Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 56
MÁNUDAGUR 10. janúar 2004 27
ÚTSALAÚTSALAÚTSALA
FÓTBOLTI Mario Sergio, yfirmaður
knattspyrnumála hjá einu stærsta
félagsliði Brasilíu, Gremio, kvart-
ar sáran yfir því hversu þarlendir
knattspyrnumenn séu orðnir
frekir til fjárins og segir næsta
ómögulegt að verða sér úti um
nýja leikmenn án þess að greiða
fádæma fúlgur fyrir.
Þetta kom fram í viðtalsþætti í
Brasilíu og kom mörgum á óvart
enda Gremio eitt fárra félaga sem
eiga digra sjóði og hefur félagið
sjálft grætt vel á leikmönnum
sem halda þaðan til Evrópu. Segir
Sergio að ekki einungis sé verð á
leikmönnum gríðarlegt heldur
eru launakröfur jafnvel meðal-
manna í brasilíska boltanum
komnar út í öfgar. Hann nefnir
sem dæmi að nýlega hafi leikmað-
ur úr annarri deild sem Gremio
hafði áhuga á sett fram kröfur um
tvær milljónir króna í vikulaun og
hafi viðræðum lokið snögglega
eftir það. ■
BRASILÍSKIR ÁHORFENDUR Þarlendir
knattspyrnumenn hafa fært sig verulega
upp á skaftið hvað varðar launakröfur þrátt
fyrir að knattspyrnan sé eina leið margra
unglinga úr gettóum og sárri fátækt víða í
landinu.
SÁTTIR MEÐ SITT Leikmenn Yeading gengu sáttir af velli í leikslok þrátt fyrir tap gegn
Newcastle í enska bikarnum í gær.
Tveir leikir fóru fram í ensku bikarkeppninni í gær:
Naumt hjá Arsenal
og Newcastle
FÓTBOLTI Arsenal og Newcastle
tryggðu sér í gær sæti í fjórðu
umferð ensku bikarkeppninnar í
fótbolta. Ekki var búist við því
fyrirfram að liðin tvö myndu
lenda í verulegum vandræðum
með andstæðinga sína en annað
kom á daginn. Bæði lið lentu í
basli en höfðu að lokum sigur.
Newcastle sótti utandeildarlið-
ið Yeading heim á Loftus Road,
heimavöll Queens Park Rangers
og lenti í vandræðum. Fyrir leik-
inn hafði stærsta dagblað Bret-
lands, The Sun, lofað markverði
Yeading, Del Preddie, nýjum Ford
Focus ef honum tækist að halda
markinu hreinu í leiknum.
Preddie stóð vaktina vel í marka-
lausum fyrri hálfleik og segja má
að Yeading hafi fengið besta færi
hálfleiksins þegar Stephen
Harper, markvörður Newcastle,
varði glæsilega aukaspyrnu frá
David Clarke.
Newcastle náði hins vegar að
brjóta ísinn þegar sex mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik en þá
skoraði Lee Bowyer eftir fallegan
undirbúning frá Craig Bellamy.
Shola Ameobi bætti síðan öðru
marki við fyrir Newcastle tíu
mínútum síðar en leikmenn Yead-
ing gáfu ekki tommu eftir og
komu í veg fyrir að leikmenn
Newcastle skoruðu fleiri mörk.
Johnson Hippolyte, knatt-
spyrnustjóri Yeading, var í skýj-
unum eftir leikinn og lýsti sínum
mönnum sem hetjum.
„Ég er mjög stoltur af strákun-
um sem eru allir hetjur. Margir af
þessum leikmönnum hafa orðið
fyrir vonbrigðum á ferlinum en
ég vissi að þeir hefðu þann
karakter sem þeir sýndu í dag.
Við vissum að við vorum áhuga-
menn að spila við atvinnumenn en
strákarnir stóðu sig frábærlega,“
sagði Hippolyte.
Arsenal lenti einnig í vandræð-
um gegn 1. deildarliði Stoke á
Highbury. Varnarmaðurinn
Wayne Thomas kom Stoke yfir
eftir hálftíma leik en Arsenal
hristi af sér slyðruorðið í síðari
hálfleik og mörk frá Jose Antonio
Reyes og Robin van Persie
tryggðu þeim sigurinn.
Leikmenn Arsenal voru þó stál-
heppnir því Gael Clichy, varnar-
maður Arsenal, bjargaði á
marklínu og Ade Akinbiyi, sókn-
armaður Stoke, átti þrumufleyg í
þverslá.
oskar@frettabladid.is
Knattspyrnumenn frekir til fjárins víða um heim:
Heimtufrekja í Brasilíu