Fréttablaðið - 15.12.2004, Síða 15
DÓMSMÁL 25 ára gamall maður og
tengdamóðir hans voru í Héraðs-
dómi Reykjavíkur dæmd í tíu og
fimmtán mánaða fangelsi fyrir
hassinnflutning í febrúar á þessu
ári. Saman voru þau sakfelld fyrir
innflutning á tæpum níu kílóum af
hassi. Tengdamóðirin var ein
ákærð og sakfelld fyrir að flytja
inn fimm kíló af hassi.
Hassið kom til
landsins í tveimur
sendingum og var
í báðum tilfellum
falið í fjölum sem
hafði verið fræst
úr. Tengdamóðir-
in sá um tréverkið
enda hafði hún
lært trésmíði.
Maðurinn játar að
hafa falið tæp níu
kíló af hassi í við-
arfjölunum og að
hafa látið senda
það á sínu nafni til
Íslands. Hann segist hafa lánað
manni, sem ekki er upplýst hvað
heitir, 400 þúsund krónur til fíkni-
efnakaupanna en peningana hafi
hann átt að fá endurgreidda ásamt
veglegri þóknun fyrir innflutn-
inginn. Hin sendingin, með fimm
kílóum af hassi, var send með
flugfragt til Íslands frá Kaup-
mannahöfn. Tengdamóðirin sá al-
farið um þann innflutning en hún
segist hafa keypt hassið af manni
í Danmörku. Lögreglan lagði síðar
hald á 3,6 kíló af hassinu og er hún
grunuð um að hafa selt það sem á
vantaði. Sjálf sagðist hún hafa
ætlað að flytja inn fimm kíló en
segir lögregluna hafa fundið allt
sem hún flutti inn. Segist hún því
líklega ekki hafa fengið rétt magn
þegar hún keypti hassið. Áður
sagði hún tengdasoninn hafa selt
það sem upp á vantaði.
Þótti dómnum framburður
tengdamóðurinnar mjög ótrú-
verðugur enda hafi hún verið
reikul í frásögnum og margbreytt
framburði sínum. Hún hafi getað
greint frá tegund, magni og kaup-
verði hassins hjá lögreglu. Maður-
inn játaði það sem honum var
gefið að sök í ákæru.
Maðurinn hafði áður gengist
fimm sinnum undir lögreglu-
stjórasáttir vegna umferðarlaga-
brota og brota á lögum um ávana-
og fíkniefni. Tengdamóðirin, sem
er 37 ára, hefur ekki áður gerst
sek um refsiverða háttsemi og var
litið til þess við ákvörðun refsing-
ar. Níu daga gæsluvarðhald sem
þau sættu kemur til frádráttar
refsingu.
hrs@frettabladid.is
MIÐVIKUDAGUR 15. desember 2004
Mazda RX8 hefur fengið frábæra dóma fyrir aksturseiginleika og
byltingarkennt útlit. Þá hefur Rotary-vélin fengið verðlaun víða um heim.
Mazda RX8 var valinn sportbíll ársins á Íslandi 2004.
Verð frá 3.680.000 kr.
Mazda6 station 2 l, 141 hestöfl. Verð frá 2.500.000 kr.
Leiga frá 43.110 kr. í 36 mánuði.* Mazda6 er einnig fáanlegur með
2 l, 136 hestafla díselvél.
Mazda6 station er fáanlegur fjórhjóladrifinn.
Jólin eru
hátíð Mazda-
fjölskyldunnar
Söluumboð: Bílás sf., Akranesi - BSA, Akureyri Betri bílasalan, Selfossi - SG Bílar, Reykjanesbæ
Mazda3 sedan 1,6 l, 105 hestöfl. Verð frá 1.805.000 kr.
Leiga frá 31.663 kr. í 36 mánuði.*
Mazda3 er einnig fáanlegur með 107 hestafla díselvél.
Aukahlutir á mynd: álfelgur
*Leigugreiðslur eru háðar gengi og því aðeins til viðmiðunar. Innifalið: akstur allt að 20.000
km á ári, olíuskipti og þjónusta samkvæmt þjónustubók.
Hvaða meðlimur Mazda-fjölskyldunnar
hentar þér? Komdu, reynsluaktu
og berðu saman verð og gæði.
Jólat
ilboð
!
Vetra
rdek
k á f
elgu
m
fylgj
a hve
rjum
keyp
tum
bíl f
ram
til
24. d
esem
ber.
Á LEIÐ Í RÉTTARSAL
Tengdamóðirin neitar að hafa komið nærri innflutningi á kílóunum níu. Hún játaði það
samt hjá lögreglu en sagðist síðar hafa gert það sökum streitu og vegna hjálpsemi þar
sem hún hefði viljað hjálpa tengdasyninum.
Dæmdur í fangelsi
ásamt tengdamömmu
37 ára kona var dæmd í fimmtán mánaða fangelsi
fyrir innflutning á hassi. Tengdasonur konunnar
hlaut tíu mánaða fangelsisdóm fyrir samsekt.
,,Tengda-
móðirin,
sem er 37
ára, hefur
ekki áður
gerst sek
um refsi-
verða hátt-
semi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
FERÐAMÁL „Vel menntaður, vel stæð-
ur og hefur fyrst og fremst áhuga á
náttúru Íslands.“ Svona er hinn
dæmigerði erlendi sumarferðamað-
ur, eftir því sem fram kemur í sum-
arkönnun Ferðamálaráðs meðal er-
lendra gesta. Frá 1997, þegar fyrsta
könnunin var gerð, hefur orðið um
80 prósenta fjölgun erlendra gesta.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
segir að þrátt fyrir fjölgunina hafi
samsetning hópsins breyst sáralítið.
Í könnuninni kemur fram að
meðalaldur svarenda sem flugu
með Iceland Express sé nokkuð
yngri en þeirra sem flugu með Flug-
leiðum. Þá eru tekjur þeirra sem
fljúga með Flugleiðum heldur
hærri en þeirra sem fljúga með
Iceland Express. - ss
GEYSIR GÝS
Þingvellir og Geysir eru þeir staðir sem
flestir erlendir ferðamenn sækja heim.
Ferðamenn:
Sækja í náttúruna
BÓKSALA Afsláttur á bókum virðist
meiri í ár en undanfarin ár, segir
Hrannar B. Arnarsson, markaðs-
stjóri bókaútgáfunnar Eddu.
„Ég skýri það með því að jóla-
bækurnar eru einfaldlega meira
freistandi en oft áður og þar af leið-
andi stífari ásókn smásöluaðilanna
að ná af þeirri köku. Þeir virðast
nota verðið til þess,“ segir hann.
„Ég get staðfest að þess eru dæmi
að endursöluaðilar hafi gefið meiri
afslátt en þeir hafa verið að fá hjá
okkur.“ Hrannar segir þetta hvorki
koma niður á rithöfundum né bóka-
útgáfum. „Þegar endursöluaðilarnir
eru að gefa þetta af sinni álagningu
og jafnvel gott betur þá eru það þeir
sem bera kostnaðinn.“ - gag
VERÐSTRÍÐ Í JÓLABÓKUM
Dæmi eru um að verð á bókum sem
koma út fyrir jólin sé lægra í verslunum en
hjá útgefendum þeirra.
Jólabækurnar í ár:
Meiri afsláttur en í fyrra