Fréttablaðið - 15.12.2004, Síða 29
5MIÐVIKUDAGUR 15. desember 2004
Lítil og sæt jólatré
Cypress plantan er falleg á jólunum.
Þetta er útiplanta í Evrópu þannig að
henni líður ekkert alltof vel í heitu og
þurru stofulofti. Því er mikilvægt að
hafa hana í birtu og eftir því sem er
svalara því betra. Hún hún má ekki
skrælþorna og verður alltaf að vera að-
eins rök, þá lifir hún af veturinn og
hægt að setja hana út á svalir á vorin í
stærri pott. Strangt til tekið gerir ekkert
til þó þær frjósi en ef við setjum þær út
núna við leiði eða eitthvað slíkt þá hugs-
um við þetta sem skraut og heldur hún
græna litnum frameftir vetri þangað til að
vorsólin skemmir þetta. Sólin þurrkar
barrið en jörðin er frosin og ræturnar
frosnar. Vel er hægt að setja cypress
plöntuna út á tröppur sem skreytingu fyrir
jólaboðið en hinsvegar geta hin snöggu umskipti, að taka hana innan úr
hitanum og setja út í kuldann farið illa með hana og því ekki ráðlegt fyrir
þá sem vilja halda henni á lífi að minnsta kosti fram á vorið.
Cypress plantan er falleg í potti
á borði yfir jólin.
Jólaborgara
með reyktri skinku, ferskjum, karamellugljáðum lauk og osti.
Borið fram með frönskum og salati.
kr. 1.290
Hreindýraborgara, 140 gr.
með villtum kryddjurtum, gráðostadressingu og rifsberjasultu.
Borinn frem með frönskum og salati.
kr. 1.490
Kalkúnabringu
borin fram með gravisósu, grænmeti með hetum og kartöflum sem rokka.
kr. 1.990
Jólahangikjöt
með grænum baunum, hvítum kartöflum og jafningi.
kr. 1.990
Nú er hægt að senda jólakort raf-
rænt á vefsíðu Reykjavíkurborgar.
Á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is,
er hægt að finna samansafn gam-
alla korta sem hefur verið safnað á
undanförnum árum á Borgarskjala-
safni Reykjavíkur. Á reykjavik.is er
hægt að velja og senda þessi jóla-
kort rafrænt til ástvina um jólin og
aðgangur að kortasafninu er
ókeypis.
Afskaplega einfalt er að senda jóla-
kort á vefsíðunni. Farið er inn á
reykjavik.is og smellt er á tengil fyrir
kortin. Því næst er kort valið og
sendandi og texti skráður inn. Síðan
er ýtt á hnappinn senda og kortið
er farið af stað í tölvupóstfang þess
sem hugsað er til um jólin.
Þessi gömlu jólakort gefa góða
mynd af samtíma sínum og þeim
hefðum og stíl sem ríkt hefur á
hverjum tíma og því tilvalið að
senda þau til vina og vandamanna
erlendis.
Elstu kortin á vefnum eru frá um 1920 og er þetta kort frá þeim tíma.
Gömul, krúttleg jólakort
Grýla á fleiri börn en jóla-
sveinana 13.
Í öllum umræðum um jólasvein-
ana, sem nú tínast til byggða
einn af öðrum, vill gleymast að
Grýla á fleiri börn sem aldrei
fara til byggða svo vitað sé. Þau
hanga í kringum mömmu sína
sem sýður handa þeim jólamat-
inn, væntanlega óþekkubarna-
uppskeru ársins en eins og allir
vita þá tekur Grýla óþekk börn
með sér upp í fjall og étur þau
með bestu lyst. Hún hefur lifað
tvo eiginmenn en Leppalúði er
hennar þriðji maður og fékk hún
í kaupbæti með honum soninn
Skrögg. Annars eru börnin henn-
ar Grýlu þessi samkvæmt þulum
frá sextándu öld:
Leppur, Skreppur, Lápur,
Skrápur, Langleggur, Skjóða,
Völustakkur (eða stallur) og
Bóla, Þröstur, Þrándur, Böðvar,
Brynki, Bolli, Hnúta, Koppur,
Kyppa, Strokkur, Strympa, Dall-
ur, Dáni, Sleggja, Sláni, Djangi,
Skotta, Sighvatur og Syrpa. For-
eldrum sem ætla sér að skíra um
jólin er sérstaklega bent á þenn-
an nafnalista þó ekki sé vitað
hvort mannanafnanefnd sam-
þykkir öll nöfnin.
Á FIMMTUDÖGUM
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Börnin hennar Grýlu
Jólasveinarnir eru hvergi nærri einu börnin hennar Grýlu.