Fréttablaðið - 15.12.2004, Qupperneq 56
Djass, blús, leikhús- og kvikmyndatónlist,
suður-amerísk tónlist og íslensku þjóðlögin
eru meðal þess sem heyra má í gítartónlist
Gunnars Reynis Sveinssonar sem nú er
komin út á geisladiski.
Einn af þeim geisladiskum sem tilnefndir eru til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna sem „plata ársins“ er
Glíman við Glám, sem hefur að geyma gítarverk eft-
ir Gunnar Reyni Sveinsson. Á diskinum leikur gítar-
leikarinn Símon H. Ívarsson verk Gunnars, auk þess
sem þýski gítarleikarinn Jörgen Brilling er með í
einu verki sem er fyrir tvo gítara.
Símon segir verkin afrakstur fjórtán ára sam-
vinnu þeirra Gunnars Reynis, en hann sé það ís-
lenska tónskáld sem hefur samið mest fyrir gítar.
„Mörg tónskáld hafa samið eitt eða tvö verk,“ segir
Símon, „en það má kannski segja að í gegnum þessa
samvinnu, sem hefur verið mjög náin, hafi þetta
mörg verk orðið til eftir Gunnar. Gítarinn hefur ver-
ið hans uppáhaldshljóðfæri, þótt hann hafi ekki leik-
ið á það sjálfur.“
Tónlistin á diskinum er mjög fjölbreytt og falleg,
tónlist sem gaman er að hlusta á. „Hún kemur úr öll-
um áttum,“ segir Ívar, „og það sem vekur athygli er
hve hún er lýrísk og melódísk, en um leið koma sterk
áhrif úr djassi og blús – og jafnvel frá Suður-Amer-
íku.“
Gunnar er faðir djassins á Íslandi, ásamt Jóni
Múla. Hann var í gamla daga í KK-sextettinum og
festi þá rætur í þessari tónlist sem lifir með honum
enn þá. En hann hefur einnig haft mikinn áhuga á ís-
lenskri tónlist og það gætir oft áhrifa frá íslenskum
þjóðlögum, eins og í Íslenskri rapsódíu. Sérstaklega
í Mansöng í því verki, þar sem til dæmis koma fyrir
samstíga fimmundir.
Í Glímunni við Glám er íslenskur keimur á yfir-
borðinu í bland við djass en undir niðri er suður-am-
erískur rytmi.
Þegar maður fer að skoða feril Gunnars kynnist
maður manni sem hefur farið víða. Hann hefur samið
óheyrilega mikið fyrir leikhús og kvikmyndir – en mest
hefur hann samið fyrir söngvara og kóra.
Það er svo sérkennilegt að kannski varð þessi tón-
smíðaaðferð Gunnars til þess að hann varð ekki al-
veg í tísku, því hann leyfir sér að vera lýrískur og vel
skiljanlegur – sem féll kannski ekki vel í kramið hjá
þeim sem voru að fást við tilraunatónlist og þeim
sem voru að fást við djass fannst hann of klassískur.
Hann lenti því á milli hópa og það er kannski ekki
fyrr en í dag sem menn mega semja svona. Þetta hef-
ur verið í ákveðnum deildum.
Símon segir það eitt af hlutverkum íslenskra
hljóðfæraleikara að spila íslenska tónlist en viður-
kennir um leið að stundum geti það verið snúið. „Þeg-
ar íslenskt tónskáld semur verk fyrir eitthvert hljóð-
færi, semur hann með tiltekinn hljóðfæraleikara í
huga – sem síðan fylgir verkinu eftir. Ókosturinn er
kannski sá að öðrum finnst viðkomandi hljóðfæra-
leikari eiga dálítið í verkinu og halda sig því til hlés.“
Hvað gítartónlist varðar, segir Símon í rauninni
ekki svo mikið til af henni. „Það mætti vel auka við
þann sjóð. En þar kemur upp það vandamál að gítar-
inn er svo flókið hljóðfæri í einfaldleika sínum að það
þarf að kalla til þetta samstarf hljóðfæraleikarans og
tónskáldsins. Stundum er hægt að semja eitthvað
sem hentar mjög illa fyrir hljóðfærið og þá er það
ekki örvandi að takast á við það.“ ■
SÍMON H. ÍVARSSON Gítarinn er svo flókið hljóðfæri í einfald-
leika sínum að það þarf að kalla til þetta samstarf hljóðfæraleik-
arans og tónskáldsins.
40 15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
LAUGARDAGUR 18/12
BÓKAKYNNING OG LEIKLESTUR
Í samstarfi Borgarbókasafns og LHÍ
Kristín Ómarsdóttir og Bragi Ólafsson
lesa úr nýju bókunum. Flutt brot úr 3 leikritum
þeirra. Forsala á SEGÐU MÉR ALLT, 2. - 5.
sýningu - kl 14:00 - Aðgangur ókeypis -
SUNNUDAGUR 19/12
SKÁKMÓT HELLISINS
KL. 11:00
JÓLASÝNING LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS
KL. 16:00
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
GJAFAKORT Í
BORGARLEIKHÚSIÐ
- GILDIR ENDALAUST -
Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafakort
fyrir tvo kr. 5.400 Gjafakort á Línu
Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr.
4.000 VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM
ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
- pantið í síma 568 8000
eða á midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu:
www.borgarleikhus.is
Miðasala, sími 568 8000
AUKASÝNING
mið. 29.12 kl. 20
LOKASÝNING
fim. 30.12 kl. 20 Uppselt
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan er opin frá 14-18,
lokað á sunnudögum
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
sun. 19. des. kl. 14- sun. 26. des kl. 14 SÍÐUSTU SÝNINGAR
Gjafakort í Óperuna
- upplögð gjöf fyrir músikalska vini, ættingja, starfsmenn og viðskiptavini
20% afsláttur af völdum útgáfum af óperunni Tosca í verslun Skífunnar á Laugavegi 26 gegn
framvísun gjafkorts. Gjafakort seld í miðasölu.
Tosca – Frumsýning 11. febrúar – Uppselt – 2.sýning 13. febrúar
3. sýning 18. febrúar – 4. sýning 20. febrúar
Miðasala á netinu: www.opera.is
Mán. 27. des. kl. 20
Mið. 15. des. kl. 16.00 og 20.00
Fös. 17. des. kl. 12.00
Lau. 18. des kl. 14.00
Sun. 19. des. kl. 18.00 og 20.00
Mán. 20. des. kl. 16.00
Þri. 21. des. kl. 14.00 og 20.00
Mið. 22. des. kl. 16.00
Fim. 23. des. kl. 14.00 og 20.00
Jólin syngja
Mið. 22. des. kl. 22
Tónleikar:
Ragnheiður Gröndal
með hljómsveit
Mán. 20. des. kl. 20
Guðrún og Javier
Mezzó og gítar
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
Tónlist úr öllum áttum
Ellen Kristjánsdóttir verður með
útgáfutónleika í Grafarvogskirkju í
kvöld þar sem hún ætlar að flytja
öll lögin af nýútkomna geisladiskin-
um sínum, sem heitir Sálmar. Á
diskinum eru íslenskir sálmar frá
ýmsum tímum í nýjum útsetningum
Ellenar og Eyþórs Gunnarssonar.
Hún segist hafa farið að hlusta á
þessa sálma í kirkjum þegar hún
var að koma þar fram ásamt K.K.,
bróður sínum, og smám saman hafi
hana farið að langa til þess að gera
eitthvað við þessi lög, sem mörg
hver eru afar falleg.
„Fyrst verður maður reyndar
svolítið feiminn við þessa músík,“
segir Ellen. „En svo fann ég að þetta
er bara lífið. Þetta eru mikið til lög
sem fólk söng í gamla daga, saman í
baðstofunni.“
Á diskinum eru vel þekktir
sálmar á borð við Guð gaf mér eyra,
Heyr himnasmiður, Ó, faðir gjör
mig lítið ljós og Ó, Jesú bróðir besti.
Ellen segir það hafa verið ákaf-
lega gaman að takast á við þessi lög
og reyna að vekja þau til lífs í
öðrum búningi.
Sér til fulltingis á tónleikunum í
kvöld hefur Ellen fengið alla þá tíu
hljóðfæraleikara sem leika með
henni á diskinum. Eyþór Gunnars-
son leikur á hljómborð, Lárus Sig-
urðsson á sveimgítar, K.K. á gítar,
Sigurgeir Agnarsson á selló,
Matthías Hemstock á slagverk,
Guðmundur Pétursson á gítar,
Sigurður Flosason og Jóel Pálsson á
bassaklarinett, Ólafur Jónsson á
klarinett og Óskar Guðjónsson á
sópransaxófón. Þá munu þrjár dæt-
ur Ellenar syngja með henni eitt lag
og Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
flytja inngangsorð.
„Ég er ekki frelsuð eða neitt svo-
leiðis,“ tekur Ellen fram. „Það er
alls konar misskilningur í gangi. Ég
trúi bara á Guð og allt það góða, eins
og svo margir gera. Engar öfgar.“
Hún segist líka vera á móti þeirri
hugsun að fólk verði að tilheyra
ákveðnum hópum til þess að geta
flutt ákveðna tegund af tónlist.
„Þetta er fyrst og fremst svo
falleg tónlist sem við höfum öll alist
upp við. Þessi lög eru fyrir löngu
orðin þjóðaraeign.“ ■
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR
Flytur íslenska sálma ásamt
Eyþóri Gunnarssyni og fleiri
hljóðfæraleikurum í Grensás-
kirkju í kvöld.
Ellen syngur sálmana í Grafarvogi
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI