Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 20. janúar 2005
KRINGLUKRÁIN UM HELGINA
• Fjölbreyttur sérréttamatseðill
öll kvöld vikunnar
• Tilboðsmatseðill
fyrir Leikhúsgesti
• Hópamatseðill
• Sérsalur fyrir hópa
Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is
Hljómsveitin
TILÞRIF
um helgina
Viltu taka þátt í skemmtilegu starfi
fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára.
*Leiklist
*Hljómsveit
*Kór
*Guðfræðihópur
Starfið ber yfirskriftina KMS og ef þú vilt taka þátt í þessu skemmtilega
listastarfi, skaltu koma í safnaðarheimili Áskirkju sem er við Vesturbrún
30, fimmtudagana 20. og 27. janúar kl. 17:00 og tilkynna þáttöku.
Á þessari önn verður settur upp söngleikur og farið í helgarferð í sum-
arbúðirnar í Vatnaskógi. Frekari upplýsingar veitir Jóna Hrönn Bolladótt-
ir miðborgarprestur í síma 822-8865 eða gegnum netfangið
midborgarprestur@kirkjan.is. Þáttakendur þurfa aðeins að greiða hluta
af ferðakostnaði í Vatnskóg.
Þjóðkirkjan
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Fræðslufundur í Safnaðarheimili Háteigskirkju
í kvöld 20. janúar kl. 20-22.
Umfjöllunarefni: Sjálfsvíg. Fyrirlesarar:
sr. Svavar Stefánsson og Ólafía M. Guðmundsdóttir.
Allir velkomnir.
Sjálfsvíg
Bergmál
Ragnhildar
Einn þekktasti slagverksleikari
heims, Stomu Yamashíta, kemur
fram á Listahátíð í Reykjavík í vor,
þar sem hann frumflytur nýtt verk
eftir Ragnhildi
Gísladóttur við
texta eftir Sjón.
Þessi þekkti
slagverksleikari,
sem sagður er hafa
breytt ímynd slag-
verksins, flytur
með sér til landsins
hljóðfæri sem búið
er til úr þriggja
milljón ára gömlum
steinum og vegur
um eitt tonn.
Þetta er eitt af viðamestu verk-
efnum Listahátíðar í ár og hefur það
fengið nafnið Bergmál. Þátttakend-
ur í þessu verkefni eru þau Stomu
Yamash’ta, Ragnhildur Gísladóttir,
Sigtryggur Baldursson og Sjón
ásamt Barna- og kammerkór Bisk-
upstungna og Skólakór Kársness.
Verkið verður frumflutt í Skál-
holtsdómkirkju laugardaginn 21.
maí kl. 13.30. Aðrir tónleikar verða
haldnir í Langholtskirkju þriðju-
daginn 24. maí kl. 20.00.
Stomu hefur unnið með fjöl-
mörgum heimsþekktum listamönn-
um, þar á meðal tónlistarmanninum
Mick Jagger og kvikmyndaleik-
stjóranum Robert Altman auk þess
sem hann samdi tónlistina við „The
Man Who Fell to Earth“. Að undan-
förnu hefur hann í auknum mæli
helgað sig japanskri tónlist og tón-
list tengdri friði í heiminum. ■
Skrímslin innra með okkur
Í sýningarými Gallerí Dvergs sem
staðsett er í kjallara bakhúss að
Grundarstíg 21 í Þingholtunum
opnaði Sigga Björg Sigurðardóttir
litla sýningu nú á dögunum. Hún
kallar sýninguna „Lappir, línudans
og fórnarlamb í gulri peysu“. Hún
sýnir litaðar teikningar þar sem
sviðsettar eru hálfnaktar verur,
skepnur eða líkamspartar sem eru
á mannlegum mörkum. Hún segist
sjálf búa til: „verur/skepnur, sem
líta út eins og fólk eða dýr en þurfa
ekki endilega að vera annað hvort.
Þær eru einfaldlega til þess að
sýna ákveðið hugarástand“. Gott
og vel, það er ánægjulegt að vera
vitni að því þegar hlýir og yndisleg-
ir listamenn taka upp á því að
opinbera fyrir okkur hinum hvað
þeir eru í góðu og fallegu sam-
bandi við sinn innri demón.
Og hverjir eru þessi demónar,
þessi skrímsli innra með okkur?
Það er mörg þúsund ára gömul
spurning sem taugalíffræðin svarar
ekki en allir vita að er samt sem
áður fullkominn raunveruleiki.
Listamenn allra tíma og allra
menningarsamfélaga hafa fjallað
um þessi skrímsli og baráttuna við
þau. Við höfum fullt af dæmum úr
fornri menningu, til dæmis Fáfni.
Það skyldi þó ekki vera að þetta sé
allt saman sami drekinn, sama
skrímslið og heilagur Georg glímir
við í miðaldabókmenntum? Eða
við upplifum í styttu Einars Jóns-
sonar á skemmtigöngu niðri við
tjörn þar sem drekinn liggur stein-
dauður með sverðið í miðjum
hausnum. Því hefur verið hvíslað
að þessi demón sé í raun og veru
sá sami og Móse fann í launhelg-
um Egypta og kristnir menn kalla
djöfulinn. Að hann sé ekkert annað
en hið breyska sjálf sem yfirvinnst
aðeins með hinu æðra sjálfi í líki
Georgs, Sigurðar eða Krists. En ég
sel það svo sem ekkert dýrara en
ég keypti það.
Það sem við fyrstu sýn virðast
vera litglaðar og loðnar myndir
ljóstra upp við nánari athugun
loðnari veruleika – fallega litaðar
en afmyndaðar verur í undarlegum
stellingum, krypplaðar en samt í
hinum yndislegustu formum. Hún
gælir við demóninn og sefar hann
þannig. Þarna tekst listamanninum
að sameina hið falllega og hið ljóta
með lagi sem sjaldgæft er. Eins
konar tragí-kómískir demónar,
undurfallegir órar og martraðir.
Sýningin kemur líka einkar vel út
sökum þess að áhorfandinn neyð-
ist til að nálgast verkin í hinu dverg-
vaxna rými – því hærri sem áhorf-
endur eru því lægra þurfa þeir að
lúta. Sigga Björg Sigurðardóttir er
eftirtektarverður listamaður sem
hefur hefur sýnt verk sín í Skotlandi,
Englandi, Kína og á Íslandi. Nýlega
sýndi hún í CCA (Centre of
Contemporary Arts) í Glasgow á
samsýningunni „Noonday
Demons“ og í Norræna húsinu á
samsýningunni „Vetrarmessa“.
Fram undan hjá henni er svo sýn-
ingarþátttaka á vegum Bowiearts í
London, í Ástralíu og í Japan. Þessi
sýning stendur út janúar.
MYNDLIST
GODDUR
Gallerí dvergur
Sigga Björg Sigurðardóttir
Niðurstaða: Þarna tekst listamanninum
að sameina hið fallega og hið ljóta með
lagi sem sjaldgæft er.
VERUR/SKEPNUR Í minnsta galleríi bæjarins, Gallerí Dverg við Grundarstíg, sýnir nú
Sigríður Björg Sigurðardóttir litaðar teikningar af ýmsum kynjaverum.
RAGNHILDUR
GÍSLADÓTTIR
Slagverksleikar-
inn Stomu
Yamash’ta frum-
flytur verk eftir
hana í sumar.