Fréttablaðið - 10.01.2005, Page 18
Orkuveituhúsið nýja er á leið með
að verða Perla Reykjavíkurlist-
ans: táknmynd um bruðl og vald-
þótta – og kostnaðarvitundarleysi
sem jaðrar við kostnaðaröngvit.
Eðlilegri og málefnalegri gagn-
rýni á kostnað er svarað með
skætingi á borð við það þegar Al-
freð Þorsteinsson kallaði Ólaf F.
Magnússon „litla íhaldið“ í Kast-
ljósinu og útúrsnúningi á borð við
samanburð á fermetraverði
„vandaðra“ grunnskóla í Reykja-
vík og þessa húss, og þar með lít-
ið gert úr helsta afreki R-listans,
uppbyggingu í skólamálum. Fátt
verður hins vegar um raunveru-
leg svör þegar leitað er skýringa á
umframkostnaðinum; muldrað
um að gleymst hafi að gera ráð
fyrir loftræstingu og að kostnað-
aráætlunin hafi miðast við miklu
minna hús – sem var víst VSO-
ráðgjöf að kenna. Húsið sjálft var
með öðrum orðum slíkt listaverk,
með tilheyrandi áherslu á samspil
flæðis og forms, birtubrigða og
framsetningu hallandi skálína –
eða eitthvað – að það gleymdist að
gera ráð fyrir loftræstingu.
Kannski vanti opnanlega glugga á
það líka sem til skamms tíma var
talið listrænt hástig í íslenskum
arkítektúr, eftir að flötu þökin
liðu undir lok.
Kostnað við byggingu Orku-
veituhússins á ekki að bera saman
við fermetraverð „vandaðs“
grunnskóla í Reykjavík. Í vand-
aðri stjórnsýslu á aðeins að bera
kostnað við byggingar saman við
eitt – skyldi maður ætla – og það
er sjálf kostnaðaráætlunin. Sá
plagsiður að nota kostnaðaráætl-
anir sem áróðursplögg til að slá
ryki í augu fólks áður en ákvarð-
anir eru teknar um framkvæmdir
er ekki Reykjavíkurlistanum
sæmandi.
„Ekkert að spara – ég borga“,
sagði Bjartur í Sumarhúsum
gjarnan af ómældu veglyndi í
þeim veislum sem hann hélt og
voru því miður oftast eftir að
hann hafði jarðað einhvern
heimilismann. Hann vildi ekki
láta neinn halda að hann byggi
ekki af sömu rausn og höfðingj-
arnir. Óneitanlega finnst manni
ýmislegt í stjórn Orkuveitunnar
hafa þennan undirtón: „ekkert að
spara, ég borga.“ Hamrað er á því
hversu ríkt og stöndugt fyrirtæk-
ið sé og látið að því liggja að lítið
muni nú um nokkrar rangar fjár-
festingu – nóg sé til frammi.
Þarna er einhver endurómur
stjórnarhátta Davíðs Oddssonar,
en það var einmitt á hans dögum
sem fyrirrennari Orkuveitunnar,
Hitaveitan, stóð með ærnum
kostnaði – og umframkostnaði –
að byggingu Perlunnar, dular-
fyllstu kirkjubyggingu 20. aldar-
innar.
Umsvifum Orkuveitunnar á
sviði fjarskipta verður á hinn bóg-
inn ekki líkt við neitt úr valdatíð
Sjálfstæðisflokksins. Vefstólar
Línu nets voru alltaf tómir og því
fyrr sem borgarfulltrúar Reykja-
víkurlistans horfast í augu við það
því betra. Lína net nærði hégóma-
girnd stjórnmálamanna um að
þeir hefðu vit á tölvum og fram-
tíðinni. Það var ekki í verkahring
borgarinnar að sjá heimilum fyrir
netttengingum eða sjónvarps-
tengingum – til þess voru nógir
aðrir – og að líkja ljósleiðaralagn-
ingunni við það stórkostlega
ævintýri þegar heitt vatn var lagt
í hús borgarbúa er móðgun við
söguna og baráttuna við fátækt og
vond hús. Flest heimili höfðu
fyrir nettengingu og allt það sjón-
varp sem hægt er með góðu móti
að komast yfir að horfa á – og
raunar miklu meira til.
Framsóknarflokkurinn hefur
ekkert fylgi í Reykjavík. Áhrif
flokksins á stjórn borgarinnar eru
fráleit, einkum í ljósi þess að hann
hefur augljóslega neitunarvald í
flugvallarmálinu og öðrum fram-
faramálum. Reykjavíkurlistinn
sem slíkur virðist meira og minna
liðinn undir lok og er nú ekki ann-
að en nafn á kosningabandalagi.
Við sitjum uppi með valdamenn
sem standa að hækkunum á þjón-
ustu Orkuveitunnar um leið og
þeir segja okkur að hún eigi
skítnógan pening og skimi eftir
nýjum tækifærum á sviði fjar-
skipta. Framsókn er eins og risa-
rækja í stjórnkerfi borgarinnar,
smælki sem breiðir sig út yfir
allt, vex og vex...
Nú er lag
Frálslyndi flokkurinn er geðs-
legur flokkur, talsmenn hans í
borgarstjórn, þau Ólafur F. Magn-
ússon og Margrét Sverrisdóttir,
hafa verið málefnaleg og laus við
þann greifabrag sem er yfir
Framsókn um þessar mundir.
Tímabært er að Samfylkingin og
Vinstri grænir – og Dagur – kippi
þeim Frjálslyndu inn í borgar-
stjórn og leyfi Framsókn að deyja
inn í Sjálfstæðisflokkinn eins og
hann er að gera á landsvísu.
A lmenna svarið við spurningunni um hvar menn eigi aðbúa er þar sem þeir vilja búa. Til þess að bregða út afþessari meginreglu þarf mjög sérstök rök. Íslending-
ar bjuggu um skeið við vistarband. Sú regla var sett til þess
að forða þeirri lausung sem fylgdi breyttum atvinnuháttum
og umhverfi. Stórbændur kepptu um vinnuafl við vaxandi út-
gerð og lagðar voru hömlur á frelsi fólks til þess að flytja í
sjávarbyggðirnar. Eins og ávallt þegar afturhaldsöfl streit-
ast við að halda aftur af hjóli tímans, þá tafði vistarbandið
einungis óhjákvæmilega þróun og olli meira tjóni en gagni.
Í þeim breytingum sem orðið hafa á íslensku samfélagi
síðustu ár spretta reglulega fram þeir sem sjá gamla tímann
í hillingum og finna allt til foráttu þeirri lausung sem fylgir
auknu frelsi. Hugsunarháttur vistarbandsins hverfur ekki,
þótt enginn vilji snúa aftur til þeirra tíma.
Nýlegt dæmi um þankaganginn að baki vistarbandinu
skaut upp kollinum í umræðum um búsetu forstjóra Fjarðar-
áls sem hefur tekið þá ákvörðun að búa í næsta sveitarfélagi
við álverið, á Egilsstöðum. Viðbrögð einstakra sveitar-
stjórnarmanna í Fjarðabyggð og nafnlausir póstar til for-
stjórans vekja undrun. Gamaldags hrepparígur og forneskju-
leg viðhorf til samfélags birtast í þeim makalausu viðbrögð-
um sem komið hafa fram í kjölfar ákvörðunar forstjórans.
Austfirðingar voru áfram um uppbyggingu stóriðju á
svæðinu. Ýmsir höfðu samúð með sjónarmiðum þeirra, þrátt
fyrir efasemdir um að virkjun Kárahnjúka væri skynsamleg
framkvæmd og hvort verjandi væri að hið opinbera beitti sér
fyrir slíku inngripi í efnahagskerfið til atvinnuuppbyggingar
á afmörkuðu svæði. Byggðarökin sem sett voru fram voru um
Austurland í heild sinni, ekki sveitarfélagið Fjarðabyggð.
Frekja og ósvífni í viðhorfum sumra íbúa Fjarðabyggðar
verða því afkáralegri þegar horft er til þessa.
Tekjur af virkjun og álveri koma misjafnlega niður eftir
sveitarfélögum á Austurlandi. Fjarðabyggð nýtur álversins
og Fljótsdalshreppur með sína 261 íbúa fær stöðvarhús virkj-
unarinnar. Fljótsdalshérað fær ekki beinar tekjur af virkjun
og álveri, en þarf hins vegar að kosta nokkru til við uppbygg-
ingu þjónustu vegna þess aukna umfangs sem framkvæmd-
inni fylgja. Enginn ætti að sjá ofsjónum yfir einu forstjóra-
útsvari til sveitarfélagsins.
Stórar fjárfestingar á afmörkuðu svæði sýna vel bresti í
núverandi fyrirkomulagi sveitarfélaga. Áður en ákvörðunin
var tekin um framkvæmdirnar fyrir austan hefði átt að vera
búið að tryggja að sveitarfélög sameinuðust á svæðinu. Það
er ólíðandi að fámennir hreppar geti haldið sig sér af þeirri
einföldu ástæðu að einni stórri fjárfestingu er plantað í
hreppinn. Þar við bætist að starfsemin er ekki til eilífðar
eins og Mývetningar hafa fengið að kynnast. „Komi þeir sem
koma vilja, fari þeir sem fara vilja mér og mínum að meina-
lausu“, er þulan sem sveitarstjórnarmenn Fjarðabyggðar
ættu að hafa yfir ef þeir vilja ekki verða steinrunnin
nátttröll. ■
10. janúar 2004 MÁNUDAGUR
SJÓNARMIÐ
HAFLIÐI HELGASON
Hrepparígur og músarholusjónarmið birtast í við-
brögðum við búsetu forstjóra Fjarðaráls.
Fornaldarhugsun
í Fjarðabyggð
FRÁ DEGI TIL DAGS
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
Risarækjan
Á Grund?
Fréttamyndir af fundi Davíðs Oddssonar
utanríkisráðherra með sjálfstæðismönn-
um í Valhöll á laugardaginn benda til
þess að flokkurinn sé að eldast. Þarna var
varla nokkurt ungt fólk að sjá – en unga
fólkið var áður fyrr burðarásinn í flokks-
starfinu. Gárungar segja að myndirnar
hefðu allt eins getað ver-
ið teknar á Elliheimilinu
Grund.
Í mánaðarfrí
Davíð Oddsson utan-
ríkisráðherra var
óvenju önugur í við-
tölum við sjón-
varpsstöðvarnar
eftir fundinn í Valhöll. Það er Íraksmálið
sem veldur þessu, ekki síst sú niðurstaða
Gallup könnunar að yfir 80% lands-
manna eru andvíg stefnu ríkisstjórnarinn-
ar og stuðningi við innrás Bandaríkja-
manna. Það er auðvitað ekki uppörvandi
fyrir stjórnmálamann að fá slíkt vantraust
á sig. Annars hefði kannski mátt ætla að
ráðherrann væri í léttu skapi því hermt er
að hann sé nú kominn í mánaðarfrí frá
ráðherrastörfum. Enginn mun verða sett-
ur í embættið á meðan og fer því Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra líklega að
mestu með málefni ráðuneytisins þenn-
an tíma. Umhugsunarvert er hvort þetta
sé heppilegur tími fyrir ráðuneytið til að
vera ráðherralaust í ljósi þess að viðræð-
urnar við Bandaríkjastjórn um framtíð
varnarliðsins eiga að hefjast innan tíðar.
Rove að kenna
Pétur Gunnarsson, starfsmaður Fram-
sóknarflokksins, lét athyglisverð orð
falla um Íraksmálið í Silfri Egils í gær.
Hann talaði um að stuðningur ís-
lenskra stjórnvalda við Íraksstríðið
hefði falist í að heimila bandarískum
herflugvélum að fljúga um íslenska
lofthelgi og lenda í Keflavík. Hinn frægi
listi yfir „staðfastar þjóðir“ væri verk
Karls Rove, helsta ráðgjafa og hug-
myndafræðings Bush Bandaríkjafor-
seta. Ekki var hægt að skilja Pétur
öðruvísi en svo að Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson hefðu aldrei verið
beðnir um leyfi til að setja Ísland á list-
ann sem slíkan. Þetta hefur ekki komið
fram áður og nauðsynlegt er að á
þessu atriði fáist nánari skýringar.
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT:
Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS
Í DAG
FRAMSÓKN OG
REYKJAVÍKURLISTINN
GUÐMUNDUR
ANDRI
THORSSON
Við sitjum uppi með
valdamenn sem
standa að hækkunum á
þjónustu Orkuveitunnar um
leið og þeir segja okkur að
hún eigi skítnógan pening
og skimi eftir nýjum tæki-
færum á sviði fjarskipta.
Framsókn er eins og risa-
rækja í stjórnkerfi borgar-
innar, smælki sem breiðir
sig út yfir allt, vex og
vex......
,,