Tíminn - 18.12.1973, Blaðsíða 72
72
TÍMINN
Jólablaö 1973
Jólaleikrit
/V'A24f»;
Jólatnytidir
Jólaleikrit
e^íxí^e
Jólamyndir
sy^rn
Jólaleikrit
Jólamyndir
ÍJO /(.<;•
Jólaleikrit
e^íxí^e
LEIKFÉLAG
REYKJAVlKUR
SÝNIR VOLPONE
Brynjólfur Jóhannesson leikur okrarann
Corbaccio, en það hlutverk fór
hann einnig með fyrir 25 órum hjó L.R.
Leikfélag Reykjavfkur mun
einnig frumsýna „jólaleikrit”,
eöa jólaverkefni Þaö mun vera
hefö, aö LR sé ekki meö frumsýn-
ingu annan jóladag, heldur siöar.
Veröur Fló á skinni sýnd annan
jóladag, og er þaö 152. sýning á
þessum makalausa leik. Alls
munu áhorfendur veröa orönir 30-
40.000.
Blaöiö hitti að máli Vigdisi
Finnbogadóttur, leikhússtjóra og
spuröi um jólaverkefnið, og fór-
ust henni orö á þessa leiö:
Volpone, Stefans Zweig
og Ben Jonson
Jólaverkefni Leikfélags
Reykjavikur er Volpone eftir Ben
Jonson I leikgerö Stefans Zweig.
Frumsýning veröur laugardaginn
29. desember.
Volpone — eða refurinn — er
víöfrægur, sigildur ádeiluleikur
um gullgræögi og ágirnd manns-
ins. Þar er óspart gert gys aö
þeim, sem öllu vilja fórna til aö
öölast meiri auö. Upprunaleg
gerð leiksins eftir Ben Jonson er
frá 1604, en leikurinn er látinn
gerast i litriku umhverfi i Feneyj-
um á endurreisnartimunum.
Stefan Zwieg endurritaöi leikinn
áriö 1927 og geröi ádeiluna alla
gamansamari en hún er i frum-
gerðinni.
Aðalhlutverk
Steindór Hjörleifsson leikstýrir
Volpone hjá Leikfélagi Reykja-
vikur og Steinþór Sigurðsson hef-
ur gert leikmynd og litauöuga
búninga. Meö aðalhlutverkin fara
Helgi Skúlason, sem leikur, ref-
inn Volpone, og Pétur Einarsson,
sem fer með hlutverk Mosca,
snfkjudýriö sem lifir á annarra
manna ágöllum og nýtur þess að
etja mönnum saman i kapphlaup-
inu um gullið.
Brynjólfur Jóhannesson
aftur með eftir 25 ár
Volpone var sýndur hjá L.R.
fyrir 25 árum. Svo skemmtilega
vill til, aö Brynjólfur Jóhannes-
son, sem þá lék eitt af stórhlut-
verkum leiksins, okrarann
Corbaccio, fer nú aftur með sama
hlutverk. Aðrir leikendur eru:
Jón Sigurbjörnsson, Sigriður
Hagalin, Valgeröur Dan, Guð-
mundur Pálsson, Sigurður Karls-
son, Karl Guömundsson, og
Kjartan Ragnarsson.
Asgeir Hjartarson hefur þýtt
leikinn, sagði Vigdis Finnboga-
dóttir leikhússtjóri að lokum.
Æfingar voru stundaðar af full-
um krafti, þega blaöamenn bar
að, og voru myndirnar sem hér
fylgja teknar við það tækifæri.
Við getum afgreitt núna nokkrar URSUS dráttar-
vélar, 40 og 60 hestafla, ennþá á
sérstaklega hagstæðu verði:
40 hö: Verð kr. 226.000,00
60 hö: Verð kr. 309.000,00
Leitið upplýsinga og kynnist fjölþættum útbúnaði
URSUS dráttarvélanna.
vÉiAccce
Skeifunni 8 • Reykjavík • Sími 8-66-80
ÁFRAM MEÐ VERKFÖLLIN
Brezk gamanmynd hjó Hóskólabíó um jólin
— Háskólabió veröur meö
brezka gamanmynd um jólin,
sagði Friöfinnur Ólafsson, for-
stjóri í samtali viö blaðið, eina af
þessum óborganlegu, en viö ætl-
um, að bióstjórinn, sem er kunnur
spaugari, telji sig dómbæran á þá
hluti.
— Afram meö verkföllin, heitir
hún og er frá Rank.
1 stuttu máli er efnisþráðurinn
á þessa leiö:
Fyrirtækið W.C. Boggs & synir
er eitt af hinum virtustu og elztu á
sviði hreinlætistækja. Þar er
vandvirkni tekin fram yfir fjöl-
framleiöslu og þess vegna verður
aö prófa hvern nýjan hlut, sem
hannaður hefur verið, áður en
hann er sendur á almennan
markað. Prófunina framkvæmir
ungfrú Withering i viðurvist
Plummers verkstjóra og Cootes,
sem hefur um langt skeið verið
hönnuður fyrirtækisins.
En það er ókyrrð bak við tjöldin
hjá W.C. Boggs, eins og öðrum
iönfyrirtækjum i Bretlandi, og
allt i einu ákveður starfsliðið aö
gera skyndiverkfall vegna deilu
um tehlé. Starfsmennirnir geta
þá haldið heim óvenjulega
snemma og skemmt sér með
ýmsum hætti.
Ýmsir lenda þó i erfiðleikum i
sambandi viö skemmtihald sitt,
en allt fer þó vel, þegar frá liður,
og þegar mönnum er runnin
mesta reiðin vegna breytinga á
tetimanum, hefst vinna hjá W.C.
aftur eins og ekkert hafi i skorizt.
Nú á að hefja framleiðslu á
nýju tæki, skoltæki, sem fyrirtæk-
iðhefur látiðlönd og leið áður. En
þá koma upp ýmis vandkvæði á
sviði skiptiverka við framleiösl-
una, og áður en varir þykir
ástæða til að gera enn eitt verk-
fall.
W.C. Boggs sér ekki fram á
annað en gjaldþrot — nema hann
selji fyrirtækið gömlum keppi-
nautum og ætlar hann að gera
það. En þá streymir starfsfólkið
aftur til vinnu — þvi að fyrir dyr-
um stendur árleg skemmtiferð
fyrirtækisins. Menn mega ekki
missa af þvi gamni.
Skemmtiferðin verður á marg-
an hátt sögulegri en menn hafði
órað fyrir og auk þess dregur hún
dilk á eftir sér, sem ekki er rétt að
lýsa nánar hér.
Meðal leikenda eru kunnar
stjörnur, eins og Sid James,
Kenneth Williams og Charles
Hawtrey.
E" 'J £&THE &HK OBSAHISATION
PCKENTS
PETERKm
PGccucnou
SUB8IMO
ftONEY MMíS
KEWWETM WIUIAMS
CHAftŒS HAWTREY
JOAHStMi • HATTIE JACQfJeS
BBtMVUlESCtAW
KENWETH C0PE
cmron
^pUND^9
scsfEwaAY by tumot rcryémi pwxvcep&KnxMCK
& COMV TWOMAS