Tíminn - 07.10.1973, Blaðsíða 40
...... 1 1,1,1
Sunnudagur 7. október 1973.
GHÐI
fyrir góúan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
I I I 1 •
MERKIÐ, SEM GLEÐUR
Hittumst i haupfélaginu
Laugardaginn 6. október var
opnuð að Kjarvalsstöðum yfirlits-
sýning á verkum Sverris
Haraldssonar listmálara. Sverrir
byrjaði fyrst að mála 12 ára gam-
all, árið 1942, og á sýningu þessari
er leitast við að sýna úrval þeirra
mynda, sem listamaðurinn hefur
gert þessi 30ársíðan. Sýningin er
nefnd Myndir l942-’73 og eru á
henni alls 233 málverk, þar af að-
eins 10 til sölu. Hin eru nær öll i
einkaeign (fáeinar myndir
tilheyra söfnum).
Sýningunni er skipt i tvennt. 1
öðrum salnum i myndlistarhús-
inu, þ.e. Kjarvalssal, eru myndir
frá 1942 fram til 1966. t hinum
salnum eru myndir frá 1966 fram
til þessa dags, þar af allstór hluti,
sem aldrei hefur komið fyrir
sjónir almennings áður.
A siðustu sex árum hefur
Sverrir haldið tvær sjálfstæðar
sýningar i Casa Nova árið 1966 og
1969, og auk þess tók hann þátt i
samnorrænni sýningu að
Kjarvalsstöðum i fyrra.
Undirbúningur þessarar miklu
sýningar, sem opin verður fram
Kjarvalsstöðum
— Vona að ég móli ekki eins vondar
myndir eftir þessa sýningu, segir
listamaðurinn, sem varð dolfallinn yfir
mótífum Þingvalla í sumar
til 28. þ.m. hefur staðið yfir i tæpt
ár. Auk listamannsins sjálfs hafa
einkum þeir Garðar Gislason og
Knútur Bruun unnið að 'undirbún-
ingi hennar, en einnig ýmsir vinir
listamannsins og starfsfólks
Kjarvalsstaða.
Eins og fyrr sagði eru nær allar
myndirnar i einkaeign, og fólst
þvi hvað mest vinna i þvi að hafa
samband við hina fjölmörgu
eigendur. Safnað hafði verið
saman um 300 myndum fyrir
sýninguna, en sökum ónógs rúms
komust ekki „nema” 233 myndir
upp.
• Aðspurður um áætlaðan
heildarfjölda mynda þeirra, sem
hann hefur gert um ævina, kvaðst
Sverrir álita, að það væru að
llkindum minnst helmingi fleiri
myndir en þetta. Við spurðum
hann, hvort hann væri ánægður
með það úrval, sem þarna væri
komið saman. Sverrir kvaðst
vera allánægður með það, en þó
kvaðst hann muna eftir ýmsum
myndum, sem hann hefði viljað,
að þarna kæmu fram, en ekki
tókst að hafa upp á.
Misjafnlega vond
— Hvað gekk þér helzt til með
þessari viðamiklu sýningu,
Sverrir?
Framhald á bls. 15.
Herjólfsdalur, blýantsteikning, er Sverrir gerði 12 ára gamall heima f
Eyjum.
Hún nýtur sin ekki f svarthvftu bessi.
Sjálfsmynd frá 1970
MYNDIR
1942
llér sjáum við listamanninn, Sverri llaraldsson. Afsaka verður, að myndirnar sjást ekki sem skyldi, en málverkasýning verður ekki skoðuð
af bliiðum. (Myndir: Gunnar)
Yfirlitssýning
Sverris að
„Skammakrókurinn”, — sjá grein.
Sverrir segist ekki hafa mikla æfingu I hestamyndum. En hvað finnst
ykkur um árangurinn.