Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 19
SMÁAUGLÝSINGAR
byrja í dag á bls. 24
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 68 stk.
Keypt & selt 12 stk.
Þjónusta 49 stk.
Heilsa 11 stk.
Skólar & námskeið 4 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 10 stk.
Atvinna 15 stk.
Tilkynningar 7 stk.
Banki allra landsmanna410 4000 | landsbanki.is
4,15%Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
26
12
/2
00
4
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 10. janúar,
10. dagur ársins 2005.
Reykjavík 11,05 13.35 16.06
Akureyri 11.13 13.20 15.28
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
fasteignir@frettabladid.is
Hafinn er undirbúningur að
byggingu snjóhúss í miðbæ
Ísafjarðar sem hýst gæti ýmsar
uppákomur þegar líður tekur á
veturinn og einnig nýst vel í
Skíðaviku Ísfirðinga um pásk-
ana. Þessi hugmynd er ekki ný
af nálinni en hefur verið ófram-
kvæmanleg vegna snjóleysis á
undanförnum árum. Nú hefur
hins vegar snjóað nokkuð und-
anfarið og því hófst undirbún-
ingur húsbyggingarinnar. Mynd-
aður hefur verið óformlegur
hópur verktaka, fyrirtækja í veit-
ingarekstri, einstaklinga og fé-
lagasamtaka sem leggja vilja
málinu lið. Þetta kemur fram á
vef Ísafjarðarbæjar.
Íbúðalánasjóður lækkar
mögulega vexti á íbúðalánum
enn frekar þar sem langtíma-
vextir fara lækkandi á markaði,
eins og fram kemur á vefsíðu
Viðskiptablaðsins. Jafnframt
kemur fram að ávöxtunarkrafa
íbúðarbréfa hafi lækkað um allt
að 14 punkta frá áramótum og
bendi fátt til annars en að kraf-
an muni lækka frekar á næstu
vikum og mánuðum, og eru
þær upplýsingar fengnar úr
Morgunkorni greiningardeildar
Íslandsbanka. Enn fremur telur
greiningardeild Íslandsbanka
að ef spá þeirra um þróuná-
vöxtunarkröfu íbúðabréfa á
þessu ári gengur eftir og vaxta-
álag sjóðsins verður óbreytt
gætu vextir á íbúðalánum til al-
mennings farið undir 4,0% fyrir
mitt þetta ár.
Aukning á fjölda kaupsamn-
inga frá árinu 2003 nemur
18.7% og aukning veltu um
40.9% eins og kemur fram á
heimasíðu Fasteignamats ríkis-
ins. Heildarupphæð veltu nam
177,0 milljörðum króna og
meðalupphæð á hvern kaup-
samning var 17,6 milljónir
króna. Viðskipti með eignir í
fjölbýli námu 115,8 milljörðum,
viðskipti með eignir í sérbýli
námu 37,0 milljörðum og við-
skipti með aðrar eignir voru
24,2 milljarðar. Þá var þinglýst
8.465 kaupsamningum og nam
upphæð veltu 125,6 milljörð-
um króna. Meðalupphæð á
hvern kaupsamning var 14,8
milljónir króna.
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 14-15
Akkurat 11
Ás 4-5
Draumahús 8-9
Eignakaup 13
Eignam. Suðurnesja 17
Fasteignamarkaðurinn 19
Fasteignam.Grafarvogs 22
Fasteignam. Hafnarfjarðar 16
Fasteignamiðlunin 22
Hóll 12
Hraunhamar 18
Húseign 21
Lyngvík Kópavogi 23
Nethús 10
Þingholt 12
Fasteignasalan Húsalind er nú með til
sölu glæsilegt raðhús á einum besta stað
í Bryggjuhverfinu í Reykjavík.
Innangengt er í húsið frá bryggjusvæðinu í
norðri og bílastæði í suðri. Á fyrstu hæð er kom-
ið inn í flísalagða forstofu en fallegar ljósar flís-
ar frá Byko eru á allri fyrstu hæð hússins.
Einnig er hiti í gólfum. Úr forstofunni er stigi
sem liggur upp á aðra hæð en til hægri frá for-
stofu er sjónvarpshol þar sem búið er að draga í
allar rafmagnslagnir þannig að um geti verið að
ræða innbyggt heimabíókerfi. Undir stiga er
tölvu- og vinnuaðstaða, stórt og rúmgott þvotta-
hús er á hæðinni og einnig salernisherbergi með
upphengdu klósetti. Gengið er niður tvær tröpp-
ur og þá er komið inn í bílskúrinn sem er mjög
rúmgóður, 28,8 fermetrar, og hátt til lofts. Stig-
inn upp á aðra hæð er flísalagður og hefur mjög
létt yfirbragð. Allir stigar hússins er stálstigar
sem eru með steyptum tröppum og annaðhvort
flísalagðir eða parketlagðir.
Á annarri hæð er komið inn í eldhús og borð-
stofurými sem snýr í suður og þar eru stórir
gluggar með tveimur opnanlegum hurðum út á
tuttugu fermetra verönd sem snýr í hásuður.
Veröndin er yfir bílskúrnum en á henni er
hnotubrúnn antiksteinn frá BM Vallá. Mögu-
leiki, án mikils tilkostnaðar, væri á því að hafa
heitan pott á veröndinni. Gólfefni á annarri hæð
er gegnheilt jaktoba-parket frá Agli Árnasyni
sem lagt er skáhalt. Falleg Alno innrétting í eld-
húsi, hvít háglans hurðir með höldum úr burst-
uðu stáli. Í innréttingunni er innbyggður ís-
skápur með frysti, búrskáp og tækjum frá
Bosch. Eyjan er með helluborði og fallegum
stálháf frá Bosch. Ljósar mósaík flísar eru á
milli borðplötu og skápa. Borðplatan er úr
gegnheilli hnotu. Úr eldhúsi og borðstofurými
er gengið í aðalstofuna sem er með stórum fal-
legum gluggum með útsýni til Esjunnar og yfir
höfnina.
Úr stofu er gengið upp á þriðju hæð og sá
stigi er parketlagður en þar eru svefnherberg-
in; tvö minni barnaherbergi með stórum glugg-
um í suður, hallandi loft og hjónaherbergi sem
er mjög rúmgott með óviðjafnanlegu útsýni.
Veggur er fallegur og bogadreginn og hlaðinn
úr glersteini sem leyfir birtunni úr svefnher-
berginu að flæða fram á stigann. Á hæðinni er
líka baðherbergi með upphengdu klósetti og
baðkari. Hvítur panell í loftum á þriðju hæð.
Á fjórðu hæð er 24 fermetra rými með sex
þakgluggum. Rýmið væri jafnt hægt að nota
sem herbergi, vinnustofu, koníaksstofu, bóka-
herbergi eða annað sem hugmyndaflug eiganda
leyfir.
Í öllum herbergjum hússins eru tölvu- og
símalagnir og dyrasími í eldhúsi og í svefnher-
bergi. Þetta er fallegt, vandað og stórglæsilegt
hús sem nýtist mjög vel. Möguleiki væri á því
að gera séríbúð á fyrstu hæðinni sem væri þá
75 fermetra íbúð og hægt væri að hafa af henni
góðar leigutekjur.
Ásett verð er 41,5 milljónir.
Útsýni til Esjunnar og yfir höfnina
Húsið er fallegt og vandað og á einum besta stað í Bryggjuhverfinu.
LIGGUR Í LOFTINU
í fasteignum
MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINSER ÞÍN FASTEIGN AUGLÝST HÉR?
Stafkirkjan við Strandgötu BLS. 2
Þegar menn byggðu eins og karlmenni BLS. 3
Tískan í garðinum 2005 BLS. 3
Öll nöfn við póstlúguna BLS. 3
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is