Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 34
Það mun svo sannarlega svífa franskur
andi yfir vötnum á vetingastaðnum Vox
á morgun, föstudag þegar staðurinn
býður upp á franska matar- og vín-
skemmtun. Er
það gert í tilefni
af því, að dagana
24. og 25. janúar
mun fara fram í
Lyon ein virtasta
matreiðslukeppni
heims Bocuse
d’Or. Af því til-
efni mun Hákon
Már Örvars-
son, yfirkokkur á
Vox og brons-
verðlaunahafi úr
Bocuse d’Or
keppninni 2001,
elda úr því hrá-
efni sem keppt
verður með í
Lyon.
„Þetta er
frönsk matar- og
v í n s k e m m t u n
og er í raun
skemmtilegt stílbrot við það sem er í
boði á veitingastaðnum alla daga því það
verður allt franskt,“ segir Hákon Már.
Hákon er meðlimur í akademíu
Paul Bocuse og segir að með þessari
skemmtun vilji þeir vekja athygli á
þessari keppni sem og Coupe de
monde Patissier, eða eftirréttaheims-
meistaramótinu, sem fer einnig fram í
þessum mánuði.
Það er þó ekki nóg með að allt hrá-
efnið verði eldað á franska vísu heldur
segir Hákon að hráefnið verði framreitt í
samræmi við það sem farið er fram á í
keppninni. „Sú uppsetning er unnin
eftir sérstakri for-
múlu,“ segir
bronsverðlauna-
hafinn 2001 en
þess má til gamans
geta að Ragnar
Ómarsson, sem
valinn var mat-
reiðslumaður árs-
ins 2002, mun
keppa fyrir Íslands
hönd og er hann
farinn til Frakk-
lands til þess að
undirbúa sig.
Það verður
ekkert til sparað
á Vox og verða
aðalréttirnir tveir.
Annars vegar er í
boði skötuselur
og hins vegar
kálfur. Svo verða
ýmsar útfærslur af
franskri andalifur í forrétt.
Þessari frönsku matar- og vín-
skemmtun lýkur svo á Valhrone-súkku-
laði í desert. „Með þessu öllu verða að
sjálfsögðu sérvalin frönsk vín,“ segir
Hákon.
Auk matarins mun hljómsveitin
Desmín spila undir borðhaldi og segir
Hákon að léttleikinn verði alls-
ráðandi, enda sé þetta fyrst og fremst
til gamans gert.
F2 8 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Ágúst Einarsson prófessor bjó
á sama stað í Reykjavík þangað
til hann kláraði stúdentsprófið.
Þá fór hann til náms í Þýska-
landi þar sem hann bjó í sjö ár.
Hann segir að þeim hjónum líði
jafnvel núna, í stóra húsinu á
Seltjarnarnesi, og þegar þau
bjuggu í kjallaraíbúðinni í
Blankenese.
Bárugata 2, 1952-1970
Ég er fæddur á Bárugötu 2 og ólst þar
upp. Tvær elstu systur mínar fæddust í
Vestmannaeyjum en foreldrar okkar
voru nýfluttir frá Eyjum þegar við
bræðurnir komum nr. þrjú og fjögur.
Síðan bættust við sex systur auk eins
lítils bróður sem dó í frumbernsku. Við
vorum því tíu systkinin samtíma í hús-
inu og öll á sitt hverju árinu og það var
alltaf fjör. Þetta var þá Vesturbærinn
eins og hann er bestur. Við lékum
okkur út um allt, í öllum görðum og
fórum út í KR í íþróttir, til Bryndísar
Zoega á Drafnarborg og Miðbæjar-
skólann. Þá var allt örstutt, miðbærinn
við hliðina og allt iðaði af lífi.
Landstrasse í Bremerhaven, 1970
Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík utan skóla 18 ára og
fór þá til náms í Þýskalandi. Ég bjó
fyrst í Landstrasse í Bremerhaven en
þar vann ég við höfnina um sumarið til
að læra þýsku. Ég leigði þar eitt her-
bergi og eldaði ofan í mig, að vísu ekki
mjög fagmannlega, en ég lifði af, lærði
þýskuna og kann enn þann dag í dag á
alla skemmtistaðina við höfnina og
víðar í Bremerhaven. Á þessum árum
og síðar var mikið um að íslensk skip
sigldu til Þýskalands og var ég oft í
slagtogi með sjómönnunum þegar þeir
komu til að selja á fiskimörkuðunum.
