Fréttablaðið - 20.12.2004, Page 78
46 20. desember 2004 MÁNUDAGUR
„Pabbi er minn uppáhaldsblaða-
maður. Hann skrifar svo fallega og
á auðvelt með að láta allt syngja.
Svo er hann fyndinn og gaman að
lesa það sem hann skrifar. Ég þekki
alltaf orðin hans, jafnvel þótt nafnið
hans sé ekki undir greininni. Hann
er svo helvíti dramatískur, hann
pabbi,“ segir hún hlæjandi; nýjasti
blaðamaðurinn í bænum og dóttir
Eiríks Jónssonar; Hanna Eiríksdótt-
ir. Það var bara á dögunum sem hún
hóf að skrifa fyrir mest selda tíma-
rit landsins, Séð & Heyrt, en áður
hafði hún labbað inn á ritstjórnina
og sótt um vinnu, sem hún fékk
strax daginn eftir.
„Ég er bara nýbyrjuð og þótt ég
sé með blaðamannagráðu í fartesk-
inu hef ég enga reynslu og hef ekki
skrifað staf af viti í tvö ár. Mér
fannst því sjokk að byrja; hvíslaði í
símann því mér fannst allir hlusta,
en það er mjög gaman í vinnunni
núna.“
Hanna útskrifaðist úr tímarita-
blaðamennsku frá Flórídaháskóla
árið 2002, en hélt til Perugia á Ítalíu
til að nema hina rómantísku tungu
áður en hún kom aftur heim til Ís-
lands. „Ég bjó í Flórída á áttunda ár,
en mamma bjó þar fyrir og mér
hafði gengið illa í menntaskólanum
heima. Dreif mig því út og leit á það
sem ævintýri og hafði engu að tapa.
Ætlaði reyndar alls ekki að koma
heim strax og ætlaði beint í master-
inn en klúðraði því og varð að fara
heim vegna innflytjendalaganna
ytra. Nú er ég mjög fegin að hafa
komið heim því Bandaríkin gera
menn þröngsýna og lokaða. Ég er
opin manneskja en fann glöggt að
ég var búin að vera of lengi úti, því
Bandaríkin eru allt annað en frjálst
land. Ég uppgötvaði svo á kaffihúsi
í Róm að ég þurfti ekki að vinna í
Ameríku til að verða hamingjusöm
og það var léttir.“
Hún segir draum sinn alltaf hafa
snúist um blaðamennsku og reyndar
líka sjónvarpsmennsku, vegna þess
hve Eiríkur faðir hennar sat lengi í
sjónvarpsstól. „En ég er allt of feim-
in fyrir myndavélarnar og roðna of
mikið fyrir sjónvarp. Því valdi ég
tímaritaskrif í skólanum því þar
hefur maður mesta svigrúmið og
getur skrifað ítarlegri greinar um
eitthvað sem manni þykir vænt um,
eða bara hvað sem er. Ég er auðvit-
að enn að þróa minn stíl og þótt ég sé
mjög lík pabba veit ég ekki hvort
stíllinn sé sá sami, enda hefur hann
svo mikla reynslu að baki. En ég fæ
dugandi ráð og alltaf eina og eina at-
hugasemd frá honum, sem ég tek
vitaskuld fegins hendi,“ segir
Hanna brosmild og heldur áfram að
skrifa Íslendingasögur vorra tíma.
thordis@frettabladid.is
Stórmyndin The Phantom of the
Opera er að fá heldur snautlega
dóma í Bretlandi um þessar mundir.
Miklar vonir voru bundnar við
myndina þannig að kuldalegar mót-
tökur breskra gagnrýnenda hljóta
að teljast mikil vonbrigði. Dómarn-
ir snerta svo stóra Íslandsverkefni
Bjólfskviðu beint þar sem aðalleik-
ari þeirrar myndar, Skotinn Gerard
Butler, fer einnig með hlutvek Óp-
erudraugsins.
Sturla Gunnarsson, leikstjóri
Bjólfskviðu, sagði í viðtali við F2,
fylgirit Fréttablaðsins, fyrir
skömmu að ef Óperudraugnum yrði
vel tekið gæti það þýtt að Butler
skytist upp á stjörnuhimininn og
gæti þannig greitt götu Bjólfskviðu.
Sé tekið mið af ummælum um Óp-
erudrauginn verður Bjólfur hins
vegar að sigra heiminn á eigin for-
sendum. The Sunday Times gefur
henni tvær stjörnur og segir hana
álíka skemmtilega og að standa
klukkustundum saman og horfa á
fallega skreyttan sýningarglugga.
The Guardian slátrar myndinni svo
með einni stjörnu og segir hana
vera líflausa og andvana.
