Tíminn - 21.10.1973, Side 5

Tíminn - 21.10.1973, Side 5
Sunnudagur 21. október 1973 TÍMINN 5 Allt fyrir ástina Kanínu-stúlkurnar bólusettar gegn inflúensu Hugh Hefner, milljóna- mæringurinn sem á Playboy- klúbbana út um allan heim, tek- ur ekki þá áhættu, að starfs- fólkið leggist allt í inflúensu i einu, ef faraldur er á ferðinni. Hann lætur bólusetja allan mannskapinn, og þá ekki sizt blessaðar kaninu-stúlkurnar, sem klúbbarnir hans eru frægir fyrir. Og til þess að allt gangi nú sem bezt, þá fékk hann þennan ljómandi laglega lækni til verksins. Hann varð svolitið áð tala um fyrir henni Tracey i Playboy-klúbbnum i Park Lane i London, en hún sann- færðist um, að þetta væri ekkert sárt, þegar hann notar þessa nýju „bólusetningar-byssu”. Atalanta Foxweller meira virði i augum Stefano Massimo en auður föður hans, Vittorio Massimo. Þegar Stefano, sem er aðeins átján ára, kvæntist Atalanta I London fyrir skömmu, gerði faðirinn hann arflausan. — Stefano er alltof ungur til aö gana i hjónaband, sagði hinn strangi faðir, — og þess vegna fær hann ekki eyri. Það eru hreint engir smápeningar, sem um er að ræða. Vittorio Massimo er italskur fursti, og eignir hans eru metnar á að minnsta kosti 750 milljónir islenzkra króna. Framvegis ætlar hún aðallega að nota heilasellurnar! heitir Over Hvam (Efri- Hvammur?) og þar fæddist Alice fyrir 21 ári. Með henni á búgarðinum býr kærastinn hennar, sem heitir Peter og er flugmaður. Einnig býr hjá þeim vinur hans og hann hjálpar Peter við bústörfin. Alice bjó i Kanada um tima, og vann þar, en hana langaði alltaf heim. Þegar heim til Danmerkur kom var eftirspurnin eftir henni sem fyrirsætu svo mikil, að hún segist nú vera orðin þreytt á tizku- og fatasýningum og slikum hégóma. — Nú ætla ég að fara að lesa undir próf inn i háskóla og fara að nota heila- sellurnar, segir Alice. Við sjáum hér tvær myndir af henni, á annarri er hún að flýta sér að hafa fataskipti á tizku- sýningu og á hinni er hún mjög alvarleg á svipinn og hefur sett hárkollu á höfuðið, — sem hún segist nú ætla að fara að nota. Systkinin sitja saman í ró Þau hafa litið verið samvistum að undanförnu þessi háttættuðu (sbr. gamla Nóa) systkini, þau Caroline, sem er 16 ára og Albert 15 ára, börn fursta- hjónanna i Monaco. Caroline hefur stundað nám i Englandi, en síðastl. tvo mánuði hefur Albert bróðir hennar verið á ferðalagi viða um lönd. Þarna eru þau i góðu yfirlæti á strönd- inni i hinu farga en litla landi, Monaco. En i næsta mánuði fer Caroline aftur i brezka klausturskólann, sem er vist nokkuð strangur, og það er um að gera að taka lifinu meö ró þangað til! Alice Madsen heitir hún og er fræg fyrirsæta i Danmörku. Hún vinnur mest við tizkusýningar i Kaupmannahöfn, sem eru haldnar þrisvar til fjórum sinn- um ári. En hún vinnur einnig mikið á Jótlandi og þar á hún heima. Hún býr á gömlum búgarði, sem

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.