Fréttablaðið - 15.12.2004, Side 46
„Mér fannst það fáránlegt að það
væri hægt að mismuna fólki á
þennan hátt og það fauk bara í
mig,“ segir Davíð Scheving
Thorsteinsson um það þegar
hann reyndi að taka með sér bjór
til landsins á þessum degi fyrir
25 árum síðan.
Á þessum árum ríkti bjórbann
en flugáhafnir máttu hins vegar
kaupa ákveðið magn af bjór og
flytja með sér inn í landið.
Davíð var að koma frá Lúx-
emborg þegar hann keypti ölið
og hafði löngu fyrr ákveðið að
reyna að flytja það inn í landið.
„Þetta var klár ákvörðun af
minni hálfu þegar ég fór frá
Íslandi. Dóttir mín vann sem
flugfreyja á sumrin og hún
mátti koma með bjór til landsins
af því að hún vann hjá öðru
fyrirtæki en ég. Mér fannst það
út í hött, því ég hélt að stjórnar-
skráin kæmi í veg fyrir svona
mismunun, en þegar ég las hana
fann ég ekkert ákvæði sem
beinlínis bannaði mismunun
þegnanna. Ég taldi hins vegar
að andi hennar bannaði mismun-
un af þessu tagi og vísaði til
þess.“
Davíð keypti því sex flöskur
af bjór í Fríhöfninni í Lúxem-
borg og á Keflavíkurflugvelli
lagði hann þær ofan á ferðatösk-
ur sínar og gekk að tollhliðinu.
„Tollgæslan bauð mér að gera
sátt því ég hafði reynt að smygla
bjór. Ég neitaði að gera nokkuð
slíkt enda hafði ég engu reynt að
smygla, heldur lágu flöskurnar
ofan á töskunum. Þá gerðu þeir
bjórinn upptækan og sögðu að ég
yrði kærður og ég sagði að það
yrði þá svo að vera,“ segir Davíð,
sem aldrei sá bjórflöskurnar
sínar sex aftur.
Málið fór þó aldrei fyrir dóm-
stóla. Þegar málið var kannað
reyndust forsendurnar fyrir því
að leyfa einungis flugáhöfnum
að flytja bjór inn í landið hæpn-
ar. Sighvatur Björgvinsson, þá-
verandi fjármálaráðherra, lét í
kjölfarið vinna reglugerð sem
heimilaði öllum að flytja tiltekið
magn af bjór inn í landið, þrátt
fyrir að almennt bjórbann ríkti
enn hér á landi í níu ár í viðbót. ■
30 15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
DON JOHNSON
Leikarinn og töffarinn, sem var á hátindi
frægðar sinnar í sjónvarpsþáttunum Miami Vice
á árunum 1984-1989, er 55 ára í dag.
DAVÍÐ SCHEVING : REYNDI AÐ FLYTJA BJÓR TIL LANDSINS
„Leyndardómurinn á bak við velgengni jafnt
í kvenna- sem fjármálum liggur í því að vita
hvenær maður á að hætta. Ég ætti að vita
það. Ég er fráskilinn og á hausnum.“
- Fólk kom ekki að tómum kofanum þegar það sótti speki til Dons
Johnson í hlutverki löggunnar Sonny Crocket í Miami Vice.
timamot@frettabladid.is
DAVÍÐ SCHEVING THORSTEINSSON Fannst það ekki standast stjórnarskrá að mis-
muna fólki líkt og gert var og greip til sinna ráða.
Þennan dag árið 1961 var Adolf
Eichmann dæmdur til dauða fyrir
stríðsglæpi og glæpi gegn mann-
kyni.
Eichmann var fæddur í Solingen i
Þýskalandi árið 1906. Árið 1932
gekk hann til liðs við SS-sveitir
nasista og komst fljótt til met-
orða innan þeirra og árið 1939
var hann skipaður í stöðu innan
deildar SS í Berlín sem átti að
taka á gyðingum.
Árið 1942 sat Eichmann fund
ásamt öðrum framámönnum
þriðja ríkisins í Wannsee þar sem
„lokalausnin á gyðingavandan-
um“ var rædd. Á fundinum var
ákveðið að gyðingum í Evrópu
skyldi útrýmt og var Eichmann
falin framkvæmdin. Áður en
seinni heimsstyrjöld var úti höfðu
milljónir gyðinga látið lífið í út-
rýmingarbúðum nasista.
Eichmann var handsamaður af
Bandaríkjamönnum eftir stríð en
slapp úr haldi fyrir Nürnberg-rétt-
arhöldin. Árið 1950 flutti hann til
Argentínu þar sem margir stríðs-
glæpamenn földust. Á seinna
hluta sjötta áratugarins komst
ísraelska leyniþjónustan á snoðir
um hann og rændi honum árið
1960.
