Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 62,00 62,30 116,49 117,05 81,08 1,54 10,90 10,96 9,95 10,01 8,99 9,04 0,60 0,61 94,44 95,00 GENGI GJALDMIÐLA 19.01.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 111,53 -0,30% 4 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Prestadeila í Garðabæ: Nauðugur einn kostur KIRKJAN Sr. Hans Markús Haf- steinsson, sóknarprestur í Garða- sókn, hefur vísað ágreiningi sín- um við formann og varaformann sóknarnefndar, auk sóknarprests og djákna, til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar. Að sögn sr. Hans Markúsar er ástæðan sú að eftir ágreining í sókninni, boðaði biskup sættir í málinu 14. júli og auk boðs um handleiðslu, úrskurðaði að ekki væri tilefni til breytingar á ráðn- ingu sr. Hans Markúsar. Þessu höfnuðu fjórmenningarnir og skrifuðu greinargerðir til biskups þar að lútandi. Sr. Hans Markús segir að þar af leiðandi hafi honum verið nauð- ugur kostur einn að leita til úr- skurðarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem málið er nú í löglegum farvegi, en harmar þann ágrein- ing sem upp er kominn. Þá hefur einn sóknarnefndar- manna í Garðabæ, Sigmundur Hermundsson, lýst yfir að hann sé ósáttur við vinnubrögð for- manns og varaformanns sóknar- nefndar og segist vita um fleiri sóknarnefndarmenn sem séu sama sinnis. Í yfirlýsingunni kemur fram að ákvörðunin um að hafna úrskurði biskups hafi ekki verið gert með samráði eða vit- und sóknarnefndar. - ss Breytir engu um vald ráðherra Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki taka þátt í því sem hann kallar „leik“ sem skipti engu máli. Fulltrúum stjórnarandstöðu og Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd ber saman um að ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak hafi aldrei verið rædd í utanríkismálanefnd. ÍRAKSMÁLIÐ „Það er algjörlega á hreinu að þótt staðan í Írak hafi verið rædd var stuðningur okkar við innrásina og vera okkar á list- anum aldrei rætt í utanríkismála- nefnd,“ segir Steingrímur J. Sig- fússon, formaður Vinstri grænna, sem átti sæti í nefndinni á tímabil- inu. „Ákvörðunin sem slík var ekki til staðar, né hafði verið boð- að að hún væri í vændum,“ segir Steingrímur. Magnús Stefánsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins, sat í ut- anríkismálanefnd á þessum tíma. „Ég man ekki til þess að það hafi verið lagt fyrir utanríkismála- nefnd hvort Íslendingar ættu að styðja innrásina í Írak, ég held að þetta hafi komið mjög snöggt upp,“ segir Magnús. Jónína Bjart- marz hefur sagt hið sama opinber- lega. Aðspurður segir Magnús að ákvörðunin hafi heldur aldrei ver- ið rædd í þingflokknum. Sigríður Anna Þórðardóttir var þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og formaður nefndar- innar á umræddum tíma. Hún segist ekkert hafa um málið að segja. Björn Bjarnason sat fyrir Sjálfstæðisflokk í nefndinni. „Ég ætla ekki að taka þátt í þessum „leik“ sem skiptir engu máli og breytir engu um vald ráðherra eða annarra og svara því ekki spurningum þínum um þetta mál,“ segir Björn. Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, átti sæti í nefndinni. „Ég tel að mál- efni Íraks hafi verið rædd á breið- um grundvelli í utanríkismála- nefnd og á Alþingi og fyrir innrás- ina og á eftir. Ég tel að með þeim umræðum hafi þingskapará- kvæði, þar sem kveður á um sam- ráðsgildi við utanríkismálanefnd, verið fullnægt að öllu leyti.