Fréttablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 41
Ástæða þess að ég sting niður penna er grein Steindórs J. Erlings- sonar hér í blaðinu síðasta föstu- dag. Ég þekki ekki til félagsins Van- trú og er ekki ætlunin að fjalla um það. Ég er sammála Steindóri að sú gagnrýni að trúarbrögð séu við- brögð mannskepnunnar við tilvist- arlegum ótta er í besta falli mikil einföldun. Að teygja sig tugþúsund- ir ára aftur í tímann til að sýna fram á þetta er hins vegar að sækja vatnið full langt yfir lækinn. Það má hverjum vera ljóst er lítur yfir trúarbragðasöguna að lykilhug- myndir fjölmargra trúarbragða eru alls ekki til þess fallnar að stuðla að vellíðan, hvorki líkamlegri né and- legri. Sem dæmi mætti nefna að í Babýlon til forna trúði fólk því að ýmsir miður skemmtilegir árar sæktu að því daglega og hafði heil stétt sérfræðinga þann starfa að bægja þeim frá. Steindór gerir einnig mannfræðinginn Pascal Boyer að umtalsefni, en hann er einn frumkvöðla hinnar svokölluðu hugrænu trúarbragðafræði (cognitive science of religion), sem hefur umbylt fræðigreininni síðast- liðinn áratug. Steindór virðist gefa í skyn að Boyer sé að einhverju leyti að verja þá hugmynd að manninum sé það eðlilegt að vera trúaður, þ.e.a.s. að hann sé það sem M. Eli- ade kallaði forðum homo religiosus. Það er hinsvegar ljóst af lestri síð- ustu bókar Boyers (Religion Ex- plained, 2001) að afstaða hans til trúarbragða sver sig mjög í ætt við þá gagnrýni sem víða finnst í hin- um enskumælandi heimi, þ.e. að þau séu rökleysur (t.d. Dawkins). Í bókinni segir Boyer lítið sem ekkert um trúarvitund. Það er hins vegar rétt að hann telur trúarhug- myndir að vissu leyti náttúrulegar. Það sem hann á við er að slíkar hug- myndir ganga samtímis gegn og samsvara þeim væntingum sem við berum til umhverfis okkar frá nátt- úrunnar hendi: t.d. getur draugur gengið í gegnum veggi (þvert á væntingar til einstaklinga í um- hverfi okkar) en samt sem áður er hann persóna sem hugsar og skynj- ar eins og ég og þú. Af þessum sök- um, segir Boyer, eru trúarhug- myndir sérstaklega grípandi fyrir mannshugann og auðveldar að leggja á minnið. Boyer líkir trúar- hugmyndum við sníkjudýr sem þrífast vel í mannshuganum sem sé þeirra náttúrulega umhverfi. Það er því ljóst sá homo religiosus sem kemur fram hjá Boyer er annars eðlis en sá sem Eliade hélt á lofti. Samkvæmt Boyer þarf maður- inn ekki á trúarbrögðum að halda. Hann spjarar sig ágætlega í sínu eigin umhverfi með öflugt heilabú- ið að vopni. Trúarhugmyndir setj- ast að í huga hans sem sníkill, sem menningarleg yfirbygging sem er óþörf þegar öllu er á botninn hvolft. Þrátt fyrir lykiláhrif Boyers innan áður nefndrar fræði- greinar fer því fjarri að hugmynd- ir hans séu viðtekin sannindi. T.d. eru margir trúarbragðafræðingar ósáttir við hve lítið rými menning- ar- og félagslegir þættir hafa í kenningum hans. Sá grunnur er Boyer byggir hvað mest á er sú þróunarsálfræði sem m.a. Steven Pinker hefur boðað. Þeir taugalíf- fræðingar sem ég hef rætt við gefa lítið fyrir þessa undirstöðu og verður það að teljast grafa nokkuð undan kenningum Boyers. ■ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 2 66 30 12 /2 00 4 Mikilvæg sending hratt og örugglega Jólatilboð fraktflugs Flugfélags Íslands gerir þér kleift að senda pakka frá 1 – 10 kg, af hverju sem er, á alla áfangastaði fyrir aðeins 700 kr. Tilboðið gildir frá 10. til og með 20. desember. Akureyri 460 7060 Egilsstaðir 471 1210 Ísafjörður 456 3000 Reykjavík 570 3400 www.flugfelag.is | 570 3030 1-10 kg á 700 kr. til allra áfangastaða Jólatilboð! FRAKT til og frá öllum áfangastöðum • fjöldi ferða daglega • hratt og örugglega • frysti- og kæligeymslur á helstu áfangastöðum 25MIÐVIKUDAGUR 15. desember 2004 Skuldasöfnun varhugaverð Það er full ástæða til þess að vara fjöl- skyldurnar í landinu við að skuldsetja sig um of núna þegar vel árar. Skuldsetning til 40 ára þar sem íbúðarhúsnæði er veð- sett 100% er áhætta sem enginn ætti að taka nema að vandlega athuguðu máli. Verð á íbúðarhúsnæði tekur mið ef kaup- getu á markaðnum og þegar dregur úr kaupgetu lækkar verðið, það fer því sam- an lág kaupgeta þess sem greiða á lánið og lágt verð hins veðsetta. G. Valdimar Valdemarsson á timinn.is Óþægilegar hugsanir Innrásinni í Írak er lokið, segja þeir. Nú er bara endurreisnarstarf eftir. Nú er að byggja skóla og sjúkrahús í stað þeirra sem sprengd voru í loft upp og fara svo að hlakka til jólanna. Senda plástra til Írak til að skella á sárin – opna kampa- vín á gamlárskvöld. „Svo gott að geta hjálpað þessu fólki. Bakaðiru Sörurnar sjálf?“ Ýta frá sér óþægilegum hugsun- um um fortíð og vafasamar ákvarðanir og velta fyrir sér hvort maður vilji Birgittudúkkuna eða Nylonbókina í jóla- gjöf. Horfa til framtíðar, smella sér í Smáralind og hugsa um hvað það sé frábært að Írakir fái bráðum að kjósa. „Nú fær fólkið loksins að ráða. Nei, gvöð, þarna er Einar Már að árita.“ Sigríður Víðis Jónsdóttir á sellan.is Alvarlegasta vandamálið Fátækt er eitt alvarlegasta vandamál mannkynsins og þrátt fyrir sívaxandi auð ríkustu ríkja heims virðist vandinn aðeins aukast. Umfjöllun fjölmiðla um alvarlegar afleiðingar fátæktar eru líka til skammar. Hjálparstofnanir kvarta ítrekað undan því að fjölmiðlar á Vesturlöndum hafi lítinn áhuga á fátækt í heiminum. Helst sé að ná athygli fjölmiðla ef hjálparstofnun er að störfum þar sem vestræn ríki standa í stríðsrekstri. Þannig hafi fjölmiðlar haft áhuga á mannúðaraðstoð í Afganistan og Írak en sýnt öðrum svæðum í heimin- um engan áhuga. Og kannski er það málið ñ ef við erum í því að murka lífið úr almenningi í öðrum löndum þá skipt- ir máli að hjálparstarfsfólk hlaupi út um allt, en annars er öllum sama. Huginn Freyr Þorsteinsson á murinn.is Lomberg og loftslagið [Björn] Lomborg segir að þeir sem fundi nú um loftslagsmál í Buenos Aires haldi því fram að okkur beri siðferðileg skylda til að gera baráttuna gegn loftslagsbreyting- um að forgangsverkefni. Þeir haldi því fram að baráttan gegn loftslagsbreyting- um sé siðferðispróf okkar daga. Lomborg segir þá hafa rangt fyrir sér. Hlýnun and- rúmsloftsins sé vissulega til staðar og skuldinni megi skella á koltvísýring. Hins vegar sýni loftslagslíkönin að við þessu sé lítið að gera jafnvel þótt allir, Bandaríkja- menn þar með taldir, stæðu við Kyoto samninginn út öldina væri aðeins verið að seinka hlýnuninni um sex ár í lok aldarinn- ar. Sú hlýnun sem væri orðin án Kyoto árið 2100 kæmi árið 2106 með Kyoto. Vefþjóðviljinn á andriki.is GUÐMUNDUR INGI MARKÚSSON TRÚARBRAGÐAFRÆÐINGUR UMRÆÐAN TRÚARBRÖGÐ AF NETINU SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek- ið á móti efni sem sent er frá Skoðana- síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið- beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Um trúargagnrýni og náttúrulega trú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.