Tíminn - 18.12.1973, Blaðsíða 56
56
TÍMINN
Jólablaö 1973
konan hans sat þarna
við arininn og eldaði
kvöldmatinn, en börnin
léku sér á gólfinu með
ærslum og gauragangi.
Nú var hún dáin, og tvær
dætur höfðu fylgt henni i
gröfina. Drengirnir voru
komnir sinn i hverja
áttina. Tveir höfðu farið
til Ameriku Þrir voru i
siglingum einhvers
staðar úti i heimi.
Gamli maðurinn var
niðursokkinn i endur-
minningar sinar, þegar
hann allt i einu hrökk
við. Hann sat um stund
hlustaði. Siðan fór hann
að lita eftir kaffikatlin-
um og tautaði eitthvað
um að ellin væri farin að
sækja að sér, og léti sig
heyra ofheyrnir. En
umleið og hann tók lokið
af kaffikatlinum hrö'kk
hann við aftur og stóð
kyrr með lokið i
hendinni. Á næsta
augnabliki fleygði hann
sér frá lokinú og rauk á
dyr.
Það var áreiðanlegt,
að einhver var að kalla á
hjálp.
Stormurinn hvein og
rengið streymdi úr loft-
inu. Eirikur gamli
heyrði brakið i isjökun-
um úti á sjónum, og
nú glumdi við tviraddað
neyðaróp. Það voru
áreiðanlega drengja-
raddir.
Eirikur gamli hraðaði
sér niður i fjöruna og
setti báinn á flot með
snöggum og ákveðnum
sjómannastökum. Hann
sá grilla i tvær litlar
þústur áisjaka skammt
frá landi. Hann sá, að
engin minúta mátti fara
til ónýtis. Ef jakann
ræki nokkrum föðmun-
um lengra var úti um
þessa óhamingjusömu
farþega.
Eirikur gamli réri svo
að brakaði i hverju tré.
Honum tókst að komast i
veg fyrir jakann og ná
drengjunum upp i bát-
inn. Siðan réri hann i
skyndi til lands, og hafði
drengina heim með sér.
Það var ekki fyrr en þeir
komu inn i ljósbirtuna,
að Eirikur gamli þekkti
þá, sem hann hafði
bjargað.
,,Pétur Jónsson og
Hans Bergmann! Á
hvaða ævintýraferða-
lagi hafið þið nú verið?”
Drengirnir sögðu allt
af ferðum sinum, og
þegar þeirri sögu var
lokið sagði gamli
maðurinn:
,,Jæja drengir minir.
Ég skil, að þið hafið lagt
út i þetta æfintýri af þvi
að ykkur fannst það
spennandi, enda þótt
þið vissuð, hve ótraustur
isinn var. Þið eigið
auðvitað að vera djarfir.
En það skal ég segja
ykkur, að sá sem er
djarfur i raun og veru
leikur sér ekki að svona
ævintýrum. Það gera
ekki aðrir en oflátar. En
þið skuluð minnast þess,
að oflátar eru janan
meira eða minna
heimskir.”
Það var komið fram
yfir miðnætti þegar
drengirnir komu heim
býður ávallt
bestu kaupii
Nú nýjar gerðir
Meiri afköst og styrkleiki
Meiri tæknibúnaður
og fylgihlutir
Sífellt aukin þjónusta
Lægstu verðin
r = -i
UÍUSTtI
rii
1 \ v |
ZETOR 4718 — 47 hestöfl.
Nýjasta vélin frá Zetor. Millistærð, sem sameinar kosti
minni og stærri véla. Frábærlega vel hönnuö og tæknilega
búin. Lipur og afkastamikil ahliöa dráttarvél.
Meiri vél á minna ,yerði.
4718 um 310 þúsund krónur.
ZETOR 5718—60 hestöf I & 6718 — 70 hestöfl.
Kraftmiklar og sterkar vélar til mikilla átaka meö meiri
tæknibúnaði og fylgihluti en venja er til, svo sem húsi,
miðstöð, vökvastýri, lyftudráttarkrók o. fl.
Dráttarvélar i sérflokki á hagstæðu verði.
5718 um 415 þúsund krónur. — 6718 um435 þúsund krónur.
ZETORMATIC f jölvirka vökvakerfið er í
öllum vélunum.
Fullnýtir dráttaraflið og knýr öll
vökvaknúin tæki.-
Zetor eru nú mest seldu dráttarvélarnar
á islandi. Það eru ánægðir Zetor eigend-
ur, sem mæla með þeim.
Zetor kostar allt frá kr. 100 þús. minna en
margar aðrar sambærilegar tegundir
dráttarvéla — það munar um minna.
Hafið samband viðokkurog fáið nánari
upplýsingar um Zetor.
Lágmúla 5 Sími 84525
til sin. Foreldrar þeirra
höfðu verið á milli vonar
og ótta um afdrif þeirra,
og fannst nú sem þeir
væru úr heljuheimtir.
Fögnuðurinn yfir heim-
komu þeirra var svo
mikill, að feður þeirra
gleymdu alveg, að ávita
þá fyrir tiltækið, en það
hefðu þeir auðvitað átt
fullkomlega skilið.
Hér eru myndir af ljótum og vondum karli. Hann er aö hræöa fólk
með tappabyssu,og er hann heldur skuggalegur. Myndirnar eru ekki
allar eins, — þaö eru aðeins tvær myndir, sem eru nákvæmlega eins —
og nú skuluö þiö finna þaö út sjálf, hvaöa myndir þaö eru.
•suia naa 8 80 s -ju 48ujipuXj\i :jbas