Fréttablaðið - 20.12.2004, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Yfirbót
Ímyndum okkur að ég hefði árumsaman rakað saman stórfé á því
að svindla á íslensku þjóðinni.
Ímyndum okkur að ég hefði verslað
með bensín og olíur, smokka og sæl-
gæti og ég hefði að staðaldri stund-
að ólöglegt verðsamráð við önnur
fyrirtæki í sömu grein og snuðað
þjóðina um að minnsta kosti 40
milljarða – 40.000.000.000 kr. – það
er um 150 þúsund krónur á hvert
mannsbarn í landinu.
ÍMYNDUM okkur svo að sukkið
hefði komist upp, Samkeppnisstofn-
un hefði komist á snoðir um svínarí-
ið og kjaftað frá því að ég væri
glæpamaður og fyrirtækið mitt –
sem gæti heitið Steljungur – væri
eitt afkastamesta þjófafélag í Ís-
landssögunni. Ímyndum okkur að
þjóðin hefði svo mikla skömm á mér
og fyrirtækinu Steljungi að við-
skiptavinirnir hefðu snúið við mér
bakinu og væru farnir að versla við
aðra aðila.
HVAÐ gæti ég gert? Jú, ég gæti
reynt að biðjast afsökunar. Jú, ég
gæti bent blaðamönnum á að tala
við lögfræðinga mína og eftirlátið
þeim að reyna að sannfæra þjóðina
og dómstólana um að þetta hafi allt
saman verið saklaus misskilningur.
Þar að auki gæti ég reynt að vinna
mig aftur í álit hjá þjóðinni með því
að vinna eitthvert stórkostlegt kær-
leiksverk sem dygði til að sannfæra
fólk um að inn við beinið sé ég bæði
góður og heiðarlegur maður þótt ég
hafi verið svo óheppinn að ráða til
mín óheiðarlega millistjórnendur
sem rottuðu sig saman og fóru á
bak við mig í samræmdum aðgerð-
um til að skrúfa upp olíuprísa og
hækka vísitölu og vexti.
MUNURINN á góðverkum og
glæpum er sá að maður vill að góð-
verkin spyrjist út en glæpirnir ekki.
Það er ekki til neins að gera góð-
verk á einhverjum smælingjum sem
enginn þekkir eða hefur áhuga á.
Þess vegna mundi ég reyna að gera
góðverk á einhverjum sem væri
nægilega frægur til þess að það
borgaði sig að gera góðverk á hon-
um sem allir tækju eftir. Ég mundi
bjóðast til að borga farmiða fyrir
Bobby Fischer frá Tókíó til Reykja-
víkur. Þá mundu allir sjá hvað ég er
í rauninni góður maður. Svo mundi
ég stofna vegleg skákverðlaun og
kalla þau Fischer Prize. Og allir
mundu aftur fara að versla við
Steljung.
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR