Tíminn - 21.10.1973, Side 40
MERKIÐ.SEM GLEÐUR
HHtumst i kaupfélaginu
GBÐI
fyrirgóóun mat
^ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
'--------------------------—'
Sunnudagur 21. uktóber 1973.
■-
Tveir Kenyamenn í heimsókn:
Fó aðstoð við uppbygg-
ingu samvinnufélaganna
Seinnihluta vikunnar voru
tveir góðir gestir frá Afriku-
rikinu Kenya i heimsókn hér á
landi. Það voru þeir Muliro,
sendiherra Kenya á Norður-
löndum meö aðsetur i
Stokkhólmi og dr. Kagunda,
deildarstjóri i fjármála- og
efnahagsáætlanaráðuneyti
Kenya. Þeir komu hingað til
lands á fimmtudagskvöldið,
og héldu utan i gærmorgun.
Siðdegis á föstudag, hélt
utanrikisráðuneytið fund með
blaðamönnum, þar sem hinir
erlendu gestir svöruðu
spurningum fréttamanna.
Fram kom að gestirnir
ræddu við islenzka ráðamenn
og kynntu sér samvinnu-
rekstur i ýmsum myndum.
Þannig skoðuðu þeir
mjólkurbúið á Selfossi og
ræddu við forstjóra Sam-
bandsins, auk þess em þeir
áttu viðræður við Einar
Agústsson, utanrikisráðherra
og forystumenn Fram-
kvæmdastofnunnar rikisins.
Lýstu gestirnir yfir ánægju
sinni með dvöl sina hér, og
það, sem þeir hefu fengið að
sjá og heyra.
Þeir sögðust vera hingað
komnir fyrst og fremst til að
þakka þjóðinni og rikis-
stjórninni fyrir þá góövild,
sem Kenyamenn hefðu fundið
að væri á milli rikjanna.
Kenya og tsland hefðu þegar
haft samstarf á alþjóða-
vettvangi og væru sjónarmið
landanna hin sömu i mörgum
þýðingarmiklum málum.
Þannig væri afstaðan t.d. hin
sama varðandi málefni haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna.
Þá sagöi hann, að Kenya-
menn væru að byggja upp
samvinnustarf i landi sinu, og
það væri sérstakt ánægjuefni,
að meðal þeirra mörgu
Norðurlandabúa, sem kæmu
til Kenya til þess að aöstoða
við eflingu og uppbyggingu
samvinnuhreyfingarinnar þar
væru fimm tslendingar.
Þetta kváðust þeir vilja
þakka fyrir. Kenya væri
þróunarriki og þvi sérstaklega
mikiivægt fyrir það að eiga
vini sem islenzku þjóðina og
rikisstjórnina.
Þá töldu þeir, að tslendingar
hefðu sérþekkingu á mörgum
sviðum, þar sem Kenyamenn
væru litt kunnandi, einkum þó
i sjávarútvegi, en eins á öðr-
um sviðum, svo sem i sam-
vinnurekstri. Það skapaði
grundvöll nánara samstarfs.
Gestirnir upplýstu einnig
nokkuð um land sitt og þjóð.
Kenya hlaut sjálfstæði fyrir
um einum áratug siðan.
Þjóðin telur um 12 milljónir,
en fólksfjölgunin er um 3.3% á
ári. Þjóðartekjur á ibúa eru
mjög lágar, eða aðeins 21354
bandariskir dalir á ibúa á ári.
Rúmur helmingur lands-
manna væri undir 15 ára aldri.
Unnið væri að eflingu
menntunar. Nú væru um tvær
milljónir barna i barnaskól-
um. Það eru um 70 % allra
barna á umræddum aldri.
Stefnt væri að ókeypis
menntun fyrir öll börn, en sem
stendur væri það aðeins að
hluta til komið til fram-
kvæmda.
Sem stendur starfar aðeins
einn stjórnmálaflokkur i land-
inu, þótt aðrir flokkar séu ekki
bannaðir, að sögn gestanna.
Töldu þeir, að þetta kerfi hefði
reynzt vel. Frjáls skoðana-
skipti væru innah flokksins, og
þingmenn greiddu oft atkvæði
gegn rikisstjórninni.
Þá sagöi hann, að allir þing-
menn sem leituðu endurkjörs,
yrðu að fara i prófkjör, og
yrðu oft miklar breytingar i
þvi. 1 siðustu kosningum hefðu
104 af 170 þingmönnum tapað
þingsætum sinum, þar á
meðal 5ráðherrar. Þetta kerfi
reyndist þvi vera mjög lýð-
ræðislegt.
I landinu er lögð mikil
áherzla á atvinnu-
uppbyggingu, bæði með eigin
fjármagni og erlendu fjár-
magni i samstarfi við rikis-
valdið.
Kenyamenn leggja nú mikla
áherzlu á aukningu ferða-
mannastraums til landsins, en
erlendir ferðamenn eru nú um
hálf milljón á ári og fjölgar
þeim um 20% á ári. Kenya
hefur upp á mjög fagurt lands-
lag að bjóða og fjölbreytt
dýralif.
Rangt fæðuval getur valdið van-
næringu
Rætt við Kristínu Jóhannsdóttur, sem er fyrsti íslendinguri
prófi í manneldisfræði
Við höfðum spurnir af þvi að fræðum. Okkur lck forvitni á að neinn islendingur hcfði áður lokið
fyrir nokkrum árum hafi kona kynnast þessari grein nánar, þar háskólaprófi i henni.
tekið B.S.-próf i manneldis- sem við vissum ekki til þess að A föstudaginn gerðum við okk-
ur svo ferð inn i Sólheima og hitt-
um að máli Kristrúnu Jóhanns-
dóttur.
— Hvað kom til, að þú fórst að
leggja fyrir þig þessa grein?
— Ég hafði starfað sem hús-
mæðrakennari i Flensborg i tiu
ár, þegar tslendingum var fyrst
gefinn kostur á Fullbright styrk.
Ég var svo heppin að fá þennan
styrk til sex mánaða til að kynna
mér næringarefnafræði i
Bandarikjunum. Þar ferðaðist ég
milli skóla og annarra stofnana
og kynntist þannig fyrst þeirri
grein, sem kallast á ensku diete-
tecs (manneldisfræði), og fékk
áhuga fyrir að læra hana. Stund-
aði ég nám mitt við Rikisháskól-
ann i Tennessee og, lauk þar fjög-
urra ára námi, en tvö siðustu árin
var ég á styrk frá World Health.
— Geturðu sagt okkur i stuttu
máli, i hverju nám þitt fólst?
— Námið skiptist i tvær aðal-
greinar. Næringarf ræði
(nutrition) sem grundvallast á
visindalegri þekkingu á leið fæð-
unnar um likamann og úrvinnslu
likamans á henni og fléttast þar
inn i liffræði, efnafræði, lifefna-
fræði, eðlisfræði og fleira. Og
manneldisfræði (dietetics) sem
felur i sér þekkingu á þörfum
likamans fyrir næringarefnin,
nn, er lokið hefur
hvernig likaminn hagnýtir þessi
efni og þörf likamans á sérstakri
fæðu i ákveðnum sjúkdómstilfell-
um. Þar að auki felur nútima
manneldisfræði i sér þekkingu og
skilning á afstöðu einstaklingsins
til fæðu og einnig meriningarleg,
hagfræðileg, sálfræðileg og
félagsfræðileg atriði, sem hafa
áhrif á þessa afstöðu.—
— Ráðleggingar, sem byggðar
eru á niðurstöðum færustu
visindamanna, eru mikilvægar og
ber að fagna, en bilið milli
visindalegra rannsókna og hag-
nýtingar fenginnar þekkingar al-
menningi i hag, er oft nokkuð
breitt. Okkar starf er að hagnýta
fengna þekkingu. — Nú er þetta
alveg ný fræðigrein hér á landi,
hverjir eru möguleikarnir fyrir
þig, til að nýta þina þekkingu? —
Það eru margir möguleikar fyrir
manneldisfræðinga hér á landi.
Það er alltaf þörf fyrir þessa
menntun á sjúkrahúsum við
heilsuverndarstöðvar, við
félagsskap eins og Hjartavernd
o.fl. — og til kennslu og skipu-
lagðrar uppfræðslu fyrir almenn-
ing.
— En veit almenningur i dag,
ekki um öll þau helztu næringar-
Framhald á bls. 30