Butler nýtur þó samúðar gagn-
rýnandans, sem segir hann fá það
óöfundsverða verkefni að leika
drauginn. „Hann er þó að mestu fal-
inn á bak við grímuna og getur því
reynt að láta eins og hann hafi ekki
verið í myndinni.“ Butler er því
ekki gerður ábyrgur fyrir meintum
leiðindum myndarinnar og kannski
bjargar gríman Bjólfi. Þá er ekki öll
nótt úti enn þar sem aðrir gagn-
rýnendur eru jákvæðari og Empire
gefur myndinni til dæmis þrjár
stjörnur af fimm. ■
FEÐGININ OG BLAÐAMENNIRNIR EIRÍKUR OG HANNA Hanna sá starf blaðamannsins sveipað rósrauðum bjarma í gegnum upp-
eldið hjá Eiríki Jónssyni, einum kunnasta blaðamanni þjóðarinnar. Hún vildi reyndar líka í sjónvarpið, en roðnar of mikið sökum feimni til
að feta þann veg.
„Mér finnst besta jólalagið það sem er alltaf sungið
síðast og það heitir Heims um ból,“ segir Ómar Ragn-
arsson. „Mönnum getur fundist það eitthvað sveita-
legt og hallærislegt, en í mínum huga eru jólin ekki
komin fyrr en maður heyrir þetta lag.“
Heims um ból var samið í Austurríki fyrir nærri tvö
hundruð árum síðan og er tvímælalaust þekktasta
jólalag heims, sem varla getur verið tilviljun.
Sjálfur hefur Ómar bæði sungið mörg jólalög og
samið texta við enn fleiri, þar á meðal við lagið Have
Yourself a Merry Little Christmas, sem lengi hefur ver-
ið í töluverðu uppáhaldi hjá honum.
„Mér fannst þetta lag mjög gott þegar ég heyrði það
fyrst, afskaplega hátíðlegt og ljúft. Þegar Björgvin
Halldórsson hringdi í mig og bað mig að gera textann
var það mjög auðsótt.“
Það var Judy Garland sem fyrst söng þetta ljúfa lag
árið 1943 í bíómyndinni Meet Me in St. Louis. Lagið
samdi Hugh Martin, en enski textinn er eftir Ralph
Blane. Í þýðingu Ómars heitir það Glæddu jólagleði
þínu hjarta.
Ómar nefnir þriðja jólalagið til sögunnar, sem var
reyndar ekki samið upphaflega sem jólalag.
„Þetta er danska lagið Lille sommerfugl, eða Litla
jólabarn.“
Það var Ómar sjálfur sem breytti þessu danska lagi í
jólalag með texta sínum, sem saminn var á gleði-
stund í fjölskyldu hans.
„Við eignuðumst fatlað barn, og þess vegna held ég
mest upp á þennan texta fyrir mig og fjölskyldu
mína.“
SÉRFRÆÐINGURINN
… fær Bjarni Ólafsson fyrir að
hafa séð um að fata jólasveinana
upp í átján ár. Þetta er vafalaust
vandasamt og mikið starf þar
sem þeir gaurar eru líklega fljótir
að slíta fötunum á brölti sínu um
Esjuna.
HRÓSIÐ
– hefur þú séð DV í dag?
ÍSLENSK STÚLKA
LAUG NAUÐGUN
UPP Á BANDA-
RÍSKAN HERMANN
Lárétt: 1 yfirráð, 5 slæm. 6 leyfist, 7 ónefnd-
ur, 8 orðsending, 9 að endingu, 10 kindur,
12 hag, 13 fugl, 15 atviksorð, 16 kvenfugl, 18
drepa.
Lóðrétt: 1 eftirsóttar, 2 armur, 3 tveir eins, 4
ræður á heimili, 6 kaffihús, 8 slöngutegund,
11 blóm, 14 nóa, 17 í röð.
Lausn:
Lárétt: 1völd,5ill,6má,7nn,8boð,9
loks,10ær, 12akk,13lóa,15ao,16assa,
18kála.
Lóðrétt: 1vinsælar, 2öln,3ll,4ráðskona,6
mokka,8boa,11rós,14ask,17aá.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Big Food Group.
Ali Hassan al-Majid
(Efnavopna-Ali).
Jose Mourinho.
Jólalag: „Heims um ból“ er auðvitað besta jólalagið.
Jólalögin hans Ómars
ÓMAR RAGNARSSON Væntanlega er það engin tilvilj-
un hversu miklum vinsældum Heims um ból hefur náð
sem jólalag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
LI
ÓPERUDRAUGURINN Gríma Butlers
gæti bjargað Bjólfi.
Draugsgríma gæti bjargað Bjólfi
HANNA EIRÍKSDÓTTIR, BLAÐAMAÐUR Á SÉÐ & HEYRT, FETAR Í FÓTSPOR FÖÐUR SÍNS
Eplið og Eikin, eða Eiríkur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R