möguleikana i raun- hæfum kjaramálum legið fyrir I sambandi viö heildarsamninga. Jafnvel hefir þetta stundum verið I þvi formi, að segja má aö hin opinberu áhrif til að draga úr veröbólguleikjum hafi legiö á samningaboröinu, og þar meö viöræöugrundvöllurinn við hið opinbera. 2. Opinberir starfsmenn ráöa hér stærstu heildarsamtökum launamanna, og semja viö hiö opinbera. Þeir gegna þvi forustu- hlutverki i launamálum, enda yf- ir 1/3 af öllum vinnandi mönnum I landinu i störfum hjá hinu opin- bera. 3. 1 flestum eða öllum kjara- samningum eru ákvæöi um, á hvaöa vísitölugrunni skuli byggja kaupgreiösluvisitöluna. Beinir skattar hafa nú ekki áhrif á kaup- greiðsluvisitöluna þótt aðrir skattar hafi það. Ekki samræmist þetta nefndum afsökunum. Af þessu þrennu leiöir, að auðið á aö vera I sambandi viö heildar- samninga um launakjör, að hafa áhrif á þann þátt launateknanna, sem fer i skatthólfið i launa- umslaginu. Þótt þannig standi á, aö annar aöalþáttur kjaramálanna séu beinu skattarnir og viðræður um þann þáttinn séu jafn auöveldar og eölilegar og um hinn aðal þátt- inn, þá viröist reynslan hafa sýnt til þessa, að .þáttur skattanna hverfur oft i skuggann fyrir viga- móöi verðbólguleikaranna um hinn þáttinn. En hvaö sem segja má um þetta, þá verður þeirri staöreynd ekki hnekkt, aö ráö- stöfunartekjur manna byggjast jöfnum höndum á skattalögum og kjarasamningum. Hiö sama gild- ir og um kaupmátt launa. Skiptingin milli hólf- anna i launaumslaginu. Samkvæmt gildandi skattalög- um og siðustu skattskrám, er um- rædd skipting sú, sem greind veröur hér á eftir, og er þá, sam- anber áður greint, miöaö við ein- stakling og barnlaus hjón, enda þar að finna hinn raunverulega álagningargrunn skattanna. Viö siöustu álagningu beinna skatta, var tekjuskattsfrjáls per- sónufrádráttur einstaklings kr. 185.000,00, en barnlausra hjóna kr. 282,000,00. Þótt þessi persónu- frádráttur væri tekjuskattsfrjáls, var greitt af honum bæöi útsvar og viölagasjóösgjald. A tvö lægri skattþrepin, eða tekjur, kr. 96.000,00, umfram persónufrá- dráttinn, kom útsvar, viölaga- sjóðsgjald og tekjuskattur er nam ca. 40%. A allar tekjur umfram þetta, námu þessir beinu skattar 55% af heild. Hvaö þýöir nú þetta, þegar skipt er i hólfin tvö I launa- umslaginu?. Tökum dæmi af hjónum með eina milljón krónur I hreinar árstekjur og einhleypum manni eða konu með sömu tekjur. Eins og áöur er sagt, er per- sónufrádráttur hjóna kr. 282.000,00 og grunnur tveggja lægri skattþrepanna kr. 96.000,00, eöa samtals persónufrádráttur og lægri skattþrepin kr. 378.000,00. Af þessum tekjum greiða hjónin ca. kr. 70.000,00 I umrædda beina skatta. Hafi þau haft eina milljón króna I hreinar tekjur, er eftir að leggja á kr. 622.000,00, en af þess- ari upphæö greiða þau I nefnda skatta kr. 342.000,00, eða 55%. Samtals eru þvi skattarnir kr. 412.000,00, eða 41,2% af hreinum tekjum i heild. Skiptingin milli hólfanna I launaumslagi hjón- anna er því þessi: Beinir skattar kr. 412.000,00 og eigin ráð- stöfunartekjur kr. 588.000,00. Dæmiö af einhleypa manninum eöa konunni, reiknaö á sama hátt og af hjónunum, er þannig: Skatt- ar kr. 454.000,00, eöa 45,4% af heild, en eigin ráðstöfunartekjur kr. 546.000,00, eða 54,6% af heild, miöaö við hreinar árstekjur aö upphæö kr. ein milljón. Af þessu er ljóst, aö veröi tekjurnar nokk- uö hærri, fara helmingaskipti milli hólfanna I launaumslaginu að nálgast. Einnig er ljóst, aö fari tekjurnar aö meötöldum persónu- frádrætti yfir kr. 280.000,00, þá greiðir einstaklingurinn af öllum hreinum tekjum umfram kr. 280.000,00 minnst 55% I beina skatta. Allar viðbótar kaupkröfur og kauphækkanir, ber þvl að miöa viö skiptinguna: 55% I beina skatta og 45% til eigin ráð- stöfunar. 1 samband við framangreinda skiptingu, má ekki gleyma einu þýöingarmiklu atriöi, og er það þetta: Kauphækkun, sem er I ósamræmi við þjóöartekjur og þvl óraunhæf, leiðir af sér inn- lenda verðbólgu, sem getur eytt meira en þeim auknu ráö- stöfunartekjum sem fást viö slik- ar kauphækkanir. Af þessum sök- um hefi ég nefnt slikt verðbólgu- leiki, samanber grein um þetta efni er ég skrifaði I Tímann 19. ágúst s.l. Undanþágur frá skatti og skattsvik. Hiö svo kallaða skattsvika- spjall virðist orðinn fastur liður til afsökunar um háa skatta, enda óspart gefið i skyn, að launþeginn verði að borga fyrir skattsvikar- ana. 1 þessu taka þátt opinberir fjölmiðlar og stjórnmálablöð. Oft eru þessar afsakanir fremur til að villa sýn en upplýsa hið rétta. Virðast þær oft hliðstæöar þvi, aö sagt væri: Vöruverö hjá verzlunum er al- mennt of hátt sakir þess, að I stöku verzlun er brotizt inn og stolið. Allir verða þvi að borga fyrir þjófana. Ekki mun þvi mótmælt, að skattsvik eigi sér stað. Full rök eru þó fyrir þvi, að núverandi eftirlit og refsing fyrir skattsvik nægi til að hindra, að skattsvik, sem ekki finnast, nemi fremur lágum fjárhæðum. Um vissa tegund smærri skattsvika verður þó seint ráöið. Má þar nefna nokkur dæmi: Bóndinn gefur máske börnum sinum mjólkurlitir án þess að telja fram andvirði hans. Hið sama gildir um sjómanninn, sem fer meö fisk með sér heim i soðn- inguna. Kaupmaðurinn getur og tekiö kjötbita úr eigin verzlun i soðningu og látið andvirðið koma fram I vörurýrnun. Iönrekandinn getur gert hið sama. En i smáum stil verður þetta að vera, ef ekki á aö vakna grunur. Það, sem menn þurfa aö hafa i huga I sambandi við skattsvika- spjalliö, er aðallega tvennt. í fyrsta lagi, að lögbrot um skatt- svik er sérmál, sem aldrei getur réttlætt of háa skatta á löghlýðna aöila, og þvi fráleitt aö þeir þurfi aö borga fyrir skattsvikara. 1 ööru lagi, að rugla ekki saman skattsvikum og löglegum undan- þágum frá skattgreiðslum. En til aö mæta löglegum undanþágum er lagt á þá er hafa þær ekki. Löglegar undanþágur frá skatt- greiðslu eru nú i það rlkum mæli, aö viö liggur, aö likja megi sliku viö námu. Skulu hér nefnd nokkur dæmi af mörgum: 1. Forstjóri fyrir fjölskyldufyrir- tæki hefir rétt til að reikna sér lægstu framfærslulaun, sem þýöir aö færa skattgreiðslu milli sin og fyrirtækisins. Þetta skekkir skattasaman- buröinn viö aöra forstjóra, sem litiö eða ekkert eiga i fyrirtækjunum er þeir stjórna, og hafa þvi ekki hag af slíkri tilfærslu. Þessu ósamræmi má vafalitiö breyta með þvi, aö skylda forstjóra fjölskyldu- fyrirtækja og hliöstæðra eigin fyrirtækja til að reikna sér hliðstæö laun og aðrir forstjór- ar hafat.d. opinberir forstjór- ar. 2. Sjómenn hafa verulegar undanþágur frá sköttum. Er slikt til komið i sambandi við lausn á kjarakröfum þeirra og réttlætt með þvi, að skatta- Ivilnunin eigi að laöa menn til starfa á fiskiskipum og kaup- skipum. Vitanlega geta jafn viötækar undanþágur og hér um ræðir fyrir fjölmenna stétt manna verið varhugaverðar vegna fordæmis. Auk þess sem þær sanna, aö fordæmi eru fyr- ir hendi um að leysa vinnudeil- ur með lækkun beinna skatta. 3. Vextir og vaxtavextir af sparifé eru skattfrjálsir hjá öllum, sem ekki skulda ákveðin lán. Hið sama gildir um skyldu- sparnað, bæöi hin spöruðu laun og vextina. Sömuleiðis gildir þetta um viss tryggingargjöld, bæöi um iðgjöldin sjálf og notkun tryggingarfjárins við útborgun. Hins vegar eru vext- ir og vaxtavextir af sparifé eða tryggingarfé, sem lagt er I lif- eyrissjóði, ekki skattfrjálst. Heldur er þessi samansparaöa vaxtaeign skattlögð við notkun sem atvinnutekjur i stað þess að lita á hana sem skattfrjálsa eign eins og vexti af öðru spari- og tryggingarfé. Þetta skapar ósamræmi um grunn til álagn- ingar beinna skatta og skekkir eðlilegan samanburð milli skattgreiðslu einstaklinga. 4. Samningsbundnir bifreiða- styrkir eru skattfrjálsir að vissu marki. Hér er um vanda- mál að ræða, sem engin skatt- yfirvöld geta framkvæmt á jafnréttisgrundvelli, að óbreyttum gildandi reglum. Eign og notkun einkabifreiða er nú almenn. Sumir fá veru- legan skattfrádrátt vegna bif- reiðakostnaðar, en aðrir ekki, þótt bifreiðanotkunin i sam- bandi við störfin sé hin sama. Þessu misrétti i skattamálum má að sjálfsögðu breyta. Virð- ist þar aðallega um tvær leiðir aðræða. önnur er sú, að banna allan frádrátt á bifreiðastyrkj- um, en hin er, að leyfa öllum einkabifreiðaeigendum lág- marksfrádrátt fyrir bifreiða- kostnaði, og meta jafnframt sérstaklega miklar þarfir manna i þessu efni. Rekstrar- kostnaöur bifreiða er nú orðinn mjög hár. Má telja, að hann jafngildi meginhlutanum af hinum tekjuskattsfrjálsa per- sónufrádrætti. Misrétti I skattamálum vegna þessa kostnaðar getur þvi bókstaf- lega kallað á afsakanleg skatt- svik, enda ekki auðvelt að greiöa 55% i beina skatta af þessum kostnaði. 5. Giftar konur, sem afla tekna utan heimilis, þurfa ekki að greiða tekjuskatt nema af hálfum tekjum sinum. Þetta ákvæði skattalaganna er löngu úrelt, og nú orðið áberandi dæmi um fráleitt misrétti I skattamálum. Hins vegar sannar þessi fráleita skattlvilnun, hversu erfitt er að fjarlægja gamla drauga, ef þeir festa rætur I skattalögum eöa öörum lögum um kjara- mál. Þótt ekki séu nefnd fleiri dæmi en aö framan greinir, þá nægja þau til aö sanna tvennt. 1 fyrsta lagi, að löglegar undanþágur frá skattgreiöslu skapa misrétti I kjaramálum og rugla jafnframt samanburð á skattbyrði og ráð- stöfunartekjum hliöstæöra aðila. 1 öðru lagi sanna þessi dæmi, aö á þessu sviöi hafa launamanna- samtökin verk að vinna, ef þau vilja starfa raunhæft að kjarabót- um og kjarajafnrétti. Verðbólguleikir eru ekki kjarabót. Lög um beina skatta eiga að vera I þvi formi, aö þvi er skatta á launatekjur snertir, að hver mað- ur meö barnaskólapróf i reikningi geti gert sér ljóst fyrirfram, hve stór hluti af hreinum launatekj- um hans fer i skatthólfið i launa- umslaginu. Formiö á núgildandi skattalögum fullnægir þessu atriði, og er það einn aðalkostur þeirra. Aðalókostur núgildandi skatta- laga er hins vegar sá, að minu áliti, aö persónufrádráttur er mikiö of lágur, tekjuskattur tals- vert of hár og gamlar undanþág- ur ýmist litið leiöréttar eða litið samræmdar i jafnréttisátt. Leiðrétting á þessu myndi. máske þýöa einhverja rýrnun tekna hjá hinu opinbera, og þar meö draga úr opinberri verð- bólguþenslu. En teljist ekki þörf á aö draga úr opinberri þenslu, mætti færa rýrnun teknanna af beinu sköttunum I form óbeinna skatta, sem þó mættu ekki koma I vlstöludæmið, enda gera beinu skattarnir það ekki nú. Einn kosturinn við tilfærslu úr beinum sköttum i óbeina skatta er sá, aö slikt skapar ráödeildar- mönnum möguleikana til að tak- g Framhald á z. siðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.