Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
NEYÐARHJÁLP Í NORÐRI Land-
söfnunin Neyðarhjálp úr norðri hefst í
dag. Söfnunin er til styrktar fórnarlömb-
um hamfaranna í Asíu. Hámarki nær
söfnunin með beinni sjónvarpsútsend-
ingu á laugardaginn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
10. janúar 2005 – 8. tölublað – 5. árgangur
● ekta amatörar
Gefur munaðarlausum
drengjum nýtt útvarp
Í.R.A.:
▲
SÍÐA 34
● elsti fréttaritari ríkisútvarpsins
Kominn á
tíræðisaldur
Grímur Gíslason:
▲
SÍÐA 22
ÓTTAST KLÓRGASSLYS Í KÓPA-
VOGI Ekki er vitað hve mikið klórgas er á
svæði Mjallar-Friggjar í Kópavogi. Íbúar eru
áhyggjufullir. Bæjaryfirvöld taka ákvörun
um miðjan mánuð. Sjá síðu 2
YFIRBURÐASIGUR MAHMOUDS
ABBAS Mahmoud Abbas er nýr forseti
Palestínu. Hann ætlar endurvekja friðarvið-
ræðurnar við Ísraela eins fljótt og auðið er.
Það eru erfiðir tímar framundan að sögn
Abbas. Sjá síðu 4
HÆKKANIR LANGT UMFRAM
VERÐLAG Alþýðusamband Íslands hefur
áhyggjur af hækkunum ríkis og sveitar-
félaga á gjaldskrám og áhrifum þeirra á
verðbólgu. Sjá síðu 6
IMPREGILO FÆR EKKI SÉRMEÐ-
FERÐ Talsmaður Impregilo er ósáttur við
gagnrýni á fyrirtækið síðustu daga. Hann
telur flestar fullyrðingar verkalýðshreyfingar-
innar rangar. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
Andri Ingólfsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Þegar menn byggðu
eins og karlmenni
● fasteignir ● heimili
20-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
61%
37%
SNJÓKOMA um sunnanvert landið.
Stöku él annars staðar. Frost víðast 1-10
stig, kaldast til landsins. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
STJÓRNMÁL Nýir frambjóðendur
þurfa að leiða lista Framsóknar-
flokksins í næstu borgarstjórnar-
kosningum ef árangur á að nást,
að mati Gests Gestssonar, for-
manns Framsóknarfélags
Reykjavíkur-norður. Hann segir
persónulega hagsmuni Alfreðs
Þorsteinssonar innan Orkuveitu
Reykjavíkur tekna fram yfir
hagsmuni borgarbúa og Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík.
Alfreð Þorsteinsson, oddviti
framsóknarmanna innan Reykja-
víkurlistans, segir eðlilegt að ein-
staklingar í flokkum geti haft sín-
ar skoðanir. Hann sé hins vegar
ósammála Gesti. „Ég efast um að
hann tali fyrir hönd almennra
framsóknarmanna í Reykjavík
því ég hef ekki orðið var við að
hann haldi fundi hjá Framsóknar-
félagi Reykjavíkur-norður. Ann-
ars skilst mér að Gestur sé ein-
hver angi af Hvítasunnusöfnuð-
inum og það eru hreinar línur að
söfnuðurinn stjórnar ekki Fram-
sóknarflokknum í Reykjavík.“
Gestur Gestsson segir um-
mæli Alfreðs sérlega ósmekk-
leg. Það lýsi vel fátækri málefna-
stöðu Alfreðs að aðalatriðið í
málflutningi hans sé í hvaða trú-
félagi menn séu. „Það er víst trú-
frelsi á Íslandi,“ segir Gestur.
Hann segir það ekki rétt hjá Al-
freð að fundir séu ekki haldnir
hjá félaginu því síðasti félags-
fundur hafi farið fram í október
en á hann hafi Alfreð hins vegar
ekki mætt.
„Borgarfulltrúar flokksins
njóta ekki trúverðugleika borgar-
búa og fylgi við þá talar sínu
máli,“ segir Gestur. „Það fer
alltaf neðar og neðar og það segir
mér að það sé ekki rétt fólk við
stjórnvölinn. Skoðanakannanir
sýna að flokkurinn er nánast ekki
til í huga borgarbúa.“ Framsókn-
arflokkurinn í borgarstjórn
mældist með tæplega fimm pró-
senta fylgi í nýlegri skoðana-
könnun sem gerð var fyrir sjálf-
stæðismenn.
ghg@frettabladid.is
BRUNAÐ NIÐUR BREKKUNA MEÐ BROS Á VÖR Margir nutu útiveru á höfuðborgarsvæðinu í gær og ýmist gengu eða renndu sér á
snjóþotum líkt og stöllurnar á myndinni sem tekin var á Miklatúni. Hæglætisveður var víðast hvar á landinu en kuldaboli beit í kinnar.
Gert er ráð fyrir snjókomu, vindi og kulda í dag og næstu daga en hlýnandi veðri á fimmtudag. Aftur kólnar á laugardag.
Hvítasunnusöfnuður
stýrir ekki Framsókn
Alfreð Þorsteinsson er harðorður í garð flokksbræðra. Formaður
Framsóknarfélags vill nýja forystu en Alfreð segir hreinar línur
að Hvítasunnusöfnuðurinn eigi ekki að stjórna flokknum.
● hefur frest til kvölds til að tilkynna sig
Týndur og
tröllum gefinn
Jaliesky Garcia:
▲
SÍÐA 26
Óveður á Norðurlöndum:
Tré féllu
á fólk
NORÐURLÖND Ellefu manns létust í
óveðrinu sem gekk yfir í Dan-
mörku og Svíþjóð um helgina.
Flestir létust þegar tré féllu á bíla
þeirra. Í Suður-Svíþjóð fór vindur
mest upp í 42 metra á sekúndu og
rifnuðu þar tré upp með rótum.
Rafmagn fór af 411 þúsund
heimilum í Svíþjóð og 60 þúsund
heimili voru án rafmagns í Dan-
mörku, þar mældist vindur allt
upp í 49 metra á sekúndu. í kjölfar
óveðursins urðu mikil flóð og í
bæjum á Vestur-Jótlandi mynd-
uðust víða þriggja metra djúp
vötn.
Óveðrið náði einnig til Bret-
landseyja og flæddu árnar yfir
bakka sína vegna mikillar úrkomu
en þar létust þrír og tveggja er
saknað. Einnig þurftu þúsundir
manna hjálp björgunarmanna við
að yfirgefa heimili sín og voru 76
þúsund heimili án rafmagns. - keþ
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Klórgasverksmiðja:
Vill banna
starfsemina
KLÓRGAS Ómar Stefánsson, fram-
sóknarmaður í bæjarráði Kópa-
vogs, er mótfallinn því að klór-
gasverksmiðja fái starfsleyfi í
Kópavogi. Hann vill að umhverf-
isráðherra beiti sér fyrir því að
banna klórgasverksmiðjur í
byggð.
Ómar undrast að Heilbrigðis-
eftirlit bæjarins nýti ekki heim-
ildir sínar til að beita sér gegn
framleiðslu Mjallar-Friggjar en
fyrirtækið starfar án leyfa.
Ingvar Árnason, prófessor í
raunvísindadeild við Háskóla Ís-
lands, segir að slyppi klórgasið
sem geymt sé á svæðinu út yrði
meiriháttar stórslys: „Klórgas
hefur varanleg áhrif á fólk. Í fyrri
heimsstyrjöldinni var klórgas
notað sem eiturgas í hernaði. Það
ertir slímhúð, bæði augu og önd-
unarfæri. Það endar með því að
menn kafna.“ - gag
Sjá síðu 2
GESTUR GESTSSON OG
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Harðar deilur eru komnar upp innan
Framsóknarflokksins í Reykjavík.