Fréttablaðið - 20.12.2004, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 20.12.2004, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Yfirbót Ímyndum okkur að ég hefði árumsaman rakað saman stórfé á því að svindla á íslensku þjóðinni. Ímyndum okkur að ég hefði verslað með bensín og olíur, smokka og sæl- gæti og ég hefði að staðaldri stund- að ólöglegt verðsamráð við önnur fyrirtæki í sömu grein og snuðað þjóðina um að minnsta kosti 40 milljarða – 40.000.000.000 kr. – það er um 150 þúsund krónur á hvert mannsbarn í landinu. ÍMYNDUM okkur svo að sukkið hefði komist upp, Samkeppnisstofn- un hefði komist á snoðir um svínarí- ið og kjaftað frá því að ég væri glæpamaður og fyrirtækið mitt – sem gæti heitið Steljungur – væri eitt afkastamesta þjófafélag í Ís- landssögunni. Ímyndum okkur að þjóðin hefði svo mikla skömm á mér og fyrirtækinu Steljungi að við- skiptavinirnir hefðu snúið við mér bakinu og væru farnir að versla við aðra aðila. HVAÐ gæti ég gert? Jú, ég gæti reynt að biðjast afsökunar. Jú, ég gæti bent blaðamönnum á að tala við lögfræðinga mína og eftirlátið þeim að reyna að sannfæra þjóðina og dómstólana um að þetta hafi allt saman verið saklaus misskilningur. Þar að auki gæti ég reynt að vinna mig aftur í álit hjá þjóðinni með því að vinna eitthvert stórkostlegt kær- leiksverk sem dygði til að sannfæra fólk um að inn við beinið sé ég bæði góður og heiðarlegur maður þótt ég hafi verið svo óheppinn að ráða til mín óheiðarlega millistjórnendur sem rottuðu sig saman og fóru á bak við mig í samræmdum aðgerð- um til að skrúfa upp olíuprísa og hækka vísitölu og vexti. MUNURINN á góðverkum og glæpum er sá að maður vill að góð- verkin spyrjist út en glæpirnir ekki. Það er ekki til neins að gera góð- verk á einhverjum smælingjum sem enginn þekkir eða hefur áhuga á. Þess vegna mundi ég reyna að gera góðverk á einhverjum sem væri nægilega frægur til þess að það borgaði sig að gera góðverk á hon- um sem allir tækju eftir. Ég mundi bjóðast til að borga farmiða fyrir Bobby Fischer frá Tókíó til Reykja- víkur. Þá mundu allir sjá hvað ég er í rauninni góður maður. Svo mundi ég stofna vegleg skákverðlaun og kalla þau Fischer Prize. Og allir mundu aftur fara að versla við Steljung. BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.