Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 20. janúar 2005
The Futureheads: The Fut-
ureheads
„Frumraun The Futureheads er góð. Hljómur sveit-
arinnar er ekki mjög ferskur, en sveitin bætir upp
fyrir það með beittum önglum og góðum flutn-
ingi.“
BÖS
Converge: You Fail Me
„Vilji menn kraft, útsjónarsaman hljóðfæraleik, við-
brigði, kafla beint-í-andlitið, melódíur, niðurbrot og
uppþot, þá er Converge skyldueign. Algjört meist-
araverk frá Íslandsvinunum.“
SJ
Hoffman: Bad Seed
„Big Brother er að mínu mati langbesta lag plöt-
unnar og gefur góða von um að Hoffman sé fær
um að geta af sér breiðskífu af bestu gerð.“
SJ
Cex: Maryland Mansions
„Þetta er áttunda breiðskífa raftónlistarmannsins
Cex á fimm árum en hann er rétt rúmlega tvítugur.
Hann er frumlegur, hugmyndaríkur og beittur
textahöfundur.“
BÖS
Pinback: Summer in Abbadon
„Sætt nýbylgjupopp sem ætti ekki að geta gengið
fram af neinum. Pinback tekst hið ótrúlega, að
brúa bilið á milli Slint og Jimmy Eat World.“
BÖS
Þórir: I Believe in This
„Þórir fer gjörsamlega á kostum í upphafslaginu,
So is this... og Canada oh Canada, sem eru bestu
lög plötunnar. Honum tekst frábærlega til með
frumraun sinni og verður spennandi að fylgjast
með drengnum á komandi tíð.“
KH
Antlew/Maximum: Ant-
lew/Maximum
‚Þó svo að tónlistin sé ekki það frumlegasta sem
er í boði í dag þá eru kapparnir fagmennskan upp-
máluð og hæfileikarnir fara ekki á milli mála.
Færni Anthony á rappsviðinu kemst vel til skila og
snertir hann á mörgum viðkvæmum viðfangsefn-
um í textasmíðinni.“
SJ
Búdrýgindi: Juxtapose
„Skemmtileg plata eins og forveri hennar. Sveitin
er orðin þéttari en áður og óhrædd við að þróa sig
áfram.“
FB
The Polyphonic Spree: To-
gether We are Heavy
„Önnur plata The Polyphonic Spree kemur manni í
gott skap. Svolítið einsleit á köflum, en rennur þó
ágætlega í gegn.“
BÖS
Dizzee Rascal: Showtime
„Dizzee Rascal er breskari en te, djúpsteiktur fiskur
og franskar kartöflur í pappír. Hann er líka alinn
upp í gettóinu í London. Flugbeittur og gallharður.
Frábært afrek, ein af áhugaverðari plötum frá Bret-
landi í ár.“
BÖS
Nancy Sinatra: Nancy Sinatra
„Nancy Sinatra heldur kúlinu og gerir plötu með
Bono, The Edge, Jarvis Cocker, Morrissey, Calexico
og Thurston Moore. Frábær plata, þó að Geir Ólafs
eigi ekki eftir að samþykkja þetta.“
BÖS
Tenderfoot: Without Gravity
„Ótrúlega þægileg og góð plata frá Tenderfoot.
Þessir drengir gætu svo sannarlega orðið næsta
„hittið“.“
FB
Hot Chip: Coming On Strong
„Ein áhugaverðasta raftónlistarplata ársins, aðal-
lega vegna stórkostlegra lagasmíða og sálarfullra
söngvara.Tónlistarárið þitt verður ekki fullkomnað
fyrr en þú hefur tékkað á þessari plötu Hot Chip.“
BÖS
Destiny’s Child: Destiny Full-
filled
„Fjórða eiginlega plata Destinyís Child er allt og
ekkert. Mettir aðdáendur, en bætir líklegast ekki
nýjum í hópinn. Tími fyrir Beyoncé að einbeita sér
alfarið að sólóferlinum?“
BÖS
Birgir Örn Steinarsson
Freyr Bjarnason
Kristján Hjálmarsson
Smári Jósepsson
In GoodCompany
od
any
In Good
Company
*Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum • Vinningar verða afhendir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Klikkaður útsölu-leikur!
Allir
sem taka þá
tt
fá glaðning!
Aðal-
vinnin
gur er
MEDI
ON XX
L
tölva
með 1
7”
flatsk
já!
Devendra Banhart: Nino Rojo
„Sálarfull og róandi plata sem virkar vel sem undir-
spil fyrir frosna janúardaga. Birtan yfir þessari plötu
er svipuð og fyrstu sólargeislarnir sem teygja sig til
okkar yfir fjallstindana á morgnana.“
BÖS
PLATA VIKUNNAR[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Hljómsveitin Audioslave og
djasstónlistarmaðurinn Jamie
Cullum eru á meðal þeirra sem
hefur verið bætt við tónlistar-
dagskrá Hróarskelduhátíðarinn-
ar í Danmörku í sumar.
Þetta verður i fyrsta sinn
sem Audioslave spilar á Hró-
arskeldu. Þeir Íslendingar sem
misstu af rokksveitinni Rage
Against the Machine í
Kaplakrika ættu því að hugsa
sér gott til glóðarinnar því þrír
meðlimir þeirrar sveitar eru nú
í Audioslave.
Auk Audioslave hafa hin
danska Karen og Tom Vek frá
Bretlandi bæst í hópinn. Þá er
ljóst að dönsku rokkararnir í D-
A-D muni leika líkt og undanfar-
in ár. Það ætti að skýrast betur á
næstum vikum hvaða tónlistar-
menn og hljómsveitir troða upp
á hátíðinni. ■
Audioslave á Hróarskeldu
AUDIOSLAVE Hljómsveitin Audioslave hefur notið mikilla vinsælda undanfarið.