“ Spurður hvort hugsanlegur stuðn- ingur Íslendinga við innrásina hafi verið ræddur segist hann ekki vilja fara ofan í það efnislega sem rætt var á fundunum. „Framsóknarmenn og sjálf- stæðismenn geta haldið því fram í sífellu að Íraksmálin hafi verið rædd þennan vetur,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. „Þegar rætt var um málefni Íraks var það alltaf að frumkvæði stjórnarand- stöðunnar, bæði í þinginu og í ut- anríkismálanefnd. Það fyrir ligg- ur að ákvörðunin um að styðja innrásina var aldrei rædd í utan- ríkismálanefnd, enda hefur for- sætisráðherra, þáverandi utanrík- isráðherra, margsagt að hann teldi að ekki hafi verið þörf á því,“ segir Þórunn. sda@frettabladid.is Æðsti klerkur: Vígaferli helsta ógnin SÁDI-ARABÍA, AP Ungir menn sem eru lokkaðir til vígaferla eru helsta þolraun íslams, sagði Sheik Abdul-Aziz al-Sheik, æðsti klerk- ur Sádi-Arabíu, þegar hann ávarpaði hluta þeirra tveggja milljóna mús- lima sem lögðu leið sína til Arafat-fjalls í Sádi-Arabíu í pí lagrímsför við upphaf Hajj, trúarhá- tíðar múslima. Al-Sheik vísaði til ofbeldis- verkja al-Kaídahreyfingarinnar og annarra hópa með sömu áhersl- ur. „Hvernig myndir þú mæta Allah? Með blóð sakleysingja á höndum þínum eða hafandi neitað hjálp?“ spurði hann unga múslima. ■ Eistland: Stuðningur Finna lítill FINNLAND Fyrrverandi forsætis- ráðherra Eistlands, Edgar Savisa- ar, gagnrýnir Finna í nýútkominni minningabók sinni fyrir að styðja land sitt ekki nægjanlega til sjálf- stæðis. Í bókinni, þar sem hann rifjar upp atburði áranna 1990- 1992, segir Savisaar að sumir finnskir stjórnmálamenn hafi frekar staðið í vegi Eistlands í átt að sjálfstæði en aðstoðað. Hann nefnir þar sérstaklega Mauno Koivisto, fyrrum forseta Finn- lands, sem hann segir að hafi ekki getað tekið ákvarðanir án sam- þykkis Moskvu, en gagnrýnir einnig þáverandi utanríkisráð- herra Finnlands, Paavo Väyrynen, og þáverandi forsætisráðherra Finnlands, Harri Holkeri. ■ SR. HANS MARKÚS HAFSTEINSSON Segir formann og varaformann sóknar- nefndar, auk prests og djákna í Garðabæ, ekki hafa sætt sig við úrskurð biskups um sættir. FYRIRGEFNINGAR LEITAÐ Fjöldi pílagríma kleif hið helga fjall Jabal al Rahma, fjall fyrirgefn- ingarinnar. SIGRÍÐUR: „Ég hef ekkert um þetta að segja.“ BJÖRN: „Ég ætla ekki að taka þátt í þessum „leik“. EINAR K.: „Ég tel að málefni Íraks hafi verið rædd.“ ÞÓRUNN: „Ákvörðunin um að styðja innrásina var aldrei rædd.“ STEINGRÍMUR: „Ákvörðunin sem slík var ekki til staðar.“ MAGNÚS: „Ég held að þetta hafi kom- ið mjög snöggt upp.“ Prestadeila í Garðabæ: Bara bréf frá biskupi KIRKJAN Matthías G. Pétursson, for- maður sóknarnefndar Garðabæjar, segir að greinargerð verði send úr- skurðarnefnd þjóðkirkjunnar 8. febrúar. Á meðan málið er enn í þeim farvegi sé ekki rétt að gefa upp hvaða ávirðingum hann og aðrir sitji undir. Þá segir Matthías að biskup hafi ekki úrskurðað um neitt þann 14. júlí. Hann hafi einungis sent sér bréf. Á þriðjudagskvöld fundaði sóknarnefnd Garðabæjar, þar sem samþykkt var að styðja sóknar- nefndarmennina og starfsmenn kirkjunnar í málinu gegn sr. Hans Markúsi Hafsteinssyni. -ss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.