Árið 1961 hófust réttarhöld yfir
Eichmann í Jerúsalem sem
lyktaði með að hann var dæmd-
ur til dauða og hálfu ári seinna
var hann hengdur.
15. DESEMBER 1961
Réttað yfir Adolf Eichmann í Jerú-
salem.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1791 Fyrstu tíu viðaukar stjórnar-
skrár Bandaríkjanna, sem
jafnan eru nefndir einu lagi
Réttindaskrá Bandaríkj-
anna, gengu í gildi eftir að
Virginíuríki hafði staðfest
þá.
1890 Indjánahöfðinginn Sitting
Bull fellur í átökum við
indjánalögregluna ásamt
11 félögum sínum.
1916 Frakkar vinna sigur á Þjóð-
verjum í hinni blóðugu orr-
ustu við Verdun í fyrri
heimsstyrjöldinni.
1945 Bandaríski hershöfðinginn
Douglas MacArthur skipar
svo fyrir að shinto-trúar-
brögðin verði ekki lengur
ríkistrú í Japan.
1989 Almenn uppreisn hefst í
Rúmeníu gegn harðstjór-
anum Nicolae Ceaucescu.
Eichmann dæmdur til dauða
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
Eiríkur Ísfeld Andreasen
Kársnesbraut 94, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 17. des.
kl. 13:00.
Lilja S. Guðlaugsdóttir, Kristinn, Þorbjörn, Guðlaugur, Magnús
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Davíð S. Helgason
Laufási 3, Egilsstöðum, áður til heimilis í Fellsási 5,
Mosfellsbæ,
er lést á heimili sínu laugardaginn 4. desember verður jarðsunginn
frá Grafarvogskirkju föstudaginn 17. desember kl 13.00.
Þeim sem vildu minnast Davíðs, er bent á að stofnaður hefur verið
reikningur til styrktar barna - og unglingastarfi Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs.
Var það hans hjartans mál að koma því starfi vel af stað.
Reikn. 0175 05 073042, kt. 500387 3199
Auður Ragnarsdóttir, Kristín Hrund Davíðsdóttir, Thron Alm, Dagný
Davíðsdóttir, Edda Davíðsdóttir, Kristján B. Magnússon, Davíð Kári
Kárason, Jónas Thornson Alm, Nora Iris Alm, Ingimundur Helgason.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
útför, föður okkar og afa,
Magnúsar Sigurðssonar
frá Hvammi, Fáskrúðsfirði.
Guði gefi ykkur gleðilega jólahátíð.
Börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Yndislegur eiginmaður, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ragnar Björnsson
Efri-Reykjum, Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn fimmtudaginn 16. desember kl. 13.00 frá dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
Ásta Jónsdóttir, Björn R. Einarsson, Jón Davíð Ragnarsson,
Björn Ingi Ragnarsson, Lovísa Rut Jónsdóttir, Jóhann Óskar
Ragnarsson og Ásta Margrét Jónsdóttir.
ANDLÁT
Fjóla Kristín Sigurðardóttir, Naustum
1, Akureyri, lést sunnudaginn 12. des-
ember.
Lilja Ólafsdóttir, Sörlaskjóli 70, Reykja-
vík, lést laugardaginn 11. desember.
Stefanía Jóhanna Guðmundsdóttir,
Mýrarbraut 6, Blönduósi, lést mánudag-
inn 13. desember.
Þórður Guðmundsson vélfræðingur,
Reykjaborg, Mosfellsbæ, lést sunnudag-
inn 12. desember.
JARÐARFARIR
13.00 Björn Andersen, Efstasundi 41,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Reykjavík
Þegar Davíð keypti ölið
„Ég geri bara það sem mér dett-
ur í hug,“ segir Kristín Andrés-
dóttir myndlistarmaður, sem
kýs að nota listamannsnafnið K.
And. Ýmist málar hún lands-
lagsmálverk eða portrettmynd-
ir, og svo hefur hún gert módel-
myndir af fólki sem situr fyrir
hjá henni.
Um þessar mundir er hún
með sýningu að Árskógum 4 í
Breiðholti, þar sem félags- og
þjónustumiðstöð aldraðra er til
húsa.
Þar sýnir Kristín 20 lands-
lagsmyndir, allar unnar með
pastellitum.
„Ég hef farið víða til að mála,
að Ófærufossi og Geysi, Þing-
völlum, Snæfellsjökli og Skjald-
breið.“ Á hverjum stað rissar
hún upp myndir sem hún vinnur
síðan úr heima hjá sér.
Þetta er sjöunda sýning
Kristínar, sem hóf myndlistar-
nám við MHÍ aðeins sjö ára
gömul. Sýningin stendur út des-
embermánuð. ■
Landslag í fögrum litum
KRISTÍN ANDRÉSDÓTTIR Sýnir tuttugu
málverk í Árskógum.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR