Fréttablaðið - 20.12.2004, Side 18
18
5 FANGELSI ERU Á ÍSLANDI OG Í
ÞEIM SAMTALS 137 KLEFAR
Heimild: Fangelsismálastofnun
SVONA ERUM VIÐ
„Ég held að Íslendingar geri allt of
lítið af því að veita fólki dvalarleyfi
af mannúðarástæðum,“ segir Arnþór
Helgason, framkvæmdastjóri Ör-
yrkjabandalags Íslands, þegar hann
er inntur álits á því að veita eigi
skákmeistaranum Bobby Fischer
landvistarleyfi hér á landi.
„Hér er fyrst og fremst um mannúð-
armál að ræða, en það er þó greini-
legt að ekki er sama hvort maður-
inn heitir Jón eða séra Jón. Það er
ekki algengt að Íslendingar taki
svona rösklega á málum.“ Arnþór
segir stjórnvöld þó eiga heiður skil-
inn fyrir að bjóða Fischer hér land-
vist, hvort sem það er gert í óþökk
eða með leyfi Bandaríkjamanna.
Hann telur þó varla að Íslendingar
séu að hjálpa Bandaríkjamönnum
að leysa hnútinn sem skapast hefur
vegna Fischers. „Ég veit ekki hvort
þetta skiptir bandarísk stjórnvöld
nokkru máli miðað við þau ósköp
sem þau aðhafast á alþjóðavett-
vangi. Bandaríkjamenn eru sérfræð-
ingar í að koma sér í klípu á meðal
annarra en sjálfra sín. Íraksstríðið er
þar glöggt dæmi og hvernig þeir
halda hlífiskildi yfir Ísrael þrátt fyrir
ýmis óhæfuverk Ísraelsmanna á
hendur nágrönnum sínum.“ - óká
ARNÞÓR HELGASON
Ekki sama Jón
og séra Jón
DVALARLEYFI HANDA
BOBBY FISCHER
SJÓNARHÓLL
Allt er fallið í ljúfa löð í Breiðholti þar sem
fyrir um ári síðan bárust fréttir um hörð
átök unglinga. Átökin voru sögð milli
gengja og var annar hópurinn önnur kyn-
slóð innflytjenda.
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir
það heyra til undantekninga lendi hópum
í hverfum borgarinnar saman: „Við vissum
alltaf að þetta var aldrei djúpur ágreining-
ur,“ segir Geir Jón: „Þetta var mest út af
kvennamálum. Það var nú það sem stóð
upp úr. Það er ný og gömul saga.“ Málið
hafi verið farsællega leyst í samstarfi við
hópana. Lykilmenn sem þekktu vel til inn-
an þeirra hafi verið fengnir til að ræða
saman.
Fréttaflutningur af átökunum náði hámæli
þegar ungmenni ruddu sér leið inn í íbúð
í Seljahverfi seinni hluta septembermán-
aðar í fyrra. Þau mölbrutu útidyrahurð og
gengu berserksgang, brutu allt og bröml-
uðu og börðu tæplega tvítugan íbúa með
golfkylfu. Móðir hans stóð álengdar. Hún
ætlaði að kæra árásina en hvarf frá því.
Var aðdraganda átakanna lýst í fjölmiðl-
um og sögðu unglingar í hverfinu að
slagsmál á milli hópa af ólíkum uppruna
væru mjög algeng og að aukast ef eitt-
hvað væri. Húsbrotið í Seljahverfi var
þriðja árásin á tveimur dögum. Ryskingar
höfðu verið við söluturn í Eddufelli. Þar
hlaut unglingur skurðsár. Sama kvöld var
unglingur fluttur á slysadeild eftir að hafa
verið barinn með hafnaboltakylfu fyrir
utan Select í Fellahverfi.
Geir Jón segir að vel hafi náðst að taka
utan um vandamálið. Forvarnahópur lög-
reglunnar, Félagsþjónustan og starfsfólk
Íþrótta- og tómstundaráðs vinni saman að
forvörnum:
„Fólk vinnur saman í teymi og fer út í
hverfin til að sjá hvað er að gerast. Sam-
starfið hefur skilað mjög góðum árangri.
Við erum með gott fólk úti í hverfunum
sem grípur strax inn í og þetta fær ekki
að grassera. Það er lykillinn að lausinni.“
Menn töluðu saman og leystu ágreininginn
EFTIRMÁL: ÁTÖK HÓPA Í BREIÐHOLTI FYRIR RÚMU ÁRI SÍÐAN
20. desember 2004 MÁNUDAGUR
Hansína er nýi bæjarstjórinn
Hansína Á. Björgvinsdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Kópavogi á fyrsta vinnudegi á nýju ári.
Hún þurfti góðan umhugsunarfrest áður en hún ákvað að takast á við verkefnið. „Það hafði
aldrei hvarflað að mér að þurfa að kljást við þetta verkefni,“ segir hún.
KÓPAVOGUR Samkomulag var milli
fulltrúa flokkanna í meirihluta
Kópavogs um bæjarstjóraskipti
1. júní á næsta ári. Gunnar I.
Birgisson, oddviti Sjálfstæðis-
flokks, hefði þá orðið bæjarstjóri
og Sigurður Geirdal, oddviti
Framsóknarflokksins, hefði orðið
formaður bæjarráðs en þetta
breyttist við óvænt fráfall Sig-
urðar. Rökrétt þótti að Hansína Á.
Björgvinsdóttir, sem skipaði ann-
að sæti Framsóknarflokksins,
gengi inn í samkomulagið og tæki
sæti bæjarstjóra.
„Það tók mig dálítinn tíma að
gera upp minn hug. Þetta voru
óvæntar breytingar og ég þurfti
að glíma við sjálfa mig í því efni,“
segir Hansína. „Þetta bar afskap-
lega sorglega að. Sigurður var
náttúrlega bæjarstjórinn. Það var
alveg heillandi skemmtilegt að
starfa með honum og mikil sorg
hjá öllum bæjarbúum, hvar sem
þeir stóðu í flokki, þegar hann
féll frá. Allir bæjarbúar voru
harmi slegnir. Það hafði aldrei
hvarflað að mér að þurfa að
kljást við þetta embætti. Fjöl-
skylda mín var búin að skipu-
leggja ýmislegt sem við þurftum
að breyta og svo varð ég að vita
hvort ég treysti mér í þetta
þannig að þetta tók dálítinn
tíma,“ segir hún.
Í mörg horn er að líta þegar
embætti bæjarstjóra er annars
vegar. Kópavogsbær verður 50
ára á næsta ári og stendur afmæl-
ishátíðin allt árið þó að hún nái
hápunkti á afmælisdeginum 11.
maí. „Það segir sig sjálft að hlut-
verk bæjarstjóra er stórt í því.
Svo eru náttúrlega ýmis verkefni
sem allir bæjarstjórar sinna. Ég
tek við sérstaklega góðu búi.
Fjárhagsáætlun lítur vel út og
tekjuafgangur er sérlega góður.
Skuldirnar lækka frekar en hitt
og við höfum góðan rekstraraf-
gang miðað við önnur sveitarfé-
lög,“ segir Hansína.
En hver er hún þessi kona sem
sest í bæjarstjórastólinn í Kópa-
vogi um áramót? Hansína er
fædd á Eyrarbakka árið 1946.
Faðir hennar var Björgvin Jóns-
son, kaupfélagsstjóri og fyrrver-
andi þingmaður Framsóknar-
flokksins, sem er látinn. Móðir
hennar heitir Ólína Þorleifsdóttir.
Hún bjó á Eyrarbakka og Selfossi
fyrstu æviárin, fjölskyldan flutti
svo til Seyðisfjarðar og ólst hún
þar upp í stórum systkinahópi.
Þegar Hansína var 17 ára fluttist
fjölskyldan á mölina. Hansína
hefur búið í Kópavogi frá 1971.
Hansína er gift Ingva Þorkels-
syni, kennara við Fjölbrautaskól-
ann í Garðabæ. Þau eiga þrjú
börn og þrjú barnabörn. Hún
hefur starfað sem grunnskóla-
kennari nánast allan sinn starfs-
aldur, síðustu árin í Kópavogs-
skóla. „Síðustu árin hef ég ekki
verið að kenna. Það var svo ansi
snúið að vera bæði í kennslu og
bæjarstjórn. Mér fannst ég vera
farin að sinna kennslunni illa því
að ég þurfti svo oft að fá annan til
að kenna fyrir mig,“ segir hún.
Hansína hefur verið bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins í
Kópavogi frá 1998, en áður var
hún varabæjarfulltrúi eitt kjör-
tímabil og gegndi þá jafnframt
formennsku í félagsmálaráði.
Áhugamál hennar eru bundin við
æskulýðsmál, stjórnmál og fjöl-
skyldu auk þess sem hún veiðir
með manni sínum á sumrin. „Svo
hef ég gaman af fjölskyldu- og
heimilislífi, sérstaklega barna-
börnunum. Mér þykir óskaplega
skemmtilegt að eiga barnabörn.“
ghs@frettabladid.is
HANSÍNA Á. BJÖRGVINSDÓTTIR
Hansína skipaði annað sæti Framsóknarflokksins í Kópavogi í síðustu kosningum. Það
þótti því eðlilegt að hún gengi inn í samkomulag oddvita flokkanna við skyndilegt fráfall
Sigurðar Geirdal bæjarstjóra. Hún tekur við um áramót.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M