Fréttablaðið - 15.12.2004, Side 22

Fréttablaðið - 15.12.2004, Side 22
HJÁLPARSTARF ABC-barnahjálp veit- ir hjálp sem kemur að varanlegu gagni, fyrst og fremst með mennt- un barna. „Við erum með 4.350 börn á okkar framfæri. Börnin eru inni á heimilum í Úganda og svo eru um 1.900 þeirra á heimil- um okkar á Indlandi þar sem þau fá fulla framfærslu og menntun. Hin ganga í skóla þar sem þau fá kennslu og í flestum tilfellum mat og læknishjálp. Þetta er byggt á sjálfboðastarfi. Fólk tekur að sér að styrkja börn sem það fær svo að fylgjast með. Það er bara einn aðili með hvert barn. Öll framlög fara 100 prósent út,“ segir Guðrún Margrét Pálsdóttir, framkvæmda- stjóri ABC-barnahjálpar. „Þetta er íslenskt fyrirbæri. Þetta kom þannig til að ég fór í hnatt- ferð árið 1985 og var ein að þvæl- ast. Þegar ég var komin til Mið- Ameríku kviknaði hugsjón. Þá sá maður börn sofandi á götum og allt þetta fólk sem er ólæst. Það er mikil fötlun að geta ekki lesið. Ég ákvað því að gera eitthvað. Fyrst hafði ég allt aðra hugmynd og ætl- aði bara að klára hnattferðina og fara svo ein aftur út í heim að kenna fólki að lesa og skrifa,“ seg- ir hún. „En þegar ég var komin heim aftur komu aðrar aðstæður upp og ég fór ekkert út aftur. Svo vorum við sjö til tíu í undirbúningshópi sem setti barnahjálpina á fót. Lengst af var starfsemin hér ein- göngu í sjálfboðavinnu en nú erum við með tvö launuð stöðu- gildi og allt annað í sjálfboða- vinnu. Þetta er mitt hjartans mál,“ segir hún. ABC-barnahjálpin er með starfsemi á Indlandi og í Úganda, bæði skóla og svo líka starf með kornabörnum. Verið er að byggja kornabarnahús á öðru heimilinu af tveimur á Indlandi. Guðrún Margrét segir mörg börn búa við ólíklegustu aðstæður og gjörólík- ar því sem við þekkjum hér á Ís- landi. Sum þeirra séu á götunni og komi inn í skólana og barnaheim- ilin eftir að hafa jafnvel lagt sér til munns mold og málningu af veggjum. „Það er mikil þörf fyrir þessi heimili fyrir börn í erfiðum og skelfilegum aðstæðum. Þetta er kannski það svæsnasta sem við þekkjum,“ segir hún. Börnin koma til barnahjálpar- innar með ýmsum hætti. Oft er lögreglan beðin fyrir börn eða þá að tilkynnt er um að börn séu í vandræðum og beðið um skjól fyrir þau. Í öðrum tilfellum hefur kannski félagsmálastarfsmaður rekist á börnin. Á Indlandi búa börnin á heimili innfæddra í 80 prósentum tilfella þó að þau séu skilgreind munaðarlaus. Þau geta þá búið hjá einstæðu foreldri, ömmu sinni og afa eða þá að ein- hver hefur tekið þau að sér. „Við gefum þeim fyrir skólagöngu,“ segir hún. Í Úganda er svo rekinn skóli og þar lauk skólaárinu einmitt ný- lega með samræmdu prófi. Krakkarnir í skóla ABC-barna- hjálpar náðu frábærum árangri. Af 90 börnum sem voru að út- skrifast úr sjöunda bekk voru öll með fyrstu eða aðra einkunn, langflest reyndar með fyrstu ein- kunn. „Og það þó að þau búi við þær aðstæður að flestir sem ann- ast þau séu ólæsir og ekkert raf- magn heima. Þetta er frábær ár- angur,“ segir Guðrún Margrét. ABC-barnahjálp og starfsmenn hennar eru að undirbúa jólin fyrir börnin á Indlandi og í Úganda. Í Úganda voru keyptar 1.000 dýnur fyrir börnin í jólagjöf og Guðrún Margrét kímir þegar hún rifjar upp lýsinguna að utan á því þegar börnin voru að ganga heim með dýnurnar upprúllaðar. Það segir hún að hafi verið merkileg sjón. Ef aukapeningar eru eftir er at- hugað hver mesta þörfin er í hverri fjölskyldu. Sums staðar hafi t.d. verið keyptar geitur en þær kosta 2.000 krónur stykkið. Ýmislegt annað kemur líka til greina, t.d. skór. Á Indlandi er ekki enn búið að ákveða hvað krakkarnir fá í jóla- gjöf. „Það fer eftir því hversu mikið kemur í sjóðinn. Þetta er yf- irleitt ný jólagjöf því að það er búið að gefa þeim dýnur. Það var gert ein jólin. Þessi börn búa inni á heimilum og aðeins betur er að þeim búið en í þessum bláfátæku fjölskyldum í Úganda,“ segir hún. Krafturinn í ABC-barnahjálp er mikill. Stöðugt bætast við nýir stuðningsaðilar og þá er hægt að bæta við fleiri börnum. Í Úganda er verið að stækka við skólann, byggja tvær hæðir til viðbótar með tíu stofum þannig að fleiri börn geti sest þar á skólabekk í byrjun febrúar þegar nýtt skólaár hefst. ■ 22 15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR ABC-barnahjálp veitir börnum í Úganda og á Indlandi menntun: Börnin fá dýnur og geitur í jólagjöf H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1. flokki 1989 – 57. útdráttur 1. flokki 1990 – 54. útdráttur 2. flokki 1990 – 53. útdráttur 2. flokki 1991 – 51. útdráttur 3. flokki 1992 – 46. útdráttur 2. flokki 1993 – 42. útdráttur 2. flokki 1994 – 39. útdráttur 3. flokki 1994 – 38. útdráttur Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 2005. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum birt hér í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf má einnig finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 GEITUR Í JÓLAGJÖF Kabuye Ezra með geiturnar tvær sem fjölskylda hans fékk í jólagjöf frá stuðningsaðila hans. Hann er fæddur 17. janúar 1997 og er því sjö ára. Faðir hans yfirgaf fjölskylduna og móðirin sér ein fyrir sex börnum. Þau hafa sofið á þunnum mottum á moldargólfi og hafa hvorki rennandi vatn né rafmagn. Stuðningsaðilinn sá þeim einnig fyrir dýnum fyrir þessi jól. HLUTFALLSLEG RÁÐSTÖFUN TEKNA 2003 Laun og launatengd gjöld 3% Kostnaðarverð seldra vara 1% Þóknun vegna greiðslukorta og gíróseðla 1% Annar rekstrarkostnaður 2% Sent til hjálparstarfa erlendis 93% HLUTFALLSLEG SKIPTING FJÁRMUNA MILLI VERKEFNA ERLENDIS 2003 Heimili litlu ljósanna á Indlandi 57% El Shaddai barnaheimilið á Indlandi 14% Úganda 15% Filippseyjar 8% Mission of Mercy 6% GUÐRÚN MARGRÉT PÁLSDÓTTIR DÝNA Í JÓLAGJÖF Nabadda Lukiya er fædd 14. maí 2000 og er því fjögurra ára. Faðir hennar lést af slysförum og móðir hennar úr alnæmi. Hún á eitt systkini og búa þau hjá ömmu sinni. Þar er eldað við opinn eld og vatn sótt úr brunni. Stuðn- ingsaðili barnsins hefur einnig gefið þeim aukagjafir, dýnu, skó og fleira.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.