Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.01.2005, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 10.01.2005, Qupperneq 19
SMÁAUGLÝSINGAR byrja í dag á bls. 24 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 68 stk. Keypt & selt 12 stk. Þjónusta 49 stk. Heilsa 11 stk. Skólar & námskeið 4 stk. Heimilið 12 stk. Tómstundir & ferðir 7 stk. Húsnæði 10 stk. Atvinna 15 stk. Tilkynningar 7 stk. Banki allra landsmanna410 4000 | landsbanki.is 4,15%Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 67 26 12 /2 00 4 Góðan dag! Í dag er mánudagur 10. janúar, 10. dagur ársins 2005. Reykjavík 11,05 13.35 16.06 Akureyri 11.13 13.20 15.28 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag fasteignir@frettabladid.is Hafinn er undirbúningur að byggingu snjóhúss í miðbæ Ísafjarðar sem hýst gæti ýmsar uppákomur þegar líður tekur á veturinn og einnig nýst vel í Skíðaviku Ísfirðinga um pásk- ana. Þessi hugmynd er ekki ný af nálinni en hefur verið ófram- kvæmanleg vegna snjóleysis á undanförnum árum. Nú hefur hins vegar snjóað nokkuð und- anfarið og því hófst undirbún- ingur húsbyggingarinnar. Mynd- aður hefur verið óformlegur hópur verktaka, fyrirtækja í veit- ingarekstri, einstaklinga og fé- lagasamtaka sem leggja vilja málinu lið. Þetta kemur fram á vef Ísafjarðarbæjar. Íbúðalánasjóður lækkar mögulega vexti á íbúðalánum enn frekar þar sem langtíma- vextir fara lækkandi á markaði, eins og fram kemur á vefsíðu Viðskiptablaðsins. Jafnframt kemur fram að ávöxtunarkrafa íbúðarbréfa hafi lækkað um allt að 14 punkta frá áramótum og bendi fátt til annars en að kraf- an muni lækka frekar á næstu vikum og mánuðum, og eru þær upplýsingar fengnar úr Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka. Enn fremur telur greiningardeild Íslandsbanka að ef spá þeirra um þróuná- vöxtunarkröfu íbúðabréfa á þessu ári gengur eftir og vaxta- álag sjóðsins verður óbreytt gætu vextir á íbúðalánum til al- mennings farið undir 4,0% fyrir mitt þetta ár. Aukning á fjölda kaupsamn- inga frá árinu 2003 nemur 18.7% og aukning veltu um 40.9% eins og kemur fram á heimasíðu Fasteignamats ríkis- ins. Heildarupphæð veltu nam 177,0 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaup- samning var 17,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 115,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli námu 37,0 milljörðum og við- skipti með aðrar eignir voru 24,2 milljarðar. Þá var þinglýst 8.465 kaupsamningum og nam upphæð veltu 125,6 milljörð- um króna. Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 14,8 milljónir króna. FASTEIGNASÖLUR 101 Reykjavík 14-15 Akkurat 11 Ás 4-5 Draumahús 8-9 Eignakaup 13 Eignam. Suðurnesja 17 Fasteignamarkaðurinn 19 Fasteignam.Grafarvogs 22 Fasteignam. Hafnarfjarðar 16 Fasteignamiðlunin 22 Hóll 12 Hraunhamar 18 Húseign 21 Lyngvík Kópavogi 23 Nethús 10 Þingholt 12 Fasteignasalan Húsalind er nú með til sölu glæsilegt raðhús á einum besta stað í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Innangengt er í húsið frá bryggjusvæðinu í norðri og bílastæði í suðri. Á fyrstu hæð er kom- ið inn í flísalagða forstofu en fallegar ljósar flís- ar frá Byko eru á allri fyrstu hæð hússins. Einnig er hiti í gólfum. Úr forstofunni er stigi sem liggur upp á aðra hæð en til hægri frá for- stofu er sjónvarpshol þar sem búið er að draga í allar rafmagnslagnir þannig að um geti verið að ræða innbyggt heimabíókerfi. Undir stiga er tölvu- og vinnuaðstaða, stórt og rúmgott þvotta- hús er á hæðinni og einnig salernisherbergi með upphengdu klósetti. Gengið er niður tvær tröpp- ur og þá er komið inn í bílskúrinn sem er mjög rúmgóður, 28,8 fermetrar, og hátt til lofts. Stig- inn upp á aðra hæð er flísalagður og hefur mjög létt yfirbragð. Allir stigar hússins er stálstigar sem eru með steyptum tröppum og annaðhvort flísalagðir eða parketlagðir. Á annarri hæð er komið inn í eldhús og borð- stofurými sem snýr í suður og þar eru stórir gluggar með tveimur opnanlegum hurðum út á tuttugu fermetra verönd sem snýr í hásuður. Veröndin er yfir bílskúrnum en á henni er hnotubrúnn antiksteinn frá BM Vallá. Mögu- leiki, án mikils tilkostnaðar, væri á því að hafa heitan pott á veröndinni. Gólfefni á annarri hæð er gegnheilt jaktoba-parket frá Agli Árnasyni sem lagt er skáhalt. Falleg Alno innrétting í eld- húsi, hvít háglans hurðir með höldum úr burst- uðu stáli. Í innréttingunni er innbyggður ís- skápur með frysti, búrskáp og tækjum frá Bosch. Eyjan er með helluborði og fallegum stálháf frá Bosch. Ljósar mósaík flísar eru á milli borðplötu og skápa. Borðplatan er úr gegnheilli hnotu. Úr eldhúsi og borðstofurými er gengið í aðalstofuna sem er með stórum fal- legum gluggum með útsýni til Esjunnar og yfir höfnina. Úr stofu er gengið upp á þriðju hæð og sá stigi er parketlagður en þar eru svefnherberg- in; tvö minni barnaherbergi með stórum glugg- um í suður, hallandi loft og hjónaherbergi sem er mjög rúmgott með óviðjafnanlegu útsýni. Veggur er fallegur og bogadreginn og hlaðinn úr glersteini sem leyfir birtunni úr svefnher- berginu að flæða fram á stigann. Á hæðinni er líka baðherbergi með upphengdu klósetti og baðkari. Hvítur panell í loftum á þriðju hæð. Á fjórðu hæð er 24 fermetra rými með sex þakgluggum. Rýmið væri jafnt hægt að nota sem herbergi, vinnustofu, koníaksstofu, bóka- herbergi eða annað sem hugmyndaflug eiganda leyfir. Í öllum herbergjum hússins eru tölvu- og símalagnir og dyrasími í eldhúsi og í svefnher- bergi. Þetta er fallegt, vandað og stórglæsilegt hús sem nýtist mjög vel. Möguleiki væri á því að gera séríbúð á fyrstu hæðinni sem væri þá 75 fermetra íbúð og hægt væri að hafa af henni góðar leigutekjur. Ásett verð er 41,5 milljónir. Útsýni til Esjunnar og yfir höfnina Húsið er fallegt og vandað og á einum besta stað í Bryggjuhverfinu. LIGGUR Í LOFTINU í fasteignum MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINSER ÞÍN FASTEIGN AUGLÝST HÉR? Stafkirkjan við Strandgötu BLS. 2 Þegar menn byggðu eins og karlmenni BLS. 3 Tískan í garðinum 2005 BLS. 3 Öll nöfn við póstlúguna BLS. 3 Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.