Vogelstrasse í Schnelsen í Ham-
borg, 1970
Um haustið fluttist ég til Hamborgar
þar sem ég hóf nám í rekstrarhagfræði
við Háskólann. Þá bjó ég fyrst í herbergi
í Vogelstrasse í Schnelsen. Það var langt
í skólann og tók um klukkustund að
komast þangað og annan til baka á
hverjum degi. Þá var allt frumstætt og
ég man að ég varð að fara yfir lestarspor
á leiðinni og líta vel til beggja átta til að
gá að lestarferðum áður en ég fór yfir og
ég man eftir dauðslysi við þennan veg.
Schierichstrasse í Winterhude í
Hamborg, 1970-1971
Síðan flutti ég nær skólanum i Schier-
ichstrasse í Winterhude-hverfinu í
Hamborg. Þar bjó ég í kommúnu með
mörgum þýskum stúdentum einn vetur.
Það var flott og skemmtilegt eins og
nærri má geta. Þetta var á tímum 68-
kynslóðarinnar og mikið líf í náms-
mönnum í Hamborg og viðar, götu-
bardagar og mótmæli nær vikulegir við-
burðir. Hamborg er mín uppáhaldsborg.
Burgweg í Blankenese í Ham-
borg 1971
Ég var í enn einu herberginu þetta
fyrsta rúmlega ár mitt í Þýsklandi og
það var í Burgweg í Blankenese sem er
mjög fínt hverfi þótt ég yrði ekki mikið
var við það í mínu kjallaraherbergi.
Þá var ég búinn að kynn-
ast konuefninu mínu,
Kolbrúnu Ingólfsdóttur,
sem vann hjá Loftleiðum í
Hamborg. Við urðum ekki
svo mikið vör við óþægind-
in í kjallaranum en við
erum núna búin að vera
gift í 33 ár.
Mittelweg í Har-
vesterhude í Ham-
borg, 1971-1972
Um sumarið sagði ég upp
herberginu í Blankenese
og fór í þriggja mánaða
ferð með einum þýskum
vini mínum í gömlum
Volkswagen um löndin
í Austurlöndum nær,
Júgóslavíu, Grikkland, Egyptaland og
Tyrkland og þvældumst við um ein tíu
lönd og skoðuðum okkur um. Það var
mikið ævintýri og lentum við oft í ýmsu
enda ekki hættulaust á þessum tíma.
Þetta var fyrir Interrail-ferðirnar en
síðan hef ég ferðast mikið og hef
gaman af því. Um haustið fluttum við
Kolbrún saman á Mittelweg mjög ná-
lægt Háskólanum. Þar vorum við með
tvö herbergi og aðgang að eldhúsi og
baði. Þetta var fyrsta íbúðin okkar og
dásamlegt að lifa en veturinn var svo
kaldur að allt fraus í borginni. Við
vorum á 5. hæð án lyftu og við urðum
að sofa í öllum fötunum en húsið var
meira en aldargamalt. Þá bjargaði
okkur að við áttum tvö gæruskinn og
gátum breitt þau yfir okkur. Við trúlof-
uðum okkur um haustið og héldum
heljarinnar trúlofunarveislu í tengslum
við 1. des.-hátíð Íslendinga í Norður-
Þýskalandi og margir landanna muna
enn eftir þeirri veislu.
Hermannstal í Horn í Hamborg,
1972-1975
Námið gekk alltaf vel hjá mér og við
fluttum síðan í blokkaríbúð á Her-
mannstal í hverfinu Horn. Elstu
drengirnir okkar fæddust 1972 og 1974
og þarna vorum við með þá. Lítill bak-
garður var við húsið og þar vorum við
mörgum stundum með litlu hnokkana.
Ohlestrasse í Eidelstedt í Ham-
borg, 1975-1977
Eftir að ég lauk háskólaprófinu ákvað
ég að fara í doktorsnám og þá fluttum
við enn og aftur og nú á Ohlestrasse í
Eidelstedt. Þetta var lítið raðhús með
garði og þarna vorum við í okkar fyrstu
virkilega góðu íbúð. Margir Íslendingar
gistu hjá okkur á þessum árum. Mikið
félagslíf var einnig í borginni hjá land-
anum og meðal Íslendinga í Norður-
Þýskalandi og tókum við mikinn þátt í
því. Ég var meira að segja á námsárum
mínum formaður Bandalags Íslendinga
i Norður-Þýskalandi og var
það líklega fyrsta opinbera
embættið mitt.
Háaleitisbraut 103 í
Reykjavík, 1977-1980
Við fluttum heim í maí
1977 og ég tók við stjórn
f jö l sky ldufy r i r tækis ins
ásamt bróður mínum. Við
bjuggum fyrst á 4. hæð í
blokk á Háaleitisbraut 103.
Þriðji sonurinn fæddist rétt
áður en við fórum frá Ham-
borg. Það var gott að vera í
Háaleitishverfinu og stutt í
allar áttir, sérstaklega miðað
við vegalengdirnar úti.
Barðaströnd 27 á Sel-
tjarnarnesi, 1980-1995
Okkar langaði í sérbýli þegar árin liðu
og fyrir 25 árum fluttum við út á Sel-
tjarnarnes og bjuggum á Barðaströnd
27 í fimmtán ár í raðhúsi. Það er gott að
vera á Nesinu, fínir skólar og skemmti-
legt fyrir börn og þetta er gamli Vestur-
bærinn í mínum huga. Ég lít alltaf á
Seltjarnarnes sem Vesturbæinn, er enn
gallharður KR-ingur og fer oft á völl-
inn, enda spilaði ég með yngri flokkun-
um í fótbolta á sínum tíma.
Fornaströnd 19 á Seltjarnar-
nesi, 1995 -
Fyrir tíu árum langaði okkur að komast
í einbýlishús og vildum vera á Nesinu
en þá var erfitt að finna hús, en piltur úr
nágrenninu vissi af löngun okkur og
hann frétti af húsi sem var að losna.
Þannig eignuðumst við Fornaströnd 19
þar sem við búum núna. Það er alveg
við Valhúsahæð og við horfum upp í
Holtið og á Valhúshæðina öðrum meg-
in í húsinu og yfir bæinn og Esjuna
hinum megin. Börnin eru farin að
heiman og auðvitað er þetta orðið of
stórt fyrir okkur hjónin en við ætlum
ekki að fara héðan. Okkur líður alltaf
jafnvel og þegar við vorum í kjallara-
herberginu í Blankenese fyrir 35 árum
og síðan kemur barnabarnið alltaf öðru
hvoru í heimsókn og von er á fleiri slík-
um og þá er lífið fullkomnað.
Hamborg er mín
uppáhaldsborg
GÖTURNAR Í LÍFI Ágústs Einarssonar prófessors
Bárugata
Landstrasse
Vogelstrasse
Schierichstrasse
Burgweg
Mittelweg
Hermannstal
Ohlestrasse
Háaleitisbraut
Barðaströnd
Fornaströnd
Skeifan 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Útsalan er byrjuð og hægt
að gera góð kaup.
ÚTSALA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Matar- og vínskemmtun
Allt franskt á
gourmet-kvöldi Vox
Góðlátlegt grín að stjórnmálafárinu í kringum Alfreð Þorsteinsson
Fylkjum okkur um Alfred
Á netinu gengur nú síða, þar sem bol-
ur með andliti Alfreðs Þorsteins-
sonar er til sölu. Er fyrirsögnin
„Fylkjum okkur um Alfreð.“
Þegar nánar er að gáð, kemur í
ljós að ekki er hægt að kaupa
þennan bol heldur er um góðlát-
legt grín að ræða, enda hafa fáir
stjórnmálamenn verið undir
jafnmiklum þrýstingi og Alfreð.
Stefán Valberg eigandi Dogma
sagðist ekki hafa leitt hugann að því
að setja Alfreð á bol frá
sér. „ Það eru aðrir
s t jó rnmá lamenn
sem eru í deigl-
unni,“ segir hann
en vildi ekkert láta
meira eftir sér
hafa.
„Þetta er samt
góð hugmynd.“
Alfreð Þorsteinsson kominn á bol?