Tíminn - 21.10.1973, Síða 19

Tíminn - 21.10.1973, Síða 19
Sunnudagur 21. október 1973. TÍMINN 19 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Fra-mkvæmdastjóri: Kristinn Kinnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón He^gason, Tómas Karlsson, AuglýsingasTíjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- •stofur I Áðalstræti 7, slmi 26500 — afgreiðslusími ÍS323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands,- i iausasölu 22 kr. eintakiö. Blaöaprent h.f. Samstillt átök í efnahagsmálum í stefnuræðunni, sem ólafur Jóhannesson forsætisráðherra flutti á Alþingi siðastl. fimmtudag, vék hann nokkuð að efnahagsmál- unum. Honum fórust m.a. orð á þessa leið: ,,Þótt horfur um afkomu sjávarútvegs og greiðslujöfnuð þjóðarbúsins séu allgóðar fyrir næstu mánuði, getur hin öra verðbólguþróun innanlands á siðustu mánuðum stefnt hvoru tveggja i hættu, þegar fram i sækir, greiðslu- jöfnuði og samkeppnisstöðu útflutnings og ann- arra greina, sem mæta erlendri samkeppni. Þrálát verðbólguþróun hér á landi siðustu 35 árin sýnir glöggt, hve erfiðlega hefur gengið að hafa i senn hemil á verðbólgunni og tryggja stöðuga framleiðslu og atvinnu. Árangursrikt andóf gegn verðbólgu hlýtur að byggjast á samstilltu átaki á sviði launa- og verðlagsmála, fjármála rikisins og annarra opinberra aðila og gengis-, peninga- og lána- mála. Rikisstjórnin mun eftir þvi sem i hennar valdi stendur stuðla að sliku samstilltu átaki. Hinir almennu kjarasamningar, sem standa fyrir dyrum i haust, bæði milli ASÍ og vinnu- veitenda og BSRB, BHM og rikisins, ráða miklu um það, hvernig til tekst i þessum efnum á árinu 1974. Hin öra aukning kaupmáttar tekna almenn- ings siðastliðin þrjú ár ætti að vera góð undir- staða skynsamlegrar hófstillingar við gerð hinna almennu kjarasamninga, sem nú standa fyrir dyrum. Afstaða rikisvaldsins i kjara-, samningum við BSRB og BHM mun að sjálf- sögðu einnig mótast af þessum viðhorfum. Vonandi tekst einnig að ná samkomulagi um endurskoðun á núgildandi fyrirkomulagi visi- tölubindingar kaupgjalds, sem i senn takmark- ar svigrúm stjórnvalda til hagstjórnar og veld- ur á margan hátt óeðlilegri mismunun. Visitölubindinguna má þó auðvitað ekki skoða einangraða út af fyrir sig, heldur sem hluta af aðferðinni við kaupgjaldsákvarðanir i heild. Þegar vel er skoðað, er ákvörðun launa eitt mikilvægasta stjórntækihagkerfisins. Mikið er þvi i húfi, að vel sé á þessu valdi haldið af handhöfum þess. Samtökum verkalýðs og vinnuveitenda. Rikisstjórnin mun á næstunni fyrir sitt leyti gera allt það, er i hennar valdi stendur til að hamla gegn hættulegri verðbólguþróun og stuðla að varnalegra jafnvægi i þjóðar- búskapnum. Það telur hún sitt höfuð verkefni. Það má þvi vei vera að fara verði eitthvað hægar i framkvæmdum á næsta ári en þessu, bæði hjá hinu opinbera og af hálfu einkaaðila. Sliks getur verið þörf til að draga úr of mikilli þenslu og eins vegna rikisfjármála”. Vissulega er mikilvægt, að þjóðin gefi þess- um varnaðarorðum forsætisráðherrans fyllsta gaum. Þvi aðeins tekst að tryggja hérblómlegt atvinnulif og batnandi lifskjör, að hægt sé að ná nægilegu taumhaldi á verðbólgunni. Þar þurfa samtök vinnumarkaðarins og rikisvaldið að leggjast á eitt. Sá vandi, sem hér er glimt við, er miklu meiri nú en venjulega, sökum hinna miklu verðhækkanna á aðfluttum neyzluvörum, sem enn er ekki séð fyrir endann á. Við þetta hafa svo bætzt óhagstæðar gengisbreytingar erlend- is. — Þ.Þ. Helge Christophersen, Notionen, Osló: Bandarísku risabúin kúga verkafólk sitt Auðmenn græða offjór á ódýru vinnuafli LANDBÚNAÐUR i Banda- rikjunum er svo stór i sniðum, að samanburður á honum og norskum landbúnaði kemur naumast til álita. Skilyrði til landbúnaðar eru alveg frábær viða i Bandarikjunum, en hér i Noregi er loftslag óhagstætt og landslagið óþægilega hæð- ótt. Margir vorkenna norskum bændum, og ekki að ástæðu- lausu. Landbúnaður er hins vegar langstærsti og fjársterkasti atvinnuvegurinn i Bandarikj- unum. Hagnaður af jarðrækt i _ Kaliforniu einni er um fimm milljarðar dollara á ári. Varla er viðeigandi að nefna „bændur” i þessu sambandi, heldur stórrekstur eða risa- fyrirtæki. Sjö af hundraði „bænda” i Kaliforniu ráða yfir fjórum fimmtu hlutum ræktarlands- ins, og 2,4 af hundraði hafa á sinum snærum um þrjá fimmtu vinnuaflsins. GEFA má nokkra hugmynd um stórreksturinn með þvi að taka sem dæmi einn „bænd- anna”, sem þó er siöur en svo einstakur i sinni röð. Hann heitir Robert A. Magowan og er forstjóri J. G. Boswell bús- ins i Bandarikjunum og Astraliu. Auk þess er hann forstjóri stórfyrirtækja eins og Caterpillar Tractor, Band of California, Tetra- board Corp., og járnbraut- arfélagsins Southern Pacific Co„ Hann er einnig forstjóri Foundation for American Agriculture, en Merill L. Magowan, sonur hans, er sölu- stjóri hjá Merill Lynch, Pierce, Fenner & Smith. Báðir eru þeir feðgar i stjórn Safeway, sem er næststærsta stórverzlanasamsteypa i heimi, og Magowan eldri er formaður stjórnarinnar. Stórreksturinn ýtir smábændunum til hliðar, og eru þar að verki bæði oliufélög bankar og aðrir fjársterkir aðilar. Norskættaðir Banda- rikjamenn i mið-vestur fylkj- unum hafa til þessa fengið að vera i friði að mestu. Framvindan i Kaliforniu hefir þó vakið nokkurn ugg meðal bænda hvarvetna i Bandarikj- unum. Landbúnaðarverka- menríirnir. sem ekkert eiga en vinna á búgöröunum, bera einnig ugg i brjósti. Stjórnend- ur stórrekstrarins stefna ein- mitt að þvi að græða offjár á ódýru vinnuafli og hafa oft þúsundir manna i vinnu. Landbúnaðarverkamennirnir eru vinnusömustu og arð- rændustu verkamenn i Banda- rikjunum, og þeir eru yfir þrjár milljónir. RALPH Nader, hinn at- hafnasami baráttumaður neytenda i Bandarikjunum, hefir varið miklum tima i að kanna landbúnaðarmálin i Kaliforniu og ritað 900 blað- siöna bók um þá athugun. Þar segir hann meðal annars: „Stjórnendur stórrekstrar i landbúnaði i Kaliforniu hafa mútað, hrætt eða gert sam- seka helztu embættismenn fylkisins og sveitarstjórna, og hafa á þann hátt á valdi sinu einmitt þá menn, sem eiga i raun og veru að halda um stjórnartaumana. Samsekt stórrekstrar i landbúnaði og stjórnmálaforingja i Kali- forniu hefir komið á eins kon- ar öfugum sósialisma, þar sem framleiðslutækin ráða yf- ir rikinu en rikið ekki fram- leiðslutækjunum.” Stórreksturinn er orðinn svo máttugur, að hann fær millj- Ralph Nadcr arða dollara i styrki ár hvert. J. G. Boswell fékk 21,4 millj- ónir dollara i styrki á fjórum árum, og fær auk þess meiri styrki i Astraliu en nokkur annar aðili. Mikið af þessu rennur til kosningabaráttu stjórnmála- og embættis- manna. STÓRREKSTURINN hefir varið svimandi fjárhæðum til stuðnings Nixon forseta, auk þess sem variö hefir verið til þess að reyna að koma Cesar Chavez á kné, en hann er af mexikönsku bergi bortinn, vann fyrum á vfnekrum, en er nú leiðtogi landbúnaðarverka- manna. Landbúnaöarverkamenn- irnir eru yfirleitt blakkir á hörund, flestir „brúnir” og ættaðir frá Mexikó. Þeir eru þó engu síöur Bandaríkja- menn en aðrir þegnar. Chavez, sem er talinn einn af helztu arftökum Martin Luth- er Kings, stofnaöi samtök landbúnaðarverkamanna og veitir þeim forustu, en þau eru i launþegasamböndum Bandarikjanna. LANDBÚNAÐARVERKA- MENNIRNIR eru þrælar nú- timans og vegna litlu betur en forfeðrum þeirra á plant- ekrunum. Samkvæmt opin- berum skýrslum er fjóröungur þessara verkamanna undir 16 ára aldri, og nálega áttundi hlutinn börn á aldrinum 11-13 ára. Sú nefnd öldungadeildar Bandarikjaþings, sem hefir kynnt sér þessi mál, segir i skýrslu sinni: „Langalgengasta ástæða þess, að svo ung börn vinna þessi störf, er að fyrirvinna fjölskyldunnar hefir lægri laun en svo, að þau hrökkvi fyrir lágmarksþörfum. Börn, sem stunda jafnerfiða vinnu, eru vannærö og ná aldrei full- um þroska. Þar að auki búa þau við viövarandi þreytu, sem lamar mótstöðuafl þeirra gegn sjúkdómum”. Þúsundir barna geta ekki stundað skóla vegna þess, að þau verða að meta meira að draga fram lifið. Tekjur landbúnaðarverkamannanna eru langt neðan við svonefnd fátæktarmörk. Kálhöfuð sem norskir neytendur verða að greiða með átta krónum norskum, gefur landbúnaðar- verkamönnunum aðeins örfáa aura i aðra hönd.- Framleiðendurnir græða hins vegar stórfé. ENGIR bandariskir þegnar búa við jafnléleg húsakynni og landbúnaðarverkamennirnir. Ungbarnadauöi hjá þeim er 125% yfir meðaltalinu i Bandarikjunum, dauðsföll i vinnuslysum eru þrisvar sinnum tiðari en meðaltal i opinberum skýrslum, og svipað má segja um sjúk dómstilfelli. Meðalaldur landbúnaðarverkamanna er aðeins 49 ár. Stjórnendur stórrekstrar i landbúnaöiog fyrrverandi þrælahaldarar hafa séð svo um, að landbúnaðar- verkamenn njóta að litlu leyti verndar bandariskra laga um samtakarétt eða vinnuað- búnað. Oldungadeildarnefndin segir landbúnaðrverkamenn „tiðast útilokaða frá hefð- bundnum réttindum vinnandi manna i Bandarikjunum og fylkjunum,eða njóta þeirra að litu leyti i bezta falli. Nefna má i þessu sambandi rétt til atvinnuleysistrygginga, vinnuslysatrygginga, hvers konar velferðarstyrkja, lágmarkslauna og verndar , gegn barnaþrælkun”. John Steinbeck hefir lýst kjörum landbúnaðarverkamannanna i mörgum bóka sinna, til dæmis Þrúgum reiðinnar. ÞEGAR landbúnaðarverka- menn gera verkfall, flytja stjórnendur . stórrekstrarins ólöglega verkamenn frá Mexikó I þúsundatali, en þar rikir neyð og atvinnuleysi. Fæstum er kunnugt, þegar þeir eru ginntir yfir landa- mærin, að þeir eigi að gerast verkfallsbrjótar. Þegar verkamennirnir efna til mót- mæla, koma þeir Richard Nixon forseti og Ronald Regan fylkisstjóri i Kaliforniu fram I sjónvarpi og eta þar verkfalls- vinber til þess að auglýsa fyrirtækin, sem neita að með- höndla starfsfólk sitt sem menn. Stórreksturinn hefir einnig Framhald á bls. 